Jæja, dreif mig snemma heim, svona til þess að reyna að stressa mig aðeins upp fyrir þetta blessaða próf.
Ég held að vandamálið sé að ég get bara ekki tekið þetta nógu alvarlega. Fyrir mér er tilgangnum að mestu náð nú þegar. Ég er búin að kynna mér litteratúrinn á bak við verkefnið mitt og semja rannsóknartillöguna. Skemmtilegasti hlutinn er búinn, þ.e. að breinstorma og setja fram tilgátur og svo lesa mér til um tilraunirnar sem ég gæti gert til þess að sanna/afsanna tilgáturnar. Restin er bara föndur. Búa til fyrirlestur og æfa hann nokkrum sinnum til þess að vera nú nógu fjandi örugg með mig á mánudaginn.
Reyndar hlakka ég til að sjá hvaða tillögur Angela og Amer koma með á mánudaginn. Hvað þeim finnst að ég ætti að gera og svona. Það er eiginlega það sem mótíverar mig til þess að setjast niður núna og gera blessaða fyrirlesturinn.