Fimmtudagur, 6 maí, 2004
Heh

6. maí er greinilega erfiður dagur fyrir mig. Frekar fyndið að titill færslunnar þann dag í fyrra hafi verið "Búin áðí", miðað við efni færslunnar hér áðan... Á Íslandi ætla ég í nudd. En líka til tannlæknis og augnlæknis og heimilislæknis og kannski sjúkraþjálfara og ónæmislæknis og svo til löggunnar að fá ökuskírteini, sýslumanns að fá vegabréf og sendiráðs að fá vísa... úff... Eins gott að ég sé líka að fara að hitta vini og vandamenn til að endurnæra sálina aðeins. Svo er líka algert möst að fara í svosem eins og eina fjallgöngu og náttúrulega líka að ógleymdu stúdentsafmæli.

Posted by erna at 02:55 EH
Þreytt

Ah.. búin með labbfundinn. Gekk bara vel og ég lærði heilan helling og við spjölluðum heilan helling um verkefnið mitt.

Mér líður þessa dagana eins og ég fái aldrei neina pásu. Mig vantar smá "me-time" eins og hún Ella Maja kallar það. Ef það er ekki brjálað að gera í vinnunni (sem það er stöðugt, þetta er búin að vera alveg svakaleg pressa, vinna fram á nótt hvað eftir annað), þá eru félagslegar skuldbindingar í gangi. Ég hef ekki einu sinni haft tíma til að æfa, en ég lofaði sjálfri mér að láta það ekki koma fyrir. Og það stefnir eiginlega ekki í neina afslöppun fyrr en ég kem aftur frá Íslandi, eftir þrjár vikur. Ég er að fara á mikilvægan fund í næstu viku varðandi verkefnið mitt og hef slatti mikið að undirbúa fyrir hann. Íslandsferð er sjaldan nokkur afslöppun, þó skemmilegar séu þær, maður kemur yfirleitt heim algerlega búinn á því. Þannnig að ég hlakka til að hitta pabba og Björgu um helgina og ég hlakka til að fara heim í maí, en einhvern veginn hlakka ég líka alveg svakalega til að sitja heima á náttfötunum laugardaginn 29. maí og bara gera ekki neitt. Alls ekkert.

Ég held ég sé þreyttari en ég hef nokkurn tíman verið um ævina.

Posted by erna at 12:21 EH