Fimmtudagur, 18 september, 2003
Hvalspek í matinn...

Það er gaman að sjá að það eru ekki allir Kanar jafnþröngsýnir þegar kemur að hvalveiðum. Loksins viðurkennir einhver alla hræsnina sem er í gangi.

Posted by erna at 10:20 EH
Veður og vindar og aðrar náttúruhamfarir

Vindinn er aðeins að herða hérna á Manhattan, en það er spáð aftakaveðri í nótt, þegar Isabella kemur í heimsókn. Samt verður sennilega ekki jafngeðbilað veður og er í Suðurríkjunum núna.

Það var samt frekar fyndið seinnipartinn, því að það var orðið frekar hvasst þegar tvær stelpur af labbinu voru að fara heim. Það var samt ekkert kalt, tuttugu stiga hiti, og bara hvasst, ekki svakalega hvasst. Og þær kveinuðu og börmuðu sér yfir að vera ekki með jakka, eins og þær væru að fara út í blindbyl.

Svo þegar við vorum bara nokkur eftir á labbinu um sjöleitið horfði Tævanski póstdokkinn á mig með hálfgerðri skelfingu í augunum: -Hjólaðirðu nokkuð í vinnuna, Erna? Ég flýtti mér að fullvissa hana um að ég væri ekki búin að fá nýja dekkið á hjólið í pósti, þannig að ég hefði ekki getað hjólað.
Þá bætti hún við: -Já, það er náttúrulega líka orðið svo kalt þessa dagana að þú hjólar kannski ekki mikið upp úr þessu. (eh.... kalt, já kannski á Tævanskan mælikvarða; tuttugu gráður, en skýjað!). Það tísti náttúrulega í mér og ég skemmti mér við að segja henni frá því að ég ætti nagladekk á hjólið mitt og að mér þætti gaman að hjóla í snjókomu og ætlaði nú bara að halda áfram að hjóla í vetur.

Ég hef stundum frekar gaman af því að vera Íslendingurinn á labbinu, af því að alltaf þegar það er heitt, þá tékka þau á því hvernig mér líður og svo alltaf þegar það er mjög kalt, þá spurja þau mig hvort að mér sé kalt. Og ef mér er kalt, þá eru þau sko alveg: -Naunaunau, það hlýtur að vera kalt fyrst Ernu er kalt! En ef mér finnst ekkert svakalega kalt, þá hafa þau mjög gaman af því líka, ranghvolfa augunum í vantrúnaði, og ég sé alveg fyrir mér þanka þeirra þegar þau reyna að ímynda sér veðrið á Íslandi.

Og svo þegar ég fór að segja þeim frá því að þegar það kæmu eldgos, þá drifum við okkur öll útúr bænum til að fara og skoða, varð þeim nú öllum lokið.

Posted by erna at 09:49 EH