Ég fór ásamt pabba í gær í veiði á Úlfljótsvatn. Fyrst reyndi ég fyrir mér við hólmann gegnt Steingrímsstöð og á svæðinu á milli Steingrímsstöðvar og hólmans. Á sama tíma kastaði pabbi í Sogs útfallið í vatnið. Það gekk lítið sem ekkert, kallinn fékk einn titt. Ég gekk síðan aðeins upp með Soginu og stalst til að kasta nokkur köst þar, svæðið er bara svo veiðilegt. Þar að auki eru til svo margar sögur af risaurriðum sem hafa verið veiddir þarna og ég lét mig dreyma í nokkrar mínútur.
Síðan ókum við niður í Borgarvík og veiddum út af veiðitanga (Nafnið alla vega til kynna að þarna sé sniðugt að veiða) og pabbi fékk þrjá og ég engann. Sem sagt 4 - 0 fyrir kallinum og engar góðar afsakanir hjá mér.
Fresh direct eru búnir að færa út kvíarnar! Júhú! Nú er sko gaman! Loksins er þjónustan komin í hverfið mitt.
Fresh direct er sko matvörubúð á netinu. Maður loggar sig bara inn, pantar matvörur og fær þær sendar heim. Nææææsss. Það besta er að maður fær 40 dollara start, sem maður þarf ekki að borga af ferskum matvælum. Þannig að nú erum við stelpurnar búnar að plana að skiptast á að panta mat og halda veislur, þar sem við eldum ljúffengar máltíðir handa hvor annarri!
Ég elska að búa á Manhattan. Hvergi annars staðar væri þetta mögulegt. Þetta hefur verið reynt víða um heim, en ekki gengið upp. Hér er fólk hins vegar mjög vant því að fá mat sendan heim endalaust, og þegar maður fer í búðina þá lætur maður hvort sem er senda vörurnar heim, því að það er vonlaust að rogast með allan matinn blokk eftir blokk. Nú sleppur maður hins vegar við inkaupakerrubrjálæðið og biðraðirnar og pantar bara af netinu.
Ég held nú samt að ég geri þetta ekki alltaf, það er einhvern veginn ekkert sem jafnast á við að fara á grænmetismarkaðinn og velja af kostgæfni grænmetið í matinn sinn, en fyrir upptekið fólk er þetta alveg frábær þjónusta. Þegar maður er búinn að vinna langt fram á kvöld dag eftir dag og ísskápurinn er tómur er bara svoooo þægilegt að fá matinn sendan heim!