Þriðjudagur, 4 maí, 2004
Bloggfall

Vó, þið afsakið bara, en lífið er of "intense" þessa dagana til þess að ég hafi tíma til að blogga nokkurn skapaðan hlut. Brjálað að gera. Tryllt að gera. Undanfarnir dagar eru búnir að vera skemmtilegir en þeir tóku á. Fór á 60 fyrirlestra frá hádegi miðvikudags til hádegis á sunnudaginn svo að eitthvað sé nefnt. Hitti fræga ónæmisfræðiprófessora og smakkaði konjak hjá Mark Davis. Fór beint í vinnuna af ráðstefnunni og vann til klukkan eitt í gærnótt, vann í allan dag, gersamlega á þönum. Og svo fór ég með Sigga á Damien Rice tónleika í kvöld. Þeir komu skemmtilega á óvart. Annar plús við að búa í þessarri borg. Hljómsveitir enda svo oft tónleika hér og taka extra trukk og læti. Rice og félagar spiluðu í tvo og hálfan tíma og hann var fyndinn og spontant strákurinn og ég er í skýjunum og algerlega búin á því.

Frekari bloggfærslum frestað þar til lífið verður aftur nógu rólegt til þess að vinna úr viðburðum hversdagsins. Hér verður því á bloggfall næstu daga...

Posted by erna at 12:50 FH