Oh.. ég er að hlusta á Dabba kóng og eins og venjulega fæ ég klígju. Hrokinn svoleiðis lekur af honum og hann talar svo niður til viðmælenda sinna að það er fáránlegt. Og af hverju í ósköpunum er hann alltaf einn í svona viðtölum. Er það satt að hann neiti að rökræða opinberlega við andstæðinga sína? Þetta er eitt stórt yfirdrull á allt og alla, eins og hann talar maðurinn. Pereat Davíð Oddsson.
Oh.. það er svo gaman að fylgjast með umræðunni um forsetann og undirskriftarneitunina svona úr fjarska. Við Þyrí og Einar Mar ræddum einmitt málið af miklum ákafa og spekúleruðum þegar ég fór í heimsókn til þeirra fyrir um tveimur vikum síðan. Þyrí kom með góðar lögfræðipælingar inn í dæmið og Einar Mar sá um stjórnmálafræðihliðina.
Og svo vann ég veðmál, en á mig var skorað að veðja um það hvort að Óli myndi kvitta eða ekki. Verst að ég man ekki hvað ég græddi, var það kannski bjór?
Það er bara tími kominn til að láta reyna á þetta ákvæði númer tuttuguogsex í stjórnarskránni. Ákveða hvort að við viljum hafa það inni. Og náttúrulega semja kannski reglu eða tvær um það hvernig á að framkvæma þennan lið hennar.
Mér finnst líka ansi spaugilegt þegar ríkisstrórnarfólk kemur fram fyrir skjöldu og lýsi því að það ríki sundrung í samfélaginu og að forsetinn eigi að vera sameiningartákn þjóðarinnar. Nú er það eitt hiðvitlausasta sem stjórnvöld geta gert og reyndar hið besta ráð til að valda einmitt sundrung og óreiðu; að lýsa því yfir að óreiða og sundrung séu við völd.
Þar að auki var ríkisstjórnin ansi dugleg við að valda sundrungu í þjóðfélaginu áður en að Ólafur blandaði sér í málið. Fólk er líka komið með svo upp í kok af valdhroka stjórnarmanna, að ég heyrði meira að segja harðasta Sjálfstæðisfólk lýsa því yfir að það væri kominn tími til að skipta aðeins út þar á bæ.
Og þetta sýnir barasta líka að það getur verið alveg hreint ágætt að hafa pólitískan forseta við völd. Ekki einhverja Viggu sem bara talar um skógrækt og fer í teboð hjá Þórhildi vinkonu sinni, heldur einhver með aðeins meiri kjark, sem þorir að láta að sér kveða.
Mér finnst þetta barasta allt hið besta mál, gott fyrir þjóðarsálina og lýðræðistilfinninguna. Gott fyrir okkur að ræða þessi mál. Ákveða hvort forsetinn eigi að hafa þessi völd, og ef ekki, hvort að við eigum yfirleitt að vera að hafa einhvern forseta yfir höfuð. Það er eins og það hafi verið mikil pólitísk vakning á Íslandi undanfarin misseri, þannig að þetta kemur á besta tíma.
Nú verður spennandi að sjá hvað gerist....