Fimmtudagur, 11 september, 2003
Rústaðessu náttla...

Ehm.. næst þegar ég er í einhverju stresskasti yfir labbfundi eða fyrirlestri, þá verð ég nú bara að muna svona í eitt skipti fyrir öll hvað ég á auðvelt með að halda svona presentasjónir og líka, hvað mér finnst það bara ógisslega GAMAN!

Labbfundurinn fór semsé mjög vel og það voru allir svaka mikið að pæla í gögnunum mínum og fólk var mjög áhugasamt um bakgrunnsfyrirlesturinn sem ég hélt, en ég er að fást við verkefni í allt öðru módelsystemi en aðrir á labbinu vinna við. Að minnsta kosti í einu verkefnanna minna, þar sem módelsystemið er húð, en aðrir vinna í ónæmiskerfinu.

Ég var virkilega ánægð með allt fídbakkið sem ég fékk og Kathryn var svakalega ánægð líka. Oh... alltaf gaman þegar það gengur vel sko!

Og nú er stefnan tekin út að borða og að fá sér nokkra bjóra með Íslendingum á Telephone Bar, en þangað hef ég ekki komið síðan í maí, og Möddi ekki síðan í nóvember í fyrra. Stuð! Íslendingar eru svo skemmtilegir alltaf hreint =)

Posted by erna at 06:35 EH
Bloggur?

Gawd, mér finnst svo krúttlegt þegar fólk segir bloggur í staðin fyrir blogg. Það er eins og það séu tvær útgáfur af orðinu í gangi, en svona flestir nota hvorugkynið. Enda ekkert sanngjarnt að blogg sé karlkyns, er það?

Posted by erna at 02:40 FH