Hvad i værden er det her for noget? Jeg har da bare aldrig set det der produkt för! Hvað er Kipper snacks? Og hvað er íslenski fáninn að gera á dósinni?
Þegar vísindaferilinn fer í köku, ætla ég að gerast kokkur. Það skemmtilegasta sem ég geri er að elda. Mér finnst svo gaman að elda góðan og hollan mat handa mér og mínum. Ég sé mig líka alveg fyrir mér þegar ég verð orðin stór, verjandi öllum laugardags og sunnudagseftirmiðdögum eldandin ofaní fjölskylduna mína.
Ég gerði það reyndar líka alltaf þegar ég var ekki í skóla síðast. Þá bakaði ég venjulega brauð á laugardagseftirmiðdögum og eldaði svo eitthvað gómsætt til þess að borða með brauðinu. Núna geri ég það alveg, en ver ekki alveg jafnmiklum tíma í það.
Mér finnst líka alveg svakalega gaman að blaða í uppskriftabókunum mínum og ákveða hvað ég ætli að elda næstu vikuna þannig að ég geti pantað allt hráefnið fyrirfram. Þá get ég bara mætt heim og eldað, þarf ekkert að pæla í því að kaupa í matinn seint á kvöldin.
Núna er ég að gera kjúklingabaunakarrí með brúnum hrísgrjónum, jömmí.
Og ég er að hugsa um að verja kvöldinu í að ákveða hvað ég ætla að elda í næstu viku (já ég er geðbiluð). Þannig get ég pantað allt á Fresh Direct í kvöld og fengið það sent á laugardaginn. Jömmí.
Ef svo ólíklega vill til að það sé farið að selja butternut squash á haustin heima á Íslandi, þá mæli ég með því í allskonar pottrétti. Maður þarf bara að skera það í tvennt og hita í örbylgjuofni í svona tuttugu mínútur, og svo getur maður bara skúbbað því inn úr skinninu, sett í matvinnsluvél og maukað og skellt í alls konar rétti. Þetta er algerlega í uppáhaldi hjá mér núna =) Það fer mjög vel að krydda squashið með karrí, eða bara salti og pipar og smá chilli.