Föstudagur, 23 janúar, 2004
Nörd, moi?

Oh. Tölvan át póstinn minn! Ég var búin að skrifa alveg óendanlega langan póst um labbfundinn minn í dag og hvað það var gaman og skemmtilegt að sýna gögnin mín og hvað allt væri gott og tjúllað og hvað það væri æðislegt að vera vísindamaður. En hér fáið þið bara stuttu útgáfuna í staðinn...

Fyrirlesturinn minn endaði á því að verða tveggja tíma langur, að meðtöldum öllum umræðum um gögnin, gagnrýni og tillögum að framhaldi, umræðum um fyrirbærið og svo framvegis. Ég var algerlega í skýjunum eftirá og kitlar þvílíkt í hendurnar og heilann að halda áfram. Ég er líka endanlega aftur komin í réttan ham, búin að finna hina einu sönnu Ernu, sem finnst fátt skemmtilegara en að tala fyrir framan hóp af fólki og útskýra og útskýra og spá og spekúlera.

Nördinn í mér titraði af gleði í dag, ég sver það.


Posted by erna at 12:47 FH