Ég sit hér fyrir framan tölvuna okkar heima í stofu og vinn verkefni í erfðafræði. Til þess að gera þetta aðeins áhugaverðara er ég með Cash í spilaranum og bjór við hliðina á mér. Það er nú reyndar frekar næshhh að sitja hér og sötra Pilsner og spá í erfðafræði aðskilnaðar litningapara í eggfrumum. Það var samt ekkert svakalega næs fyrr en ég opnaði bjórinn, ég væri nú samt frekar til í martini, en ég á ekki vermúð, þannig að bjór dugar í bili :Þ
Ástæðan fyrir því að ég er að þessu núna er einföld. Mig langar í einn frídag í vikunni, þannig að ef ég næ að klára þetta í kvöld þarf ég ekkert að læra á morgun, bara vinna í nokkra tíma og svo get ég farið niður í bæ og keypt mér nýja hlaupaskó, hangsað eitthvað og slæpst, farið í magadans og svo í mat til Adel. Oh.. næsssshh...
Eins og það er gaman á labbinu og þetta er góður kúrs sem ég er að taka, þá barasta verður maður líka að slæpast smá annað slagið.