Sunnudagur, 29 júní, 2003
Þvílík helgi!!!

Vá! Ég er búin að skemmta mér svo vel um helgina að það er engu lagi líkt. Þvílíkt gott að þurfa ekki að hugsa um próf og svoleiðis!

Á föstudaginn fórum við stelpurnar á tónleika í Carnegie Hall, að sjá sjálfan meistara Dave Brubeck. Það var alveg frábært, ótrúlegt að sjá manninn, hann gat varla gengið um sviðið og talaði mjög hægt, en spilaði eins og engill! Það var líka svo gaman að koma í Carnegie Hall, maður hefur svo oft heyrt um þann stað, enda kölluð "The Musical Heart of New York City".


Á laugardagsmorgun fór ég svo í vinnuna en hitti vinkonur mínar seinnipartinn og við fórum á Summer Stage, þar sem þemað var íslensk tónlist og Steindór Andersen kvað rímur og hljómsveitirnar Trabant, Apparat-Organ og Singapore Slings spiluðu við góðar undirtektir viðstaddra. Raggi Kjartans fór hreinlega á kostum, hann var svo fyndinn! Og ég var svakalega hrifin af Apparat-Organ. Gaman að sjá svona hvað er að gerast heima fyrst að maður er hér í útlegð! Með frægara fólki sem var á staðnum var Jón nokkur sem kenndur hefur við Gnarr. Spurningin sem nú brennur á allra vörum er hvort að hann búi í New York og hvort hann sé að meika það í standup bissnissnum hér! Hahaha.. nú er maður búinn að koma af stað slúðir kannski.... Svona erum við Íslendingar, með nefið í hvers manns koppi...

Það frábærasta var að stelpurnar tóku þátt í happdrætti á tónleikunum og unnu ferð til Íslands á Icelandic Airwaves í haust. Það var ekkert smá frábært, því að þær eru báðar búnar að vera að tala endalaust um hvað þær langi mikið til þess að koma til Íslands og sú þeirra sem átti vinningsmiðann var reyndar svo æst að hún keypti þrjá happdrættismiða, sem greinilega borgaði sig! Ég er svo spennt að þær séu að fara til Íslands í haust. Verst að október er ekki alveg á lundatíma, þær langar svo að smakka lunda!

Eftir tónleikana elduðum við okkur svo góðan sumarmat til að kæla okkur niður eftir hita dagsins og ég fór bara snemma í háttinn til þess að geta mætt snemma í vinnuna í dag, sem ég og gerði.

Eftir vinnu fórum við svo aftur í Central Park á Summer Stage, því að í þetta skiptið var þemað Kanadískt, en Adelene er þaðan, þannig að við drifum okkur. Það var nokkuð traust mússík í gangi þar og veðrið alveg með eindæmum, þannig að það var alveg frábært þar. Og svo komum við aftur hingað heim til mín og gerðum kalt pastasalat og suðum maískólfa. Þvílík æðisleg sumarmáltíð og frábær lokapunktur góðrar helgi.

Reyndar gerðum við einn hlut enn, við tjölduðum gamla tjaldinu hans Marðar í stofunni til þess að meta hverra viðgerða það þyrfti, en við erum að fara í útilegu um þarnæstu helgi, þannig að ég ætla að láta gera við tjaldið áður. Nokkrar vinkonur mínar hér eru einskonar "tjaldmeyjar", þ.e. þær hafa aldrei sofið í tjaldi, komnar hátt á þrítugsaldurinn. Það er náttúrulega ekki hægt, að þær hafi ekki sofið í tjaldi, þannig að við erum búnar að vera að plana útileguhelgi á norðurströnd Long Island. Það vill reyndar líka svo heppilega til að nálægt tjaldsvæðinu eru vínekrur og vínbú (eða hvað maður nú kallar wineries á íslensku), þannig að það stefnir allt í nokkuð skemmtilega helgi með útilegu, gönguferðum og vínsmökkun. Ihh.. (segi ég bara svona eins og Vala), hvor jeg bara glæder mig...

Posted by erna at 11:38 EH