Ahh.. þetta er nú aldeilis búin að vera hin fínasta helgi. Ég tók þvílíkt afslappelsi í gær, svaf til hálftíu og las tvær greinar á milli þess sem ég slæptist frameftir degi. Ég fór í smá göngutúr og svona, en hékk eiginlega bara heima og boraði í nefið. Mörður var hins vegar hraustari og fór í vinnuna um sjöleitið og var ekki kominn heim fyrr en eftir miðnætti.
Ég fór líka í partý til Emily og Adelene. Það var stórfínt eins og venjulega og ég hitti mikið af nýju fólki og gömlum vinum.. Þær stelpurnar eru alveg meistarar í að halda veislur og partý.
Í dag vöknuðum við heldur seint, en drifum okkur niður í Downtown Boathouse, þar sem við ætluðum að hjálpa fólki út í kajaka í dag. Það var hins vegar svo svakalega kalt, varla hundi út sigandi (bara fimmtán stiga hiti á selsíus kvarða, og svo rigndi af og til, það er náttúrulega alveg hræðilegt) þannig að það voru frekar fáir sem mættu til þess að taka smá kajaksprett.
Við erum svo mikil hörkutól og ýmsu vön, þannig að við treystum okkur alveg út á kajak í þessu *hundfúla* veðri og skemmtum okkur konunglega við að æfa ýmis áratök úti á ánni í dágóða stund.
Ég verð nú bara að segja það að þessir blessuðu Njúf Jorkerar eru hinar mestu skræfur og druslur að vera svona hræddir við blíðskaparveður. Ég lýsti því yfir við nýsjálending sem þarna var við stjórn, að mér þætti borgarbúar missa af miklu að vilja ekki kajaka nema í steikjandi hita. Hann glotti nú bara við og benti mér á það að ég væri með allt annan veðurkvarða en aðrir borgarbúar og spurði mig svo hvort að þetta þætti ekki bara góður sumardagur á Íslandi. Ég sá mig neydda til að viðurkenna það.
Eitt af því skemmtilega við Downtown Boathouse, er líka að maður hittir svo mikið af flólki frá öllum stigum samfélagsins þar. (Og náttúrulega allstaðar að úr heiminum, en það er bara New York). Maður fær bara svo allt annan fílíng fyrir borginni og svona.
Ég hjólaði svo sem leið lá frá bryggju 26 í vinnuna og vann í nokkra tíma og hjólaði svo heim. Ég bætti því aðgerðarleysi gærdagsins algerlega upp, þar sem ég hjólaði um 24 kílómetra auk þess að róa kajak. Og þar að auki sit ég hér (með þokkalega sjóriðu) og bíð eftir kvöldmatnum og blogga, en það gerist nú ekki oft þessa dagana.