Mánudagur, 26 apríl, 2004
Fatkins

Þetta vídjó segjir allt sem þarf að segja! Vissuð þið að hér í Amríku er hægt að fá kolvetnisskertan bjór? Fyrir mér er það eins og nammilaust nammi, bjór er ekkert nema kolvetni!

Posted by erna at 08:46 FH
Sunnudagur, 25 apríl, 2004
Ískalt

Brrrr... það er eitthvað að kyndingunni á labbinu hjá mér og búið að vera það í heila viku. Mér var orðið svo kalt núna að ég fór inn í 37°C herbergið okkar til þess að hlýja mér. Brrrrr... mikð er gott að það skuli þó að minnsta kosti vera hitaherbergi hér.... En svo þurfti ég aðeins að vinna inni í 4°C herberginu okkar og ég hélt ég myndi deyja úr kulda.... Brrrrrr.....

Posted by erna at 03:20 EH
Bleh

Æhjjj.. það var svo frábært að hitta hana Berglindi í á föstudaginn og í gær. Við fengum okkur sushi og sake á föstudaginn, á hinum stórgóða stað Planet Sushi, og svo fórum við á barinn og fengum okkur bjór og spjölluðum. Í gær fórum við svo í bröns á City Diner og skoðuðum Central Park í góða veðrinu og vöfruðum um Greenwich Village. Fullkominn dagur alveg.

Ég get ekki sagt annað en að ég sé endurnærð á sálartetrinu. Undanfarnar tvær vikur eru búnar að vera erfiðasti tíminn sem ég hef upplifað á þessu labbi, ég get eiginlega ekki alveg útskýrt það en ég er búin að vera einhvern veginn algerlega uppgefin andlega. Sennilega útaf því að ég var veik í síðustu viku og fékk ekki neinn tíma til að jafna mig eða slappa af, á sama tíma og það er mjög krítískur punktur í verkefninu mínu núna. Á næsta mánuði mun koma í ljós hvort að það sé fýsilegt að halda verkefninu áfram eða hvort að ég þurfi að byrja upp á nýtt á öðru verkefni. Þannig að það er vægast sagt stress í gangi... Í næstu viku er líka fimm daga ráðstefna og svo held ég labbfund þann sjötta maí, þannig að það er bara brjáluð keyrsla áfram. Á meðan það er mjög gaman í vinnunni, þá er alveg lúmskt hvað það getur tekið á sálina að díla við svona stress. Það var svo allt öðruvísi þegar maður var í Háskólanum, því að þá var maður bara að taka kúrsa og þó maður vildi standa sig vel, og ég hafi verið stressuð í prófunum og svona, þá stóð ég aldrei frammi fyrir því að þurfa hreinlega bara að byrja upp á nýtt og það væri ekkert sem ég gæti gert til þess að breyta því. Og eitt til tvö ár í viðbót í doktorsnámi er alveg slatti, verð ég að segja. En á móti kemur að ég er mjög sátt við það sem ég er að gera, finnst það mjög gaman, þannig að það gerir kannski ekki mikið til þó að ég þurfi að byrja upp á nýtt, að minnsta kosti fæ ég borgað fyrir að gera það sem mér finnst gaman. Og á meðan þetta brjálaða dæmi er í gangi, situr einhvern veginn allt annað á hakanum. Í síðustu viku steingleymdi ég að borga af kreditkortinu mínu og skila inn amerísku skattskýrslunni minni svo eitthvað sé nefnt, og ég komst bara einu sinni í gymmið. Púff, ég er ekkert smá fegin að ég sé að fara í frí í næsta mánuði...

En sumsé, það er alveg ótrúlega endurhlaðandi fyrir sálartetur stressaðrar konu að hitta gamla vinkonu. Það breytti öllu fyrir mig þessa helgina!

En, áfram með smjérið, ég þarf að gera tvær tilraunir í dag og klára (les: byrja á) erfðafræðiverkefninu mínu!

Posted by erna at 02:42 EH
Föstudagur, 23 apríl, 2004
Bjúgí

Tjúllað... ég er á leiðinni niðrá Beacon að hitta hana Berglindi Ósk vinkonu! Júhú! Ég hlakka ekkert smá til. Það eru ekki margir sem ég hef þekkt svo lengi að ég muni eftir því að hafa heyrt þá segja: "Þessi frostpinni er alveg brennandi kaldur maður!" En endurfundir milli okkar eru alltaf kærkomnir. Nú hef ég búið á sama tíma og hún í Köben, hitt hana í Katmandú og svo núna á Manhattan. Hvar ætli við hittumst næst? Sennilega í Reykjavík held ég.. því ég verð þar náttúrulega í maí...

Posted by erna at 08:34 EH
Mánudagur, 19 apríl, 2004
Búúúhúúúú

Ég er algerlega í rusli núna... Ég pantaði húðfrumuæti í síðustu viku frá Invitrogen og það átti að koma í síðustu viku. Ég treysti á að það hefði bara tafist aðeins í pósti þegar það kom ekki á föstudaginn og byrjaði tilraunina mína þannig að ég gæti notað ætið á morgun. Og viti menn, snillingarnir í invítrógen höfðu ekki fyrir því að segja mér að ætið væri búið og ég fengi það ekki fyrr en síðar í vikunni. Og nú er allt í klessu, húðfrumurnar svelta á morgun ef ég fæ þetta ekki og ég get ekki byrjað á nýrri tilraun fyrr en í maí, en það er knappt, því að pabbi og Björg eru að koma og svo fer ég heim og hver tilraun tekur tíu daga. Nú er sumsé allt VONLAUST. Urrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr

Öppdeit, nokkru síðar:
Það borgar sig alveg stundum að vera kona ýtin með eindæmum. Ég hringdi í Invitrogen og hundskammaði þau fyrir að láta mig ekki vita að ætið væri ekki til þannig að ég hefði getað pantað eitthvað annað í staðinn. Eftir nokkuð þref, og harmakvein yfir ónýtum tilraunum þá náði ég sambandi við hann Jósef sölumann sem sagðist ætla að líta á málin og meila svo á mig þegar hann vissi hvenær þau gætu sent mér vöruna.

Nú var ég að enda við að koma úr spinningtímanum mínum og þá beið mín tölvupóstur frá honum Jósef þar sem hann sagði mér að það væri búið að senda mér ætið (eh, sem átti ekki að vera til) og ég fæ það víst á morgun (sjö níu þrettán). Ótrúlegt hvernig ætisflaska getur bara birst upp úr þurru. (Ég ætti kannski frekar að segja: Aumingja manneskjan sem fær ekki sitt æti því það var sent til mín). Þannig að nú leikur allt í yndi, langur dagur á morgun við að sá húðfrumum og lita vefjasýni. =)

Ha, sagði einhver skapsveiflur?

Posted by erna at 06:08 EH
Sunnudagur, 18 apríl, 2004
Gott veður

Þá er vorið blessað komið fyrir alvöru hér í borg. Trjáviðir ýmiss konar blómstra af mesta mætti, þannig að nú eru göturnar hér alsettar bleikum og gulum litum. Undanfarna daga er hitinn búinn að vera um tuttugu stig, en á morgun munu gráðurnar verða þrjátíu að tölu, hvorki meira né minna...

Ég er búin að vera frekar lasin undanfarið, einhver kveffjandi að hrjá mig, þannig að tilveran er búin að vera soldið erfið. Ég gat því miður ekkert slakað á í vinnunni, það hefði seinkað mér um heilan mánuð að sleppa tilraununum sem ég var að gera. Svona er það að vera að vinna að verkefni tengdu þroskunarfræði músa, þær bíða ekkert með að eldast þessar elskur þó maður veikist eða veðrið sé gott. Það var því frekar þreytt og úrill Erna sem kom heim til Marðar á kvöldin þessa vikuna. En í dag virðist þetta eitthvað vera að skána, að minnsta kosti er hausinn á mér ekki eins og hann sé að splúndrast. Líka eins gott, því að það liggur mikil vinna fyrir í dag og út vikuna.

Ég kíkti nú samt í hádeginu út á JouJou og borðaði súpu þar úti í sólskininu á meðan ég las grein um NFkappaB í húðmyndun. Næsh...

Það verður brjálað að gera hjá mér á næstunni. Ég þarf að afla eins mikilla gagna og ég get næstu tíu daga, bæði til þess að sýna á fundi með nokkrum prófessorum ásamt leiðbeinanda mínum og svo líka af því að í lok mánaðarins er ég að fara á ráðstefnu og svo beint á eftir hana held ég labbfund.

Svo er líka nokkuð um heimsóknir næstu daga, því að Berglind Ósk vinkona ætlar að kíkja á mig í vikunni og svo eru pabbi og Björg að koma eftir þrjár vikur.

Nóg á döfinni sumsé.....

Posted by erna at 01:29 EH
Miðvikudagur, 14 apríl, 2004

Ég er að steikja kjúlla í ofninum. Mörðurinn er í prófi, og ég ætla að koma honum á óvart með kjúlla, frönskum og brúnni sósu þegar hann kemur heim. Er það ekki bara nett?

Svona á meðan ég bíð eftir að tjúttlíngurinn steikist í ofninum ætla ég að dunda mér við að skella inn myndum frá síðasta laugardegi. Ef þið smellið á þær, þá birtast þær í betir upplausn:

Posted by erna at 09:51 EH
Póstdokk

Áhugaverður pistill í Nature í dag. Veitir pínu innsýn inn í hvað bíður ungs vísindamanns sem er að vinna að doktorsgráðu í dag.

Það er frábært að það er alltaf að verða meiri og meiri umræða um þessi mál hérna. Vísindin eru svo grimm, það er svo mikil samkeppni í gang og stofnanir nýta sér það með því að borga doktorsmenntuðu fólki skítalaun. Launakjör versna oftast við það að útskrifast og vinnuálagið eykst. En það virðist eitthvað vera að breytast, þótt hægt sé....

Posted by erna at 04:20 EH
Þriðjudagur, 13 apríl, 2004
Ó ég elska rok og rigningu

Það er bara eitthvað frábært við rok og rigningu. Ég naut veðursins allavega í botn í dag í þau skipti sem ég slapp út úr húsi. Ég veit ekki hvað það er, sennilega minnir það mig bara á ástkæra, ylhýra þegar rigningardroparnir smella í andlitið á mér. Mér finnst það svo ótrúlega hressandi eitthvað. En ég verð líka að viðurkenna að svona veður endist venjulega ekki lengur en í tvo daga á þessum slóðum.

Ég hefði hins vegar átt að sleppa því að fara á stuttermabolnum út í Jou Jou að kaupa súpu í hádeginu, því að nú er ég komin með stíbblað nef.

(ps. Ég verð nú líka að viðurkenna að það er mjög langt frá því að hafa verið slagviðri í dag.)

Posted by erna at 10:22 EH
Búin, næsta...

Úffipúff, það er alltaf gott þegar maður er búin með presentasjónir. Í þetta skiptið tókst einkar vel upp og ég er ánægð en jafnframt fegin.

Kennslustundin í dag fjallaði um hvernig væri unnt að nota hina ýmsu gagnagrunna til að afla upplýsinga um gen og erfðir og þessháttar á netinu. Greinin sem ég fjallaði um er hér, og abstraktinn er hér. Þetta er frekar elegant grein að mínu mati, því að hópurinn hafði mappað sjúkdómslókus niður á 2 megabasa og hafði úr 30 genum að velja, sem öll voru jafnlíkleg til þess að vera sjúkdómsgen. Það hefði tekið mánuði að raðgreina öll 30 genin í sjúklingum, en með því að nota smá hugvit tók það eina helgi að þrengja leitina niður í eitt gen. Það var víst líka pínu heppni að liðið á næsta labbi var að vinna svona hvatbera-proteomics verkefni, sem hjálpaði til við að negla niður genið.

Undanfarnar vikur erum við búin að vera að fjalla mikið um mannerfðafræði. Ég verð bara að segja það að þegar ég heyri fræðislettum flengt fram og til baka fæ ég deja vu og flassbakk og alles og fyllist söknuði. Það var svo gaman að vinna í Íslenskri Erfðagreiningu á sínum tíma.

Posted by erna at 04:36 EH
Mánudagur, 12 apríl, 2004
Tempura...

....er svooooo goooootttttt. Sérstaklega eggaldintempura og sætkartöflutempura. Hvað þá konjaksflamberað bananatempura með piparmyntuís. Jömm, jömm, jömm...

Posted by erna at 08:49 EH
Shhh... oh so quiet

Jömm, ég sit hér við skrifborðið mitt á rannsóknarstofunni og nýt ljúffengrar linsubaunasúpu með gulrótum. Það er ósköp hljótt hér í dag. Kuo-I sem sat við hliðina á mér er hætt og farin til baka til Taiwan og Tracy er ekki mætt. Fullkomið að sitja og undibúa presentasjón morgundagsins, en ég kláraði nauðsynlegustu labbvinnuna í morgun.

Posted by erna at 12:12 EH
Ísland

Haldið þið ekki bara að hann góði pabbi minn hafi gefið mér miða til Íslands! Þannig að nú er ég búin að kaupa miðann und alles. Kem þann 14. maí og fer aftur þann 24. maí. Ó, ég hlakka svo til!

Posted by erna at 07:53 FH
Sunnudagur, 11 apríl, 2004
Útlendingafrumvarpið meingallaða og siðferðislega stórhættulega

Á meðan ég man:

Posted by erna at 05:27 EH
Solitude

Æhj, stundum er bara alveg hreint svakalega næs að eiga allt labbið fyrir sig. Spila háværa tónlist og vinna á fullu. Ég mætti ekki fyrr en klukkan tíu í morgun og þá beið mín hrúga af minnismiðum frá labbfélögunum. Svo mikið af því sem við gerum krefst þess að við mætum í vinnuna á hverjum degi, en oft bara til að gera nokkur handtök. Á föstudögum gefur það fólk sig venjulega fram sem veit hvenær um helgina það ætlar að mæta, þannig að það geti gert ýmislegt smálegt fyrir félagana. Það er orðið þannig líka að fólk stólar á að ég fari seint heim, því að ég fer oft í gymmið og mæti svo aftur á labbið til að klára tilraunir og annað áður en ég fer heim. Þannig að ég get kippt túpum út vatnsböðum fyrir fólk svo það þurfi ekki að hanga og gera ekki neitt í tvo auka klukkutíma.

Það mættu allir í vinnuna í gær nema ég, og ég var svo heppin að vinkona mín gat tekið húðsýni úr einni mús handa mér og sett það í formalín í fjarveru minni. Í dag eru allir í fríi nema ég og því kom það í minn hlut að hella ísópentan í rétta krukku, færa díalýsupoka á milli buffera og færa bakteríur úr 37°C hristingi í kyrrð og ró við 4°C, þegar ég mætti. Sumsé brjáluð samvinna.

Núna er ég hins vegar að mestu búin með labbvinnuna og er að gera heimaverkefni í erfðafræði. Jibbí, jei. Það var óvenjuskemmtilegt verkefni þessa vikuna, krefst mikilla pælinga og sköpunargáfu og svona. Fínt að standa samt upp annað slagið og skipta um etanóllausn á sýnunum mínum og svona...

Og að síðustu já: Gleðilega páska!

Posted by erna at 03:25 EH
Föstudagur, 9 apríl, 2004
Fasta á föstudegi?

Ég var spurð í morgun hvort að ég fastaði í dag af því að það væri föstudagurinn langi. Ehemm... ég átti bágt með að stilla mig, en sagði vinkonu minni að ég væri algerlega trúlaus og guðlaus manneskja. Sú sem spurði er nefnilega gyðingur og er ekkert búin að borða nema matzos me sultu í viku. Hún stelst reyndar stundum til þess að fá sér hnetusmjör, en það er víst ekki leyfilegt.

Reyndar var ástæða þess að hún spurði sú að kaþólsk kona sem ég vinn með hefur ekki borðað kjöt frá því á sprengidag og hún fastaði í dag til heiðurs frelsaranum.

Það er ótrúlega gaman að læra á svona fjölþjóðlegum stað. Það vóg þungt þegar ég valdi skólann að útlendingahlutfallið er frekar hátt í deildinni minni. Og ég sé ekki eftir því vali, ég er alltaf að læra eitthvað nýtt um framandi menningarheima. Vissuð þið til dæmis að á nýársdag kínverja á maður að klæðast rauðu, helst rauðum nærfötum? Og núna í vikunni sagði Tælendingurinn í hópnum mér að á hans heimaslóðum þættu nýfæddir músarungar mikið lostæti og væru taldir mikill "afródísíak". Á móti kemur að labbfélagarnir fræðast um súra hrútspunga og annað lostæti. Góð skipti, er það ekki?

Posted by erna at 10:45 EH
Að loki góðrar og annasamrar viku

Hvað er betra en að fara bara í gymmið að kvöldi föstudags hins langa, sem þó leið alveg ótrúlega hratt við tilraunastarfsemi. Við þurfum að fara snemma að sofa í kvöld, af því að við erum að fara í ferðalag með vinum okkar á morgun. Þannig að það verður bara heví wörkát og beint í bólið hjá mér.

Ferðinni er heitið inn að Montauk, á austasta hluta Long Island, en þar ætlum við að ganga smá spotta niðri í fjöru og freista þess að sjá seli. Eftir smá meira labb og hádegisverð, ætlum við í vínsmökkunarleiðangur, en það eru nokkrar góðar vínekrur þarna útfrá. Vínskápur okkar Marðar hefur heldur ekki náð að jafna sig eftir blackout kvöldið góða í ágúst, þannig að ef við smökkum eitthvað gott getur bara vel verið að við splæsum í nokkrar flöskur.

Páskadag ætla ég svo að verja alfarið á labbinu, sleppi sennilega magadansi og öllu, því að það eru þónokkrar spennó tilraunir sem þarf að byrja á og aðrar sem þarf að klára, auk þess sem ég þarf að gera heimaverkefni í erfðafræði og undirbúa fyrirlestur í sama fagi. Engin lognmolla sumsé, og alveg nóg að gera!

En núna ætla ég að vinna að því að verða mössuð og súpersetta smá úti í gymmi.

Posted by erna at 08:06 EH
Urrr

Af hverju finnst mér allir pistlar Björns Bjarnasornar FULLIR af hroka? Æ, æ, nú má hann greyið ekki vera í friði með sínar hæstaréttardómaraskipanir. Nú má ekki styggja karlaveldið ha, hann má brjóta jafnréttislög af því að Svavar Gestsson gerði það. Hvaða rök eru það? Og til hvers í ósköpunum að hafa kærunefnd jafnréttismála ef menn ætla bara að vera ósammála úrskurðum hennar og fara bara eftir þeim þegar það HENTAR. Ég segi nú bara ÁFRAM JÓHANNA! Mér sýnist hún vera að gera góða hluti...

Posted by erna at 09:19 FH
Fimmtudagur, 8 apríl, 2004
Fimmtudagur as usual

Fyndið, ég skildi ekki hvað bloggheimurinn væri eitthvað dauður í dag, en ég tek oft bloggrúnt yfir morgunmatnum áður en ég fer í vinnuna... Og þá fattaði ég allt í einu að það væri skírdagur í Evrópu...

Posted by erna at 08:41 FH
Sunnudagur, 4 apríl, 2004
Geymum dagsbirtuna fram á kvöld

Nú er erfiðasta vika ársins upp runnin. Í dag er Sunnudagurinn þegar við vöknum öll á sama tíma og áður, en klukkan segir okkur að hún sé meira en líkami okkar segir okkur. Og næstu dagar fara allir í að koma melatónínbúskapnum aftur í jafnvægi.

Fyrir svona morgunsvæfa manneskju eins og mig er þetta pínu erfitt. Ég væri mun frekar til í að vakna í myrkri allan veturinn heldur en að þurfa að ganga í gegnum svona tímahringl. En það er bara ég, og ég er skrítin af því að ég er alin upp á hjara veraldar.

Posted by erna at 10:41 FH
Laugardagur, 3 apríl, 2004
Ísland fyrir Íslendinga eldri en 24

Ó, jesús. Eru virkilega þrjú ár eftir af kjörtímabili núverandi ríkisstjórnar? Þegar ég les blogg Björns Bjarnasonar, veit ég varla hvort ég á að hlæja eða gráta.

Ef að ég skil orð Björns rétt þá hljóða lögin þannig að ef að útleningur undir 25 ára aldri giftist Íslendingi, geti hann ekki fengið dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar síns.

Svo að vitnað sé í orð Björns:

Hafi útlendingur fengið hér dvalarleyfi á öðrum forsendum en sem aðstandandi vegna hjúskapar, getur hann gengið að eiga Íslending, þótt hann sé ekki orðinn 24 ára. Tillaga mín snýst um það tilvik, þegar hjúskapur er forsenda dvalarleyfis og þá skal maki vera 24 ára til að fá hér dvalarleyfi sem aðstandandi - útlendingalögin heimila að sjálfsögðu útgáfu dvalarleyfis á öðrum forsendum.

Hann kvartar svo yfir því að Alþjóðahús hafi bent á að þetta stríddi gegn jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.

Ég sé bara engan veginn hvernig þetta getur staðist jafnræðisregluna, því að hér er verið að misjafna fólki sem annars er orðið lögráða, eftir aldri. Ef fólk hefur ekki fulla dómgreind fyrir 25 ára aldur, hvers vegna er lögræðisaldurinn þá 18 ára? Er það réttlætanlegt að taka svona grundvallarréttindi af fólki af því að það gætu aðrir misnotað þau?

Tökum sem dæmi par, íslenska konu og mann af erlendum uppruna. Þau hafa ákveðið að verja lífinu saman og að verja því lífi á Íslandi. En, þar sem maðurinn er aðeins 23 ára gamall geta þau ekki gengið í hjónaband til þess að hann fái dvalið á Íslandi með konunni sem hann elskar. Þannig hefur konan verið svipt þeim grundvallarrétti að fá að búa á sínu heimalandi með maka sínum. En, tjuh, eigum við nokkuð að vorkenna henni, hún getur bara reynt að redda honum vinnu á Íslandi, hjá fyrirtæki sem er til í að sponsora dvalarleyfi eiginmanns hennar. Ekki auðvelt mál, en fyrst hún er svona sérvitur að giftast útlendingi, er henni þá nokkur vorkunn?

Af hverju í ósköpunum er það svona mikill glæpur að giftast til þess að veita maka sínum dvalarleyfi? Og af hverju er fólki undir 25 ára aldri ekki treystandi?

Og svo kemur náttúrulega rúsínan í pylsuendanum hjá Birni, þar sem hann lýsir því yfir að hann sjái engin haldgóð rök á móti því að fólk sem biður um dvalarleyfi á Íslandi vegna fjölskyldutengsla við fólk sem þar býr, verði krafið um lífsýni til þess að sanna skyldleika sinn. Hin augljósu mótrök þess eru að fólk sem er í sömu fjölskyldu er ekki endilega blóðskylt, sbr. kjörbörn og kjöroreldra.

En mér finnst meginrökin hníga að því að mér finnst það svo mikill hroki að taka ekki mark á gildum skírteinum og vottorðum frá öðrum löndum, og svona til þess að vera viss, þá verði fólk að leggja fram lífsýni "til vara".

Þar að auki vakna ýmsar siðferðisspurningar upp, þegar við förum að krefja fólk lífsýnis. Ég ætla að vona að Björn hafi velt þeim fyrir sér, því lífsýnataka er ekki einfalt mál. Eitt það fyrsta mál sem mér dettur í hug er til dæmis að faðir einstaklings sem hefur dvalarleyfi á Íslandi ákveður að sækja um dvalarleyfi hér til þess að geta dvalið nærri barni sínu og barnabörnum. En vúps, við lífsýnatöku kemur það óvart í ljós að "sonur" hans er víst ekki hans. Hvað gerum við þá? Höfum við rétt á því að hnýsast í líffræðileg fjölskyldutengsl sem þessi á grundvelli þess að umrætt fólk vill búa í landinu okkar? Er það réttlætanlegt að við, sem fengum Íslenskan ríkisborgararétt í vöggugjöf setjum okkur á það háan hest?

Mér finnst stjórnvöld megi vara sig mjög á hvers kyns lífsýnatöku, hún er ekki eins einföld og ekki sú gullna lausn vandamála sem við kunnum að halda. Henni fylgir ábyrgð sem við megum ekki skorast undan, samanber dæmið hér að ofan, sem er aðeins eitt af mörgum.

Að lokum langar mig til að segja að ég er orðin svo afspyrnuþreytt á því að rök stjórnvalda skuli alltaf hníga að því að hitt og þetta sé svona í nágrannalöndum okkar. Og það er alltaf bara vísað í "nágrannalöndin" sem eru svo Ameríka eða Skandinavía eftir hentisemi. Á sama hátt reynir Björn að halda því fram að við getum nú ekki farið að hafa veikari ákvæði í okkar lögum en nágrannaþjóðir okkar. Ég bara spyr: Þurfum við alltaf að gera "eins og nágrannaþjóðir okkar"? Eru alltaf sömu lögmál í gildi hér? Getum við sem Íslendingar ekki hugsað sjálfstætt og sett lög sem henta okkur í okkar landi án þess að apa allt upp eftir öðrum þjóðum? Vissulega þurfum við að vera í takt við umheiminn, en þessi rök eru bara ekki nóg!

Posted by erna at 05:54 EH
Föstudagur, 2 apríl, 2004
Úúúúújeeeeee!!!!!!

Massastuð og dúndurdæmi! Nýju græjur Marðarins rokka feitt. Siggi seldi okkur magnara, sem ég gaf drengnum í afmælisgjöf og svo keypti hann hátalara notaða á íbei. O.M.G, ég er í flogi, búin að rúlla yfir nokkur lög af Ham, Placebo, The Smiths, Rammstein, NIN og Nick Cave, og ég verð að segja það að ég er nokkurnvegin búin að komast yfir sykursæta væmni fröken Jones í spilaranum á labbinu í dag. Við bara erum ekki alveg að koma okkur út um dyrnar, af því að það er svo gaman að prófa græjurnar. Við erum á leiðinni á Planet Sushi, einmitt til að borða sússí. Jömm, ég gæti borðað sússí í breikfast, lönds og tí. Það er spurning hvort að það verði eitthvað eftir af sússí þegar við loksins komum okkur út!

Posted by erna at 08:52 EH
Kvart og kvein

Ó, gvöð, ég er með svo allt annan tónlistarsmekk en labbfélagar mínir. Úff, ég er búin að ganga í gegnum Noruh Jones, Annie Lennox og Dire Straits syrpu í dag. Gvöð hvað það verður gott að komast heim að hlusta á almennilega tónlist með Mud, í nýju græjunum hans. Kvein...

Posted by erna at 07:11 EH
Dagur sem kenndur er við föstu

Ég svaf í tíu tíma í nótt , gersamlega uppgefin eftir svefnleysi undanfarinna nátta. Og nú ætti ég að vera til í tuskið, hress og endurnærð, en það er eitthvað slen yfir mér...

En það gengur ekki því að ég þarf að klára nokkrar tilraunir í dag.

Það var svaka gaman í gær. Stelpurnar komu til mín í Arts and Crafts. Sem er eiginlega bara svona saumó. Við höfum ekkert föndrað síðan 2002 á þessum kvöldum, hittumst bara allar að minnsta kosti einu sinni í viku og pöntum mat og spjöllum. Rétt í því sem við vorum að panta kom Mörður heim og Siggi með honum, með græjurnar hans Mödda. Svo komu Josh og Meagan systir hans til að borða með okkur, þannig að það var múgur og margmenni hjá okkur í gær og mikið hlegið og spjallað og dreypt á léttvíni. Að ekki sé minnst á bláberjaskyrtertuna sem ég gerði handa þeim og féll í góðan jarðveg. Æji, þetta var svo næs eitthvað að vera umkringd góðum vinum og bara slappa af.

En í dag eru það húðfrumurnar sem blíva, svei mér þá, ætlið það sé ekki best að bjóða þeim plast og sjá hvað setur!

Posted by erna at 10:53 FH