Æhjjj.. það er svo góð tilfinning eitthvað að það sé heilt sumar framundan með sínum ævintýrum og uppákomum. Það er líka alveg hreint óstjórnlega gaman að vera búin með alla kúrsa. Kennslunni lauk í fyrra og því eru rannsóknir og aftur rannsóknir og ekkert annað á döfinni hjá mér í skólanum næstu árin. Ég er strax farin að finna fyrir því hvað það er gott að þurfa ekki að skila inn verkefnum í hverri viku og því var helgin mjög ljúf. Það skipuleggst líka öll vinna á labbinu mikið betur þar sem nú get ég byrjað á stóru tilraununum á mánudögum í stað miðvikudaga.
Og svo eru göngur framundan og kajaksport og reiðhjólatúrar og línuskautaskemmtilegheit, útilegur ogégveiekkihvaðoghvað....