Miðvikudagur, 17 september, 2003
Iðrahiti á labbinu

Dagurinn í dag var eiginlega alveg frábær. Brjálað að gera á labbinu, gersamlega allt á hvínandi, bullandi fart, mótefnalitaði 40 sýni fyrir FACS í fimm mismunandi kombínasjónum og hlustaði á Cash, Waits og Cave á meðan. Það var eiginlega pínu sorglegt að hlusta á Cash aftur svona í fyrsta skipti eftir að hann lést. Tommi Waits sér nú alltaf fyrir sínu og Nick Cave klikkar náttúrulega ekki, það voru allir ýkt spenntir að vita hvað ég væri að hlusta á af því að ég var öll á iði, en málið er að ég hlusta yfirleitt ekki á tónlist í græjunum á labbinu af því að það þekkir yfirleitt enginn hérna tónlistina sem ég hlusta á og finnst hún eiginlega bara frekar skrýtin. Það kom mér því ekkert á óvart að það vissi enginn hver Cave væri.

Ég sver það ég hitna öll að innan þegar ég hlusta á Nocturama. Þessi tónlist er svo nautnafull, ástríðufull og sexý, hlaðin einhverri ótrúlegri kynngi. Nick Cave lagði mig í álög þegar ég sá hann á sviði á Hróarskeldu '97 og ég held að álagafjötrarnir hafi endanlega umvafið mig þegar ég sá hann í sumar í Roseland Ballroom. Úff, maðurinn er prótótýpa fyrir kynþokka, þvílík er útgeislunin...

... þannig að ég var bara í þvílíkum gúddí í dag, hlý að innan og litaði frumur í litlum túpum og dillaði mjöðmunum í takti við meistarana Waits, Cash og Cave.

Posted by erna at 11:02 EH
Isabel á leiðinni

Það er varla fjallað um annað en fellibylinn Isabel í fréttum í dag. Ég get varla beðið, ég hef aldrei upplifað fellibyl áður er alveg tilbúinn að prufa það. Come on Isabel, show me what you got!

Posted by mordur at 05:46 EH