Fimmtudagur, 12 júní, 2003
Úúúúúúúú..........

.......þrumur og eldingar. Ég sit hér í myrkri stofunni og legg lokahönd á rannsóknartillöguna mína og hlusta á þrumurnar dynja og sé eldingarnar leiftra í kringum mig. Er til betri eða dramatískari undirleikur við það reka smiðshöggið á meistarastykki eins og: "The role of Blimp-1 expression in mammalian epidermis"? Ég vona bara að það verði ekki þrumuveður þegar ég ver tillöguna fyrir Amer og Angelu!

Posted by erna at 10:40 EH
Rétt upp hönd....

....sem finnst fyrsta lagið á nyja Placebo diskinum, Bulletproof Cupid vera ýkt Metalliculegt. Ég fæ ýkt "And justice for all" flashback í hvert skipti sem hlusta á diskinn, verst hvað lagið er stutt! (Og svo er eina leiðinlega lagið á diskinum, English Summer Rain beint á eftir því).

Eh... ég veit, ég hef líka lýst því yfir að mér finnist þeir vera undir áhrifum frá Strokes. Þetta er fínn diskur, kannski aðeins of poppaður fyrir minn smekk, nema náttúrulega Metallica og Strokeslögin á honum!

Posted by erna at 08:29 FH