Föstudagur, 9 janúar, 2004
Kaldibær

Það er tuttugu og fjögurra stiga frost í Íþöku í augnablikinu. En, sem betur fer, enginn vindur. Spurning hvort maður eigi ekki að taka dúnúlpuna með!

Posted by erna at 08:17 FH
Íþaka

Júhú! Á morgun ætlum við að bregða okkur norður til Íþöku að heimsækja hana Herdísi stutthærðu! Við erum til í tuskið, búin að pakka að mestu, aðallega útivistargræjum og svona, en það lenti líka ilmvatn og maskari í töskunni. Hver veit nema maður fari líka út á skverinn..

Við ætlum að leggja af stað eftir hádegi á morgun og bruna sem leið liggur öppsteit, en það eru um 250 milur, sirka jafnlangt og frá Reykjavík til Akureyrar. New York fylki er nefnilega akkúrat jafnstórt og Ísland. En aðeins fjölmennara...

Við hlökkum ekkert smá til helgarinnar, bæði náttúrulega til þess að skipta um umhverfi og svona, en náttúrulega aðallega til þess að hitta hana Herdísi og sjá hvernig hún býr!

Posted by erna at 12:32 FH