Fimmtudagur, 31 júlí, 2003
Fyrsti í skóla

Þá er fyrsta deginum lokið. Hann var langur og frekar súr, en vonandi kemur þetta til með að batna. Ég hlustaði á þrjá stutta fyrirlestra um skólann og þetta námskeið sem ég er að byrja. Eftir hádegi var síðan próf. Þetta próf er í raun endurtekning á TOEFL og var frekar langt, 3 tímar, og leiðinlegt. Ég er ekki alveg að sjá tilganginn með því að láta fólk taka þetta próf en eitthvað var verið að hóta því að láta okkur taka það aftur eftir að námskeiðinu ljúki og fá þannig samanburð. Það verður spennandi.
Mér líst bara vel á skólann, aðalbyggingin er ný og lýtur bara vel út og öll aðstaða virðist vera til fyrirmyndar. Ég býð spentur eftir framhaldinu.

Posted by mordur at 04:35 EH
Leeeeti

Já, nú er Mörður kallinn farinn í skólann og ég sit hér eftir heima og bara nenni ekki að fara á labbið.

Ég er virkilega á þörfinni fyrir smá sumarfrí, þetta bara er ekki að ganga... En það eru bara nokkrar vikur enn og svo förum við í frí. Við stefnum á að fara til Kaliforníu eða Arizona eða eitthvað skemmtilegt. Og náttúrulega ætlum við í göngu. Kemur ekki annað til greina. Mörður verður líka að vígja allar nýju útilegugræjurnar sem hann fékk í afmælisgjöf!

Jæja, ætli ég verði ekki bara að drífa mig af stað, hjólið er farið að reka á eftir mér...

Posted by mordur at 08:30 FH
Miðvikudagur, 30 júlí, 2003
Supergrass

Mér var sagt að Supergrass væri létt popp-rokk sveit. Mér þótti Supergrass vera þétt og vel rokkandi band. Ég, Erna og Einar Freyr skemmtum okkur öll mjög vel.

Takk Siggi.

Posted by mordur at 11:11 FH
Þriðjudagur, 29 júlí, 2003
Mættur á svæðið

Jæja þá er maður mættur aftur á svæðið. Ferðin gekk vel og INS menn voru ekki með neina stæla. Best fanst mér þó að INS gaurinn sem fór yfir pappírana mína talaði varla stakt orð í ensku og gat því ekki spurt mig neinna spurninga. Það hefur ekki gerst áður. Homeland security klikkar ekki.
Annars er ég bara að koma mér fyrir á meðan Erna er í skólanum. Ég hef það einhvern vegin á tilfinningunni að það hafi ekki verið gert ráð fyrir mér í íbúðinni undanfarnar vikur. Mér hefur eiginlega bara verið bent á að fara í IKEA ef ég er ekki ánægður með lítið hillu og skápapláss. IKEA here I come. Maður verður jú víst bara að bjarga sér, hér.
Í kvöld ætlum við á tónleika með hljómsveitinni Supergrass á Irving Plaza en á undan ætlum við að fá okkur eitthvað gott að borða á einhverjum góðum stað.

Posted by mordur at 05:00 EH
Mánudagur, 28 júlí, 2003
Spenningur

Jeijjjjjjjjjjj......... Möddi kallinn er barasta alveg að koma. Hann lenti fyrir tíu mínútum síðan og núna er hann sennilega í röðinni í Immigration eftirlitinu á JFK. Betra að hafa allt "homeland security" á hreinu.... Ætli hann verði ekki kominn heim klukkan átta. Júhú!

Posted by erna at 07:01 EH
Matarboð

Vá, ég er gersamlega með mat út um eyrun, ég er svo södd.

Stelpurnar kíktu í heimsókn í kvöld og ég og Adelene elduðum matinn sem við fengum sendan frá Fresh Direct.

Við elduðum ofnbakaðan þorsk á blaðlauks- og tómatbeði með capers og timian. Meðlætið var spínats vinagriette, bakaðar kartöfluskífur penslaðar með olíu, paprikudufti og kúmmin og fylltir sveppir.

Í eftirrétt voru svo ávextir á teinum, baðaðir í guavamauki. Ávextirnir voru jarðaber, vínber, hunangsmelónur og ferskur ananas. Ég þarf varla að taka það fram að allur maturinn var úr Moosewood matreiðslubókunum, en ég og Adelene erum miklir aðdáendur þeirra bóka. Ég hef reyndar kynnt þessar bækur fyrir mjög mörgum vina minna, af því að ég kynntist þeim þegar ég borðaði ekkert kjöt fyrir nokkrum árum og undantekningalaust slá þær í gegn.

Með matnum sötruðum við svo hvítvín frá Long Island og Frakklandi og sangría með eftirréttnum.

Nammi, namm.

Það urðu heldur engin stórslys í eldhúsinu, en ég venst því seint að baka mat í gasofni. Ég er svo vön að setja það neðst sem á að fá minnstan hitann, en það er alveg öfugt í ofninum mínu þar sem gasloginn er neðst.

Um næstu helgi erum við svo boðin í mat til Adelene, þegar hún notfærir sér 50 dollara tilboðið sitt frá Fresh Direct. Ég get ekki sagt annað en að ég hlakki til.

Posted by erna at 12:18 FH
Sunnudagur, 27 júlí, 2003
Það sem má ekki segja við doktorsnema...

Þetta doktorsnámsdæmi er mjög spes svo ekki verði annað sagt. Yfirleitt heldur fólk að maður sé í skóla í hefðbundinni merkingu þess orðs, þ.e. að maður fari í tíma og læri svo heima og geti því hagað tímanum eins og hentar. Einnig spyr fólk oft hvað námið sé langt og á mjög erfitt með að meðtaka það að það sé misjafnt eftir einstaklingum. Ég reyndar hélt það sjálf að þetta tæki bara fimm ár þegar ég kom hingað, en hef svo komist að öðru. Og það á ekki bara við um líffræðinema heldur flesta doktorsnema.

Ég ákvað því að búa til lista yfir það sem borgar sig ekkert að vera að spurja okkur eilífðarstúdentana að:

1. Ætlarðu að vinna heima á Íslandi í sumarfríinu?
Svar: Ég fæ næstum ekkert sumarfrí, kannski viku sko. Ég er nefnilega að vinna á rannsóknarstofu að doktorsverkefninu mínu og það er ætlast til þess að við vinnum 50 vikur á ári.

2. Ertu að fara á labbið, en það er laugardagur!
Svar: Já, frumurnar mínar / mýsnar mínar spurja ekkert að því hvaða dagur er.
Eða á ensku: "I have small living things depending on me in lab".
Eða: Vísindin stoppa ekkert um helgar sko, og svo er ég nörd, og finnst þar af leiðandi gaman í vinnunni.

3. Ertu búin í prófum?
Svar: Ég tek næstum aldrei próf sko, en ég er að verða búin að fara yfir prófin hjá öllum BA nemunum. Námið mitt skiptist eiginlega ekki í annir.

5. Hvernig gengur í skólanum?
Svar: Þú meinar hvernig gengur rannsóknin þín? Það er mjög erfitt að segja til um það. Vonandi ágætlega, sko, en það kemur sennilega í ljós eftir eitt til tvö ár, og vonandi verður enginn keppinautanna búinn að birta niðurstöður úr samskonar rannsókn áður en ég næ að gera það, því að þá verð ég að byrja upp á nýtt.

4. (Hættulegasta spurningin af þeim öllum, getur á slæmum degi valdið taugaáfalli hjá verslings doktorsnemanum): Hvað áttu mörg ár eftir af náminu?
Svar: Ég hef ekki hugmynd um það. Í minnsta lagi fjögur, en vonandi ekki meira en sjö ár. Það fer sko allt eftir því hvað ég verð dugleg að vinna, hversu heppin ég verð og svo náttúrulega hvenær leiðbeinandanum mínum finnst ég vera búin. Ég fæ ekki að útskrifast fyrr en henni finns ég vera orðin nógu klár vísindamaður.

Af þessum lista má ætla að það sé ekkert gaman að vera doktorsnemi. En það er barasta alveg mjög skemmtilegt, sérstaklega ef maður er heppinn með verkefni og svona. Málið er bara að þetta er ekki eins og að vera í skóla. Vinnudagarnir eru langir og oft ekkert helgarfrí, en á móti kemur að vinnan er mjög gefandi og skemmtileg. Það besta við líffræðina er að maður notar bæði heilann og hendurnar í vinnunni allan daginn. Það er ekkert smá gaman að hugsa upp tilraunir og tilgátur og prófa þær og allt það. En það er bara svo mikil óvissa þegar maður er að vinna svona rannsóknarvinnu. Af því að maður hefur ekki hugmynd um hverjar niðrustöðurnar verða. Það er einmitt vegna þessarar óvissu sem maður er að vinna þessa vinnu, og þess vegna er svo erfitt að svara því hvernig gangi í skólanum.

Posted by erna at 02:45 EH
Fimmtudagur, 24 júlí, 2003
Ljúfa, ljúfa, ljúfa líf....

Ég nýt lífsins í botn þessa dagana... Það er bara eitthvað svo gaman að vera til. Endalaust útstáelsi með stelpunum, línuskautar, líkamsrækt og alveg óendanlega skemmtileg vinna. Það er alveg svakalega gaman að vinna á labbinu þessa dagana, kannski af því að núnar er ég í algeru jafnvægi, búin að skipuleggja verkefnið mitt og engir fyrirlestrar fyrr en ellefta september þegar ég held labbfund.

Og svo er bara stuð framundan. Vinna um helgina, en auk þess líka matarklúbbur með stelpunum, en við ætlum að skiptast á að panta frá Fresh Direct og nota okkur 50 dollara ókeypis ferskmeti til þess að elda fyrir hverja aðra. Ég ætla að elda á sunnudaginn, þannig að það verður aldeilis líf í tuskunum!

Og svo náttúrulega eftir bara nokkra daga kemur kallinn. (Hehehe... mamma þetta var bara fyrir þig.....). Ég trúi því eiginlega ekki að það séu liðnir tvöhundruð dagar síðan Mörður fór.

Posted by erna at 09:50 EH
Þriðjudagur, 22 júlí, 2003
Fjarsýni

Vá... nú er langskólaganga mín farin að bitna á mér og ég er farin að vera fjarsýn langt fyrir aldur fram. Það er víst ekki óalgengt að fólk sem er lengi í skóla og reynir því mikið á augun við lestur þurfi að byrja að nota gleraugu fyrr en ella.

þegar ég var að skrifa færsluna hérna áðan fattaði ég að ég er komin á stig tvö í því að sjá illa á tölvuskjáinn. Ég er búin að píra augun á skjáinn svona síðan í desember, en núna uppgötvaði ég að ósjálfrátt ýti ég tölvunni eins langt frá mér og ég get. Sumsagt, ég er orðin fjarsýn. Ætli ég verði ekki bara að fjárfesta í pæjugleraugum til þess að nota fyrir framan tölvuskjáinn....

Posted by erna at 11:56 EH
Bara fimm dagar.. og ég þarf að taka mig á.......

Vá, ég er ekki viss um að Merði verði skemmt þegar hann kemur aftur. Málið er nefnilega að mér hefur farið alveg svakalega aftur í umgengni um heimilið síðan hann fór. Sko, það er ekki subbulegt hjá mér eða neitt, það er alltaf svakalega fínt og svona, enda mikill munur á því þegar ein manneskja býr í svona lítilli íbúð og þegar tveir henda dótinu sínu út um allt. Hins vegar er fullt af hlutum sem ég er farin að gera í meira mæli undanfarið og verð eiginlega að fara í fimm daga afvötnun til þess að kallinn flýi ekki heim aftur um leið og hann stígur fæti hingað inn:

1. Ég sef þversum í rúminu.

2. Þegar ég vaska upp hrúga ég öllu í uppþvottagrindina án þess að þurrka upp pottana og svona og ganga frá (Mér finnst þetta reyndar vera ákveðinn talent, sem mér áskotnaðist þegar ég var au pair, sko að ná að hrúga nær öllu leirtauinu og pottunum í grindina án þess að nokkuð detti. Það finnst ekki öllum heimilismeðlimum þessi talent vera óviðjafnanlegur.)

3. Ég geymi hjólið mitt upp við baðherbergisdyrnar, næstumþví í eldhúsinu og algerlega fyrir framjágangandi, og er þar af leiðandi sjálf alltaf með dekkjafar á sköflungnum, ekki mjög gott fyrir sjóndapra sem eiga leið á klóið snemma á morgnana.

4. Ég hlusta á þungarokk í botni á kvöldin.

5. Ég fer allt of sjaldan út með ruslið (ehm.. ég á ekki von á því að það breytist... sérstaklega ekki þegar ég fæ mann í málið).

6. Ég er búin að fylla allt skápapláss með fötum af mér.

7. Baðherbergishillan er stútfull af stelpudóti.

8. Allir "Favorites" linkarnir á tölvunni eru mínir.

9. Það eru skór út um alla íbúð.

10. Ég pissa með klósettdyrnar opnar.

11. Sjónvarpið er komið út í horn og ég man ekki hvað ég gerði við allar fjarstýringarnar.

Það er greinilegt að ég þarf að taka mig á og gera heimilið aðeins Marðarvænna, svo að mér haldist á karlinum í þetta skiptið.

Posted by erna at 11:47 EH
Mánudagur, 21 júlí, 2003
Talandi um frændur...

Óli Gneisti skrifar um frændur sína sem hann fann með Íslendingabók. Það leiddi hugan minn að Andrew, sem er frá Kanada og er giftur konu sem ég þekki í gegnum vinnuna. Andrew er nefnilega frændi minn og sennilega ykkar allra sem lesið þessa færslu.

Málið er það að hann varð allur uppveðrarður þegar hann frétti af því að ég væri Íslendingur, því að amma hans var íslensk, en hún fluttist búferlum til Kanada á sínum tíma. Svo var ég einhvern tíman í partýi með Andrew og hann fer að tala um það að langamma hans hún Halldóra hafi verið langlífust allra Íslendinga fyrr og síðar. Ég náttúrulega brosti við og sagði: "Oh, so Halldóra Bjarnadóttir was your great -grandmother!" Ég vissi ekki hvert hann ætlaði, hann var svo frá sér numinn yfir því að ég vissi hver langamma hans hafði verið og að ég vissi meira að segja hvers dóttir hún væri.

Nokkrum dögum síðar hitti ég hann svo aftur og sagði mér að mamma sín hefði verið himinlifandi að frétta að hann hefði hitt konu sem vissi hver Halldóra var.

Ég náttúrulega lét ekki þar við sitja, heldur rakti ættir okkar saman í Íslendingabók og gaf honum útprentun. Við eigum sameinginlegan forföður tíu ættliði aftur, sem verður nú bara að teljast nokkuð gott, fyrst að það eru nokkrar kynslóðir síðan hans fólk fluttist af landi brott.

Í hvert skipti sem ég hitti hann núna segi ég: "Hæ, frændi... It's not every day you meet your cousin on the streets of New York, is it!" Alger aulabrandari, en hvað um það, þetta er nú pínu magnað svona að geta rakið ættir sínar saman við fólk sem maður hittir svona í útlandinu.....

Posted by erna at 12:23 FH
Laugardagur, 19 júlí, 2003
New York gerist í Subwaynum

Það má segja að slagæð borgarinnar sé subway, eða neðanjarðarlestin. Ég var að hugsa um það í dag þegar ég tók lestina frá 168 Stræti á Broadway, þar sem ég vinn, niður á Christopher street, sem er um 160 "blokkum" sunnar.

Nyrðst er ég oft eina hvíta manneskjan í lestarvagningum, afgangur farþeganna er annað hvort blökkumenn eða fólk af suður-amerískum uppruna. Þegar að Columbia kampusnum kemur, bætast venjulega við hvítir krakkar á háskólaaldri og svo enn sunnar fer að koma inn fólkið sem býr á Upper West Side, venjulega hvítt fólk af millistétt.

Niðri í Greenwich Village, þar sem ég fór út, fer oft heldur ekki fram hjá manni að þar um slóðir býr mikið af samkynhneigðu fólki. Sumsagt sýnishorn af flestum mismunandi þjóðfélagshópum borgarinnar á stuttum tíma. Nema kannski ríka liðinu.

Á tímabili sat beint fyrir framan mig suður-amerískur maður með hálflufsulegt svart sítt hár og svaf. Við hliðina á honum sat eldgömul kona með hárkollu í skræpóttum kjól og rauðum skóm með risastór gleraugu og starði á auglýsingaskiltin í lestinni. Við hliðina á mér stóð par og talaði spænsku og börnin þeirra öskruðu og görguðu. Flestir í vagninum reyndu að láta eins og þeir tækju ekki eftir því og störðu að mesta mætti tómlega framfyrir sig, en miðaldra hvít kona með sem var að lesa nýjasta heftið af "The New Yorker" horfði með vanþóknun á föðurinn eftir háværasta öskurkast annars stráksins. Rétt í því kom betlari inn (það þarf varla að taka það fram að hann var svartur), og hristi pappaglas með klinki og bar sig aumlega. Það var orðið enn erfiðara fyrir fólk að láta eins og það tæki ekki eftir neinu mitt í öllum hávaðanum og ringulreiðinni.

Rétt eftir þetta stöðvaði lestin þó á Times Square og vagninn tæmdist að mestu og inn komu svo nýjir farþegar, flestir greinilega túristar, af amerískum uppruna þó. Það mátti heyra af hreimnum og sjá á vaxtarlaginu, sem var mun frjálslegra en hjá hinum vísitölu - "New Yorkerum".

Það er oft pínu þreytandi að fara í neðanjarðarlestina hér, vagnarnir eru oft troðnir og maður lendir í misskemmtilegum uppákomum. En ef maður er hins vegar í skapi fyrir smá mannfræðistúdíu, þá er það sko hin mesta skemmtun.

Posted by erna at 10:22 EH
Fimmtudagur, 17 júlí, 2003
Ljúúúúúúúft.

Það er ljúft að vera til þessa dagana. Bara beina brautin í vinnunni, engir fyrirlestrar (sem ég þarf að halda sjálf) fyrr en í september, og bara allt að gerast. Allt í einu er orðið brjálað að gera í báðum verkefnunum mínum. Ég fíla það nú eiginlega bara alveg í botn, þetta er líka svo fjölbreytt, að sinna músunum og frumunum, læra allskonar tækni við að rannsaka húð, genótýpera og.. og.. og..

Svo skemmir heldur ekki fyrir að veðrið er með eindæmum gott hér í borg. Ekki sama hitasvækjan og síðasta sumar þegar það var þrjátíu og fimm stiga hiti á hverjum degi, heldur bara svona passlega tuttugu og fimm til þrjátíu gráður. Ljúft.

Ég er reyndar dæmd til að ganga í sömu sandölunum það sem eftir er sumars, því að ég er komin með geðveikt brúnkufar á ristarnar eftir Tevurnar mínar, svona fallegan ferhyrning, u.þ.b 25 fersentimetra að flatarmáli (það gera fjórar fertommur á amerísku). Ég hef heldur ekki farið í sokka í tvo mánuði nema svona rétt til þess að fara út að hlaupa.

Sumsagt allt í gúddí og bara tíu puttar þangað til að Möddi kemur!

Posted by erna at 09:44 EH
Miðvikudagur, 16 júlí, 2003
Celia Cruz látin

Er ekki bara salsadrottningin sjálf látin. Við sáum Celiu Cruz á Summerstage í fyrra og ég hélt að hún væri bara rétt orðin sjötug, hún bar aldurinn svo vel. Megi hún hvíla í friði.

Posted by erna at 09:13 EH
Þriðjudagur, 15 júlí, 2003
Letin ógurlega...

... hefur gripið mig. Ég bara nenni ekki að útbúa fyrirlesturinn fyrir morgundaginn. Ég á að halda fyrirlestur í data club eftir nákvæmlega tólf og hálfan klukkutíma og ég er ekki byrjuð að undirbúa mig... Mig langar bara að vinna, ekki halda einhverja fyrirlestra endalaust, bleh...

Posted by erna at 08:35 EH
Mánudagur, 14 júlí, 2003
Lufsugangur

Bleh.. nú er ég þreytt eftir tólf tíma vinnudag. Er búin að hangsa alveg frá því að ég kom heim, með geðveikt samviskubit yfir því að vera ekki að útbúa fyrirlesturinn sem ég á að halda á miðvikudaginn. Ég veit ekki einu sinni hvað ég ætla að tala um eða neitt, er bara í algerri afneitun. Kannski ég sofi bara yfir mig... eða, kannski ekki. Maður lufsast einhvern veginn í gegnum þetta.

En nú er ég farin í háttinn. Geisp.

Posted by erna at 11:29 EH
Sunnudagur, 13 júlí, 2003
Helgarferð

Ég var að koma heim úr helgarferð með stelpunum og er gersamlega búin á því. Við fórum í útilegu út á Long Island á föstudaginn. Það var ekkert smá gaman að komast út úr bænum svona aðeins og sofa í tjaldi og svona.

Við gengum líka í fjóra tíma í sjávarmálinu og nutum sólarinnar og golunnar af sjónum í gær. Reyndar brunnum við líka þrátt fyrir að hafa borið vandlega á okkur sólarvörn af sterkustu gerð og ég er með harðsperrur í dag af því að ganga í sandinum, það tekur einhvern veginn svo allt öðruvísi á en að ganga á malbiki!

Annars var matargerð ýmiskonar eiginlega miðpunktur helgarinnar. Við grilluðum náttúrulega og svo fékk ég að smakka svokölluð s'mores. (When you've had onen you're gonna want to have s'more). En maður býr þau til með því að bræða sykurpúða (marshmallow) yfir eldi og skella honum svo ofaná súkkulaðimola (verður helst að vera Hershey's) og svo setur maður hafrakex í samloku utanum herlegheitin og borðar af hjartans lyst. Mjög Amerískt! Það skemmtilega við s'mores finnst mér að sitja í myrkrinu við eldinn með marshmallow á teini og bræða hann og pískra og flissa á meðan með vinkonunum...

Í dag heimsóttum við svo vínbú sem eru á svipuðum slóðum og við tjölduðum, en þessi hluti eyjunnar er margfrægur fyrir víngerð. Við fórum á þrjú vínbú og smökkuðum vín og keyptum það sem okkur leist best á. Ég keypti meðal annars ljúffengt kirsuberjavín og tvær flöskur af hvítu. Það var pínu gaman að smakka svona margar tegundir af víni og finna muninn. En ég hef nú reyndar ekki mikið vit á vínum.

Fróðleikshorn helgarinnar, úr viskuhorni plöntufræðingsins í hópnum: Marshmallow dregur nafn sitt af fenjaplöntu sem ber sama nafn og hefur hvíta og mjúka rót, en sykurpúðarnir þóttu líkjast rót plöntunnar, sem heitir læknastokkrós á íslensku.

Posted by erna at 08:17 EH
Miðvikudagur, 9 júlí, 2003
Ameríski hreimurinn

Ég var að sortera einhver skjöl og þannig lagað í gær og rakst á íslenska örk, eitthvað plagg frá LÍN. Mér fannst blaðið alveg fáránlegt í laginu, svo langt og mjótt eitthvað og þá mundi ég hvernig það var þegar ég kom hingað fyrst.

Blaðsíðustærðirnar voru aðrar. Allar möppur eru fyrir blöð með þremur götum, einu í miðjunni og svo á sitthvorum endanum. (Heftarar eru nú samt eins). Eldavélin og bakarofnin brenna gasi, rafmagnstækin ganga fyrir 110 voltum, hitinn er mældur í Farenheit, lengdir í fetum og tommum, rúmmál í gallonum, kvörtum (guarts) og únsum, þyngd í pundum.... Það var eiginlega mesta sjokkið, að stíga á viktina og sjá tölu sem var mun hærri en hundrað!

Á tímabili var ég snillingur í hugarreikningi, var alltaf að breyta öllum einingum yfir í okkar evrópska system. Þegar ég rakst á þetta plagg frá lánasjóðnum í gær rann það upp fyrir mér hvað ég er orðin amerísk. Farin að hugsa alfarið í dollurum og öðrum skrítnum einingum. Ég veit ekki hvernig það verður þegar Mörður kemur aftur, ætli ég sé farin að tala íslensku með amerískum hreim?

Posted by erna at 10:31 EH
Þriðjudagur, 8 júlí, 2003
Heilabú

Þar sem ég vinn næstumþví á spítala, (sko spítalinn er í næsta húsi, en það eru bara rannsóknarstofur í byggingunni sem ég er í), hanga yfirleitt auglýsingar upp um alla veggi þar sem fólk er beðið um að taka þátt í hinum og þessum rannsóknum. Í dag ákvað ég að láta til skarar skríða og hringdi í stjórnendur einnar svona rannsóknar, því að yfirleitt fær fólk borgað fyrir að vera með.

Þennan hóp vantaði fólk sem talar tvö eða fleiri tungumál. Ég hringdi inn og fékk reyndar að vita að það er ekki borgað fyrir þáttöku í rannsókninni. Hins vegar fannst mér svolítið kúl að rannsóknin gengur út á það að taka segulómsmynd af heilanum á manni og svo fær fólk að eiga myndina af heilanum á sér í verðlaun. Þannig að ég fæ svör eftir nokkra daga hvort að þá vantar einhvern sem talar ensku sem annað tungumál í einhverja rannsóknina. Þau spurðu mig líka hvort ég væri rétthent og hvaða tungumál ég talaði. Ég er reyndar nokkuð viss um að ég fæ ekki að vera með þar sem að ég passa örugglega ekki í neinn hóp; með reiprennandi ensku og dönsku en íslensku sem móðurmál!

-Ég væri nú samt alveg til í að eiga mynd af heilanum á mér "in action"!

Posted by erna at 05:55 EH
Placebo tónleikarnir

Ég var að koma heim af Placebo tónleikunum. Fór með Sigga og hitti fullt af góðu fólki íslensku sem og útlensku.

Placebo voru flottir. Bötnuðu eftir því sem leið á tónleikana og þeir tóku meira af gömlu lögunum. Einhvern veginn er "Without you I'm nothing" alltaf uppáhaldslagið mitt með þeim, vantaði bara Bowie.

Svona á neikvæðari nótunum, þá fannst mér English summer rain ekki einu sinni skemmtilegt á tónleikum. Það er bara eitthvað við það lag sem fer í taugarnar á mér.

Settuppið á hljómsveitinni er ansi áhugavert, því að þeir sem spila í "alvöru" á hljóðfærin eru bakatil, næstum því baksviðs, á meðan athyglisþurfandi meðlimir sveitarinnar, sem kunna kannski ekki alveg mikið á hljóðfæri, en eru svona meira fyrir augað, eru fremst og í sviðsljósinu. Spes, alls ekkert að því, þeir eru nú bara svo sætir þeir Stefan Olsdal og Brian Molko.
Ég skil heldur ekki alveg hvað málið er, því að Stefan, Brian og Steve Hewitt eru einir skráðir fyrir tónlistinni og hljóðfæraleik á diskinum, en ég hefði sko getað svarið fyrir það að það voru fleiri meðlimir í hljómsveitinni í kvöld!

Posted by erna at 12:37 FH
Mánudagur, 7 júlí, 2003
Meistari Erna!

Ég fékk ímeil fyrr í dag, þar sem mér var tjáð að ég væri búin að vinna mér inn meistaragráðu við Columbia, allt sem ég þyrfti að gera væri að fylla út umsókn og að ég myndi svo útskrifast opinberlega með meistaragráðu í október.

Þetta er skemmtilegur bónus, ég bjóst ekki við því að fá meistaragráðuna strax. Þetta er nú samt ekki mikið meira en bara smá bónus, skiptir ekki miklu máli fyrir mig, en samt svona gaman að fá smá viðurkenningu fyrir strit og svita og sálarstríð undanfarinna tveggja ára!

Posted by erna at 05:18 EH
Sunnudagur, 6 júlí, 2003
Öfuguggi

Já, þau eru nú ekki öll jafnskemmtileg ævintýrin sem maður lendir í hér í New York. Ég skrapp á labbið núna um kvöldmatarleitið og ákvað að taka lestina til baka. Ég hef áður skrifað um brautarstöðina á 168. stræti, hún er miður skemmtileg, fremur skuggsæl og daunill. Ég rétt missti af lestinni niðureftir þegar ég kom á brautarpallinn og rölti þvi svona fram og til baka í hægðum mínum, kíkti annað slagið hvort að lestin væri að koma og góndi annars bara mest út í loftið.

Þegar ég var komin út á endann á brautarpallinum var ég eitthvað að horfa á teinana og varð svo litið yfir teinana á hinn pallinn. Þar stóð þá maður með félagann úti og var að rúnka sér á meðan hann starði á mig. Skemmtilegt. Ég missti nú ekki kúlið, (held að ég sé farin að nálgast það að kalla mig sannan "New Yorker"), leit bara undan og rölti í hægðum mínum á brott, á hinn enda brautarpallsinns. Mér létti nú samt þegar gaurinn fór upp í lestina sem var á leiðinni í gagnstæða átt. Mér hefði ekki þótt gaman að vita af þessum öfugugga á leiðinni í sömu átt og ég í lestinni.

Posted by erna at 09:18 EH
Independence day

Ég gleymdi alveg að segja ykkur frá föstudeginum. Eitt af fáu skiptunum sem það er frídagur hér í Ameríku en ekki á Íslandi... Sko, fjórði júlí: Independence day!

Ég hjólaði nú reyndar í vinnuna og sýslaði við frumurnar mínar, gaf þeim að borða og svona og hjólaði svo sem leið lá eftir endilangri eyjunni, niður í Battery Park, sem var náttúrulega troðinn af túristum að bíða eftir ferjunni út á Ellis Island til að skoða frönsku kellinguna hana Frelsisstyttu. Hvað er amerískara samt en að skoða Frelsisstyttuna á fjórða júlí? Ég hjólaði svo til baka og hitti stelpurnar við kajakbryggjuna, Adelene fór út á kajak og ég og Lora fórum í sólbað á bryggjunni við Christopher street. Ég prófaði aðeins að línuskauta, en gekk illa. Skautarnir mínir eru allt of litlir á mig. Þeir verða bráðum seldir á ebay.

Svo hjólaði ég aftur heim til þess að hafa mig til fyrir hið hefðbundna fjórða júlí grillpartý. Þetta árið bauð vinur hennar Loru okkur í þakpartý heima hjá sér suður í East village. Við höfðum fullkomið útsýni af flugeldasýningunni þar sem við stóðum uppi á þaki í blíðviðri kvöldisins og kjömsuðum á grilluðum grænmetisborgurum. Það var mikið um þakpartý og það var gaman að heyra fólk hrópa af aðdáun yfir flottustu flugeldunum, frá þökum allt um kring. Á þaki rétt hjá var fólk að horfa á bíómynd sem var varpað á einn vegginn, niðri á götu hafði brunahani farið af stað og börn úr hverfinu kældu sig niður með því að hlaupa í úðanum frá honum. Alls staðar iðaði borgin af lífi. Þetta sjónarhorn af borginni svona ofan af þaki var skemmtileg tilbreyting.

Við vorum samt allar þreyttar eftir átök dagsins, svo að við fórum snemma heim, saddar og sælar eftir viðburðarríkan dag.

Posted by erna at 02:30 EH
Foreigners impression of Iceland

Vá, ég var að koma úr frábæru partýi. Adelene vinkona mín er alveg frábær gestgjafi, og hún tók upp á því að fara á barþjónanámskeið í Columbia. Hún þarf að taka barþjónapróf eftir tíu daga og ákvað því að halda partý þar sem fólk ætti annað hvort að koma með flösku af áfengi fyrir barinn eða 15 dollara.
Og hún stóð í allt kvöld og sörveraði drykki oní okkur gráðugu drykkfeldu vini hennar.

Það var fullt af fólki í partýinu sem ég hafði aldrei hitt áður. Þar á meðal fólk sem hafði komið til Íslands og uppveðraðist allt af því að hitta mig. Ehemm.. ég fæ svo mikið af "undeserved credit" fyrir að vera frá Íslandi. Reyndar náði ég að vinna mér inn aðdáun nokkurra karlkyns einstaklinga á svæðinu því að Adelene bauð upp á eihvert austurrískt skot að nafni Strohmeister (note to those who know me well, please stop giggleing). Það er svona einhver snafs sem minnir mig eiginlega mest á íslenskt brennivín. Við demdum þessu í okkur og strákarnir fengu allir tár í augun og hóstuðu og reyndu að bera sig mannalega. Ég blikkaði varla auga frekar en venjulega, en þar erum við komin að mínum leynda hæfileika. Að drekka sterkt áfengi án þess að blikka auga. Allir eiga sinn leynda hæfileika, þetta er bara minn....

Strákarnir sem höfðu komið til Íslands sögðu "takk fyrir" með kanadískum hreim, svona hundrað og tutturu sinnum við mig. Ég sagði bara "skál í boðinu" á móti og hlustaði á Íslandssögur þeirra.

Þau fóru í bláa lónið, sem var náttla frábært. Og sáu Gullfoss og Geysi sem var náttúrulega æðislegt líka. Þau fóru á matsölustað sem byrjaði á N... og borðuðu góðan mat, en vildu ekki borða hvað af því að hvalir eru í útrýmingarhættu...

Svo skelltu þau sér út á lífið. Þeim fannst lítið til íslenskra nektardansstaða koma, fannst næturlífið annars spennandi, en furðuðu sig á einu. Hvursu mikið það hefði verið um slagsmál inni á börum í Reykjavík. Ég varð bara að segja þeim það eins og það væri, að eins frábær og við Íslendingar værum og bla, bla, bla, þá værum við oft frekar ókurteis og óhefluð, god knows why. Þess vegna væri fóki ekki hent út af skemmtistöðum fyrir að vera með einhvern óskunda, öfugt við til dæmis New York.

Nancy, sagði líka skemmtilega sögu af vinkonu sinni sem var svo klikkuð að koma til borgarinnar í atvinnu og húsnæðisleit, án þess að vera með bókaða gistingu á hóteli eða neitt og var þar að auki með mörð í farteskinu. Hún hneykslaðist á þessari stelpu í þokkalega langan tíma fyrir að koma hingað með mörðinn sinn, þangað til ég sagði við hana: "Ég kom nú reyndar líka hingað með Mörðinn minn, en ég átti þó að minnsta kosti bókaða gistingu".

Posted by erna at 02:21 FH
Föstudagur, 4 júlí, 2003
What to do about bacterial contamination?

Mér tókst að fá prófessorinn minn til að hlægja í dag. Það kann ekki að virðast neitt merkilegt, en er það þó í raun. Hún er nefnilega ekki afslappaðasta manneskja í heiminum.
Málið var að það var ansi skæð bakteríumengun i DC ræktunum mínum. Þannig að ég var að ræða við Miriam um það hvort að ég ætti að gefa afgangnum af frumuræktunum mínum að borða í dag. Við ákváðum að það væri ekki ráðlegt, og því myndu frumurnar fá að borða einum degi of seint:

Miriam: I guess there is no other way not to contaminate your other cultures except if you could change clothes. -But I guess you don't have spare clothes in the lab. Or you could go in the nude! Just do naked tissue culture!
Erna: Whahahahaha..... that would be something, naked tissue culture, sounds more lika an art project to me!
Miriam: Oh, I guess there is no other way for you than to come in really early tomorrow morning and feed them. And those clothes are gonna have to be washed... and you'll have to shower... and...........
Erna: But, but... I only shower on Wednesdays!
Professor Calame: Giggle, giggle, giggle!!!!!!

I can't believe it. I told the lamest joke ever and she laughed! She must have been in a real good mood today!

Posted by erna at 01:13 FH
Miðvikudagur, 2 júlí, 2003
...and living is easy...

Lífið leikur við mig þessa dagana. Það er bara eitthvað svo næs þegar veðrið er svona gott. Að hjóla í vinnuna, að borða hádegismatinn úti, að sleikja sólskinið úti í næsta almenningsgarði...

Þessa dagana mætti næstum því kalla mig "fruitarian". Það er svo mikð af góðum ávöxtum sem er gott að borða og ódýrt að kaupa hérna. Ég fór til dæmis áðan út í West Side Supermarket og keypti hina fullkomnu hunangsmelónu. Hún var fullkomlega hnöttótt og algerlega laus við alla útlitshnökra. Þegar heim kom skar ég hana í tvennt, tók fræin út og setti kotasælu í miðjuna og gæddi mér á. Og viti menn hún var einmitt líka alveg passlega þroskuð, sæt og svalandi í hitanum!

Ég keypti líka ferskjur, apríkósur nektarínur og kirsuber. Ég yrði ekki hissa ef að það færi að vaxa kirsuberjatré út úr hausnum á mér einhvern daginn, ég er búin að innbyrða svo mikið af þeim undanfarið. Ég bara hafði aldrei áður smakkað fersk kirsuber, ekki fyrr en núna í sumar. Og ég gersamlega féll fyrir þeim.

Það var svo margt sem ég fór á mis við síðasta sumar í mínum veikindum, sumarið bara brunaði hjá í einhverju kjaftæði, þannig að núna er ég algerlega að bæta mér það upp og njóta þess í botn. Næsta sumar ætla ég svo að vera búin að styrkja á mér bakið nóg til þess að fara að stunda kajaksport með Adelene. Ihh... það verður gaman!

Posted by erna at 11:23 EH
Þriðjudagur, 1 júlí, 2003
Fullkomið

Ef veðrið í dag var ekki fullkomið, þá er ekki til fullkomið veður! Það var um þrjátíu stiga hiti, svöl gola og rakastigið var mjög lágt. Ég borðaði því hádegismatinn úti, fékk mér eftirmiðdagssnakk úti með Emily og svo dreif ég mig með Yin Mei á línuskauta eftir vinnu.

Það er nefnilega gaur sem er svo duglegur að hann kennir samstúdentum sínum á línuskauta á þriðjudögum og laugardögum. það var alveg frábært. Við fórum út í næsta almenningsgarð. Þar var sko margt um manninn, strákar á hjólabrettum og strákar að spila hafnabolta og fullt af litlum krökkum að leika sér í gosbrunnum skríkjandin og hlægjandi. Garðurinn ljómaði í kvöldsólinni, fullkomið kvöld til að læra á línuskauta.

Nú kann ég að bakka á tvo mismunandi vegu, stoppa með bremsunni og hefur farið fram í að gera T-stopp. Markmiðið er að ná að vera orðin svo klár í ágúst að ég geti farið með þeim sem leið liggur niður í Central Park. Það hljómar frekar klikkað, að línuskauta eftir eyjunni miðri, í miðri umferðinni og allt, frá hundrað sjötugasta og fimmta stræti niður á fimmtíu og níu. Ef ég verð dugleg að æfa mig ætti ég að geta það!

Ég tók svo subway heim, en mér brá pínulítið þegar ég kom á lestarpallinn. Það voru tuttugu hermenn þar með vélbyssurnar sínar. Ég á aldrei eftir að venjast því að sjá menn ganga með alvæpni um götur borgarinnar. Ég passaði mig reyndar á því að fara bara ekki í sama vagn og þeir í söbbvei, þannig að taugarnar róuðust fljótt.

Nú er ég hins vegar að fara í gymmið að styrkja á mér bakið þannig að ég geti borið bakpoka lengra en tvo metra....

Posted by erna at 08:53 EH
OOOOOOOOOOOOOOOOOOh.

Er víst ekki að fara í Campmor. Bara í vinnuna. Vinkona okkar bíleigandinn er veik. Vona að henni batni fljótt. Best að drífa sig af stað.

Posted by erna at 09:02 FH
Næs, næs, næs

Umm.. dah.. næs dagur! Og ég er að fara í Campmor með stelpunum fyrir vinnu! Næs.

Posted by erna at 08:29 FH