Þriðjudagur, 13 janúar, 2004
Íþaka

Við komum heim í gær eftir viðburðaríka helgi. Ferðin hófst með miklum látum á föstudag. Erna fór í vinnuna og ég beið fram að hádegi með að sækja bílaleigubílinn. Þegar ég var kominn með bílinn ók ég heim og byrjaði að hlaða farangrinum í bílinn. Það var ekki laust stæði í götunni þannig að ég doubleparkaði bílnum. Svo hófust hlaup inn og út með farangurinn. Eitt skiptið þegar ég kom út var lögreglukona við bílinn að skrifa sekt, það er víst ólöglegt að doubleparka. Ég spurði konuna hvað ég ætti eiginlega að gera, hvernig ég ætti að koma farangrinum í bílinn öðruvísi en að leggja bílnum svona. Fátt var um svör, annað en að ólöglegt væri að doubleparka. Ég varð frekar fúll. Jæja, ég hélt bara áfram að hlaupa inn og út en þegar allur farangurinn var kominn í bílinn og ég fór út til að tékka hvort nokkuð vantaði var bíllinn horfinn, farinn. Eftir um það bil hundrað símtöl kom í ljós að bíllinn hafði verið dreginn í burtu. Það tók síðan um þrjá tíma að borga sektina og sækja bílinn og við Erna lögðum af stað um níuleytið, en við ætluðum að fara af stað á milli þrjú og fjögur. Ekki góð byrjun.

Aksturinn til Íþöku gekk snuðrulaust fyrir sig og við fundum húsið hennar Herdísar fjótt. Þar sem við komum ekki til hennar fyrr en eftir miðnætti fengum við okkur bara nokkra bjóra og kjöftuðum og fórum í rúmið.

Á laugardeginum fórum við síðan snemma af stað og fengum okkur morgunverð á diner í bænum og gengum síðan um miðbæinn og skoðuðum okkur um.

Við fórum meðal annars í mollið á staðum sem er skemmtilegt, lítið og frekar óhefðbundið. Litlar verlanir sem selja listavörur og annað dót. Við gengum um Cornell campusinn og skoðuðum meðal annars íslenska bókasafnið sem er þar.

Bókasafið er ekki stórt en þar er samt gott úrval af bókum. Morgunblaðið kemur á safnið, sunnudagsblaðið er kannski ekki komið á laugardagskvöldi en samt er gott að geta kíkt í blaðið.


Eftir bókasafnið ókum við út úr bænum og kíktum á skemmtilegan foss. Um kvöldið átum við síðan á Moosewood Resturant. Erna og Herdís keyptu sér svuntur og stuttermaboli með Mossewood merkinu á meðan ég drakk Ithaca bjór. Síðan gengum við á gradstudent barinn í bænum og fengum okkur nokkra bjóra.

Á sunnudeginum fórum við í gönguskíðaferð á skíðasvæði rétt fyrir utan bæinn. Þetta var mikil hættuferð og ekki fyrir hvern sem er að fara þá leið sem við völdum. Hætturnar á leiðinni voru margar og við erum þakklát fyrir að hafa komist úr þeirri ferð óslösuð.

Um kvöldið átum við á Cajun matsölustað bæjarins.

Við fórum héldum af stað heim snemma á mánudagsmorgunn og vorum komin heim um hádegi. Góð ferð, kærar þakkir Herdís.

Posted by mordur at 12:08 EH