Mánudagur, 2 júní, 2003
Er ekki bara kominn háttatími...

Ég var eitt sinn að kenna ónefndum ungum manni stærðfræði, daginn fyrir próf. Klukkan hálf tíu lítur hann allt í einu á klukkuna og spyr mig hvort að það sé ekki kominn háttatími.... .... mér líður nákvæmlega svoleiðis núna. Hjartað í mér tók kipp af gleði þegar ég uppgötvaði að klukkan væri orðin ellefu, en á sama tíma ómaði inn í mér rödd angistar; "Nei, nei, ekki fara að sofa... þú VEEERRRÐÐUURR að halda áfram að yfirfara ritgerðina......"

Posted by erna at 11:19 EH
Veiðin er hafin

Ég fór að veiða á Þingvallavatni um helgina og landaði 4 kuðungableikjum. Það var nú gott, þar sem ég hafði farið þrisvar áður í vor og ekki fengið neinn fisk. Haddi og Einar voru þarna með mér og þeir fengu einn hvor. Alltaf gaman að geta montað sig af þvi að vera aflakóngur, það gerist nú ekki svo oft.

Posted by mordur at 09:35 FH
Jæja...

Jæja, kötturinn er farinn upp til foreldranna sem voru að renna í hlað. Ég eldaði sunnudagsmat að vanda, vellukkað indverskt karrí og fékk náttúrulega vel þegna hjálp við að hesthúsa það. Oh... ég hlakka til að borða afganginn í hádegismat á morgun.

Framundan er annasöm vika við fínpússningu á ritgerð, labbvinnu, músaskriffinnsku, útihlaupum og hjólreiðum.

Ég kom nú alveg dágóðum slatta í verk við ritsmíðina um helgina, kannski ekki í fjölda orða, en svona mest kannski við snyrtingu og svona, þannig að núna er loksins komin heildarmynd á þetta alltsaman. Vá, hvað það verður gott þegar þetta er búið. Ég er reyndar ekkert svakalega stressuð yfir þessu, fæ kannski smá skjálfta annað slagið. Ég held að ég sé alveg í góðum málum, en málið er bara að það má alltaf gera betur. Þess vegna verð ég andlegur fangi qualifying-prófs þar til það er afstaðið.

Það verður sennilega líka skemmtilegra að lesa bloggið eftir prófið, því þá hætti ég sennilega þessum endalausu ritgerðarkveinstöfum. Nema náttúrulega að ég verði felld og þurfi að skrifa nýja ritgerð....

Posted by erna at 12:00 FH