Mánudagur, 26 janúar, 2004
Gott kvöld

Í kvöld er gott kvöld. Það sem veldur því er aðallega tvennt. Í fyrsta lagi, þá er ég að borða plokkfisk, sem út af fyrir sig væri nóg til að gera hvert meðalkvöld að afbragðsgóðu kvöldi. Í öðru lagi ákvað ég að sjúga upp í nefið og hætta að vorkenna sjálfri mér yfir því að eiga eitt valfag eftir og skella mér bara á kúrs í erfðafræði spendýra.

Eftir mikið hringl komst ég að því að allir auðveldu kúrsarnir væru annað hvort ekki kenndir, eða pössuðu ekki inn í prógrammið hjá mér, þar sem ég þarf að vera viðstödd fundi og fyrirlestra á nær hverjum degi vikunnar. Það er því tvennt til ráða. Annað hvort að bíða í ár og taka auðveldan kúrs á næsta vormisseri, eða bara að drífa í þessu, en taka tímafrekari kúrs í staðinn. Það síðasta sem ég vil gera er að vera á fjórða ári í náminu og þurfa að vera að hamast við einhver skilaverkefni þegar það eina sem ég vil er að klára rannsóknina mína. Ég verð bara að bíta í það súra epli núna að hafa ekki drifið þetta af í fyrra og bara kýla á hlutina.

Þess vegna ætla ég að verja kvöldinu í að lesa eftirfarandi greinar:

Sidow A, Bulotsky MS, Kerrebrock AW, Birren BW, Altshuler D, Jaenisch R, Johnson KR, Lander ES.
A novel member of the F-box/WD40 gene family, encoding dactylin, is disrupted in the mouse dactylaplasia mutant.
Nat Genet. 1999 Sep; 23(1): 104-7.

og

Ho AM, Johnson MD, Kingsley DM.
Role of the mouse ank gene in control of tissue calcification and arthritis.
Science. 2000 Jul 14; 289(5477): 265-70.

Og vona að ég verði eitthvað vitrari á eftir.

Posted by erna at 07:43 EH