Sunnudagur, 5 október, 2003
Stutt er flottast

Ég dreif mig loksins í klippingu í dag, enda tími kominn til, ég var næstumþví dragandi hárlufsurnar á eftir mér...

Ég hringdi því í Dramatics og ætlaði að panta tíma hjá eina klipparanum sem hefur virkilega klippt mig almennilega hér í borginni, henni Gemini. Mér brá því allsvakalega þegar afgreiðsludaman sagði mér að hún væri barasta hætt hjá Dramatics. Og auðvitað var ekki hægt að toga upp úr henni hvar hún Gemini ynni núna.

Nú voru góð ráð dýr. Ég vildi ekki fara aftur til Dramatics, því að fyrir utan Gemini eru aðrir klipparar þar algerir strípu-pusherar, maður lendir jafnvel í að þræta um það hvað eigi að gera við hárið á manni. Það er ekki alveg auðvelt að útskýra það fyrir hinum meðal-ameríska klippara að mér finnist strípur ekkert svakalega flottar, eiginlega bara frekar klént dæmi, án þess að vera dónó.

Eftir smá umhugsun ákvað ég að fara bara aftur á aðeins dýrari stofu, Scott J. þó að það væri sko ekkert garantí á betri klippingu. Ég hringdi þangað og bað um einhvern sem væri ekki óhræddur að klippa mig mjög stutt og fékk tíma korteri seinna. Ég rauk náttúrulega út, með smá hnút í maganum yfir að þurfa kannski að koma heim klukkutíma seinna með einhverjar fáránlegar lufsur á hausnum, eða kannski bara lítandi út eins og loðaldin.

Mér fannst heldur ekki vita á gott að gaurinn sem ég átti pantaðan tíma hjá virtist frekar svona fýldur. Hann sat eitthvað svo hlussulega á kolli þarna, svona frekar frjálslega vaxinn og hreyfði sig eitthvað svo luralega. Ég hefði einhvern veginn séð hann betur fyrir mér sem afgreiðslumann í kaffibúðinni á neðri hæðini, Starbucks.

En ég herti upp hugann og sagði honum að vera bara óhræddan við að klippa mig virkilega stutt, frá eyrunum, knallstutt að aftan og svo framvegis. Hann var nú ekki ræðinn, stundi upp úr sér eftir korter hvort að ég væri að fara að gera eitthvað spennandi um kvöldið. Njéih.. bara undirbúa fyrirlestur sko, læra heima, en þú? -No, I'm not doing anything exciting, I'm a boring person.....

En klippingin var alveg hápunktur dagsins. Ég er svo sæt núna með stutta flotta strípulausa hárið mitt. Og svo var þetta ekkert svo dýrt, þrjátíuogsjö fyrir klippinguna, fjórir dollarar í tips fyrir hárþvottastelpuna og svo fimmtán í tips handa Nicolai. Og nú er bara að vona að hann haldist í vinnu þarna svo að ég geti farið aftur þangað í næsta mánuði!

Posted by erna at 12:53 FH

Ég dreif mig loksins í klippingu í dag, enda tími kominn til, ég var næstumþví dragandi hárlufsurnar á eftir mér...

Ég hringdi því í Dramatics og ætlaði að panta tíma hjá eina klipparanum sem hefur virkilega klippt mig almennilega hér í borginni, henni Gemini. Mér brá því allsvakalega þegar afgreiðsludaman sagði mér að hún væri barasta hætt hjá Dramatics. Og auðvitað var ekki hægt að toga upp úr henni hvar hún Gemini ynni núna.

Nú voru góð ráð dýr. Ég vildi ekki fara aftur til Dramatics, því að fyrir utan Gemini eru aðrir klipparar þar algerir strípu-pusherar, maður lendir jafnvel í að þræta um það hvað á að gera við hárið á manni. Það er ekki alveg auðvelt að útskýra það fyrir hinum meðal-ameríska klippara að mér finnist strípur ekkert svakalega flottar, eiginlega bara frekar klént dæmi, án þess að vera dónó.