Föstudagur, 14 maí, 2004
Beba bandið rúlar!

Hver man ekki eftir Beba bandinu? Þeir eru nú ansi þokkafullir í kirtlunum, strákarnir ha!

Posted by erna at 10:11 FH
Jamm og jæja

Já, þá virðist það loksins orðið ljóst að pródjektið mitt blívur. Það rokkar feitt, þokkalega! Ég dró prófessorinn minn á fund með tveimur öðrum prófessorum í gær og hún trúði því loksins að það sem ég segði væri satt og rétt og var alveg í skýjunum yfir verkefninu mínu. Loksins. Og ég var líka mjög ánægð að vita að húð og hárprófessorarnir Angela Christiano og Andrei Panteleyev voru alveg sammála mér og komust að sömu niðurstöðum og ég við að skoða gögnin mín.

Og nú er ég kominn með lista jafnlangan sögunni endalausu, yfir tilraunir til þess að gera næstu tvo til þrjá mánuðina.

En fyrst ætla ég heim í nokkra daga. Mýsnar geta bara beðið á meðan.

Posted by erna at 12:05 FH