Jæja, það beið mín smá glaðningur þegar ég kom heim. Ég fékk meistaragráðuna senda í pósti í dag. Þetta er næstumþví eins og að hafa fengið blessaða gráðuna í seríóspakka, eins og ég hef áður sagt. Ég var bara ekkert búin að spá í þetta síðan ég fattaði að ég hafði gleymt að tilkynna skólanum að ég væri alveg til í að fá master í haust.
Ég er víst líka búin að vera meistari í fimmtán daga, hvorki meira né minna, en ég bara vissi ekkert af því. Bömmer maður.