Þessi færsla er fyrir hana Herdísi, en hana langar í malt. Hér er semsagt sýnishorn af nokkrum af þeim fjölmörgu malttegundum frá hinum ýmsu heimshornum sem eru í boði. Þetta er bara sýnishorn, það eru til að minnsta kosti þrjár eða fjórar tegundir í viðbót. Meira að segja ein eða tvær frá Ísrael. En það kom mér mjög á óvart að Ísraelar drykkju malt. Mér finnst það suður ameríska samt best, það er álíka sætt og það íslenska. Smella má á myndina til að sjá hana betur:
Því má svo bæta við að maltið er oftast að finna í bjórrekkanum í stórmörkuðum og stundum er slatti af áfengi í því, en oftast ekki.