Föstudagur, 28 maí, 2004
Lífsmark

Ég er svona að öll að koma til eftir spanið á Íslandi í síðustu viku. Það var alveg frábært að koma heim, en kannski því miður voru of margir praktískir hlutir sem ég þurfti að vesenast í, þannig að ég náði ekki að hitt alla sem mig langaði. Ég svaf heldur ekkert svakalega mikið, ekki getur maður verið að eyða fríinu sínu í svefn, þannig að ég er búin að sofa 10-12 tíma á hverri nóttu þessa vikuna. Alger lúxus =)

Það var alveg frábært að komast tvisvar í göngu heima og svo náttúrulega var stúdentaríjúníjón svo eitthvað sé nefnt. Fimm gráður og rigning mestallan tíman en svo rættist úr veðrinu á sunnudaginn. Fínt að taka svona púlsinn á Fróni og hitta sína nánustu.

Hér er svo búið að vera alveg yndislegt veður, í gær var það akkúrat passlegt fyrir lítinn Íslending, tuttugu og þrjár gráður og sól og blíða. Í dag er rigning, en spáin fyrir helgina er sko heiðskírt og rúmlega 70 gráður sem kenndar eru við Farenheit. Það munu vera um tuttugu til tuttugu og fimm Selsíusgráður.

Ég ætla lítið að vinna og njóta lífsins þeim mun meira með honum Merði, sem var að klára prófin og er frelsinu feginn.

Posted by erna at 11:41 FH