Þriðjudagur, 13 maí, 2003
Feitur femínisti, það er ég =)

Jæja, Salvör er loksins búin að gefa betri skýringu á orðum sem hún lét falla á síðunni hennar Katrínar. Gott mál =)

Það sem mér finnst pínu grátbroslegt er hins vegar fólk sem kommentar á síðuna hjá henni með skæting og skítkast. Það er eins og það skíni í gegn hjá þessu fólki að það sé vonsvikið yfir því að hún skýrði mál sitt og að þetta hafi ekki verið meint sem hótun eftir allt. Pínu fúlt að hafa minna til að klína uppá okkur feminista, er það ekki? Pínu fúlt að geta ekki falið femínistahræðsluna á bak við það að einhverri okkar hafi orðið á að misstíga sig!

Ég verð að viðurkenna að mér brá þegar ég las ummæli Salvarar á síðu Katrínar. Mér fannst líka Salvör ekki taka af allan vafa um tilgang ummælanna þegar hún svaraði mér hér og annars staðar. Hún hefur fyrir mér hins vegar gert það núna og ég vona bara að ég sjálf hafi ekki gengið of langt í þessu máli. Sennilega var þetta allt einn stór misskilningur.

En gvuð, ég verð nú bara að segja það, svona í ljósi skítkasts og skætings sem femínistar hafa fengið á sig undanfarið. Mikið vil ég frekar vera svona dæmigerð femínistakjelling, náttúrulega örugglega feit og ljót líka og algerlega kynþokkalaus heldur en að vera ekki femínisti. Segir það ekki svolítið um andstæðinga okkar að það versta sem þau geta sagt um okkur er að við lítum örugglega ekki vel út?

Feitur femínisti, það er ég =)

Posted by erna at 10:48 EH
Búinn með þetta tíj eijj dót.

Jæja, þá er ég opinberlega búin að skila af mér öllum einkunnum og er laus við alla vælandi pre-meddara og mastersnema for gúdd. Ekki meiri kennsla hér næstu árin. Ég verð nú bara að segja það að það er ekki gaman að kenna fólki sem er að kaupa sér meistaragráðu fyrir svosem eins og sextíu þúsund dollara og enga vinnu. Oh, ég er vond kona. En kommon. Þriðjungur meistaranemanna skilaði ekki einu sinni af sér rannsóknarritgerðinni sem þau áttu að skrifa. Svona er þetta hérna í Amrígunni, þeir sem eiga pjeníng geta keypt allt, jafnvel námsgráður. Áður hélt ég að svona tíðkaðist bara á Indlandi....

Æj, ég ætti nú ekki að vera svona neikvæð. Ég er búin með þetta dæmi og er alveg einstaklega heppin að vera líffræðingur, fólk í öðrum fögum þarf að fara yfir próf á hverju misseri í að minnsta kosti fjögur ár af þeirra doktorsnámi. Í staðinn fæ ég bara að vinna meira á labbinu =) Ekki slæm skipti það. Hverjum finnst svosem ekki skemmtilegara að pína frumur en að fara yfir óskiljanleg próf. OMG... eitt kvart enn: Einn nemendanna þurfti meira að segja að koma til okkar og lesa prófið sitt upphátt af því að hann skrifaði svo illa að ég bara stautaði mig ekki fram úr skriftinni hans. Ég hélt næstum því að hann væri að skrifa híróglýfur, en þegar ég hugsaði mig betur um þá leit þetta eiginlega meira út eins og hebreska. Tengingin kom þegar hann trítlaði inn í stofuna til mín með litlu gyðingakollhúfuna á hausnum. Hvað sem þær nú heita... svona er ég nú fáfróð. Það er annar hver gaur með svona á hausnum hérna. Eiginlega pínu krúttlegt að sjá gaura í töffaraátfitti og svo með svona kollhúfu, en reyndar eru flestir kollhúfustrákanna klæddir eins og litlir pabbastrákar.... Úff, hvar endar þetta, það er ekkert samhengi í þessum skrifum hjá mér.

Eníveis, I'm elated. No more Molecular Immunology TAing!

Posted by erna at 12:10 FH