Ætli að sé ekki best að framkvæma smá helgarblogg. Í dag er Memorial Day og miklar skrúðgöngur og húllumhæ í borginni. Ég skil reyndar ekki alveg hverjir mæta í þessar skrúðgöngur, því það er svona verslunarmannahelgarstemning á Manhattan. Það er bara eins og borgin hafi tæmst, þegar íbúar hennar lögðu af stað, allir sem einn í helgarferðalag út úr bænum á föstudaginn. Svo fluttu undergrad nemarnir út fyrir tveimur vikum, þannig að kampus-hverfið var rólegt fyrir, en er næstum eins og draugabær núna.
Samt var nú alveg slæðingur af fólki eftir í borginni, alla veganna niðri í Riverside Park, en við Mörður fórum þangað í gær. Nánar tiltekið niður að bryggjunni við 72. Stræti, en þar hjálpuðum við fólki um borð í kajaka í tvo tíma seinni partinn og fórum svo og fengum okkur öllara með öðrum sjálfboðaliðum eftir að búið var að ganga frá kajökunum inn í skúr. Það var hressandi að fá smá sjávarseltu á tærnar og rassinn og kynnast nýju fólki í leiðinni.
Kajakdæmið er á vegum Downtown Boathouse. Nokkuð sniðugt apparat það og ég stefni á að verja slatta af tíma þar í sumar.
Garðálfurinn er bara með alveg frábæran tónlistarsmekk!