Sunnudagur, 9 nóvember, 2003
Helgin

Þetta er nú búin að vera alveg ágætis helgi barasta. Svona að mestu. Ég lenti á óvæntri gleðistund á föstudagskvöldið og hitti samnemendur mína yfir smá bjór, en málið er að eftir að ég skipti um labb, þá sé ég þau svo sjaldan, þar sem ég er "uptown". Ég hafði til dæmis aldrei borið augum nýju fyrsta árs nemendurna. Ég lærði líka nokkur orð í hollensku og talaði við gaur frá Sýrlandi sem var ljóshærður og bláeygður. Svo bauð Adelene í mat og ég var ekki komin heim fyrr en um miðja nótt. Þess vegna fór ég seint á fætur í gær, fór með Mödda í bröns til Adel og Emily og svo í vinnuna að klára suðurblettunina mína og einangra smá DNA.

Um kvöldið kíktu svo Josh og Melissa á okkur og við pöntuðum mat saman og spjölluðum yfir rauðvínsglasi og þeir sem vildu fengu sér Brennivín. Ég ætlaði mér hins vegar að vera svo dugleg að fara snemma að sofa til að nýta sunnudaginn til náms að ég varla snerti áfengið.

En allt kom fyrir ekki og ég var fárveik í alla nótt. Ég get eiginlega ekki ákveðið hvort að þetta væri svona svakalegt matarofnæmi, eða hvort að það hafi verið einhver padda í matnum sem við pöntuðum. Ég ákvað hins vegar að þegar mig fór að verkja í lungun að þetta hlyti að vera ofnæmi. Ekki skemmtilegt það! Ég svaf því fram að hádegi, og lufsaðist hér eitthvað um, náði nú alveg að vinna í nokkra klukkutíma í verkefninu mínu, og hringdi í mömmu til að óska henni til hamingju með afmælið, sem var í síðustu viku.

Mér líður hins vegar betur núna, akkúrat þegar það er kominn tími til að fara að sofa. Ég er pínu svekkt yfir því að öll lærdómsfyrirheit helgarinnar hafi farið í vaskinn, en kannski næ ég bara að lesa meira um næstu helgi.....

Posted by erna at 10:47 EH