Laugardagur, 31 maí, 2003
Matur er mannsins megin

Mér finnst svo gaman að elda. Svei mér þá, ef ég er ekki farin að líkjast móður minni æ meira hvað það varðar. Eiginmaðurinn er náttúrulega líka svo mikil inspírasjón, hann er svo mikill sælkeri hann Mörður. Það er bara einhvern veginn ekkert sem slær við tilfinningunni að finna oddhvassa hnífsegg skera í gegnum stökkt grænmeti, hlusta á ferskmetið krauma á pönnunni, dúlla sér við að ákveða hvaða krydd sé nú best í réttinn, ákveða hvernig eigi að skera grænmetið og svona og finna unaðslega lyktina breiðast um íbúðina (og stigaganginn, nágrannar mínir hafa oft minnst á hvað það sé góð lykt af matnum sem ég elda).
Það er einhvern vegin svo góð tilfinning, svona eins og ég sé að leggja alveg sérstaklega alúð við mig og mína þegar ég vanda valið á grænmetinu út í búð og legg svo ást og alúð í eldamennskuna.

Ég er líka svo heppin að hafa eignast góða vinkonu hérna í skólanum sem finnst alveg jafngaman elda og mér, og við skemmtum okkur saman að minnsta kosti einu sinni í viku við að hræra í pottunum hjá hvor annarri, gefa góð ráð, tala um uppskriftir og allskonar tegundir af mat. Förum saman niður í bæ og kaupum krydd í Kínabæ, og alls konar framandi grænmeti og ávexti, förum á grænmetismarkaðinn í nágrenninu og kaupum ýmisskonar gúmmelaði og stöndum svo yfir pottunum hrærandi, smakkandi, skerandi og kryddandi.

Vinkonum okkar finnst það heldur ekkert verra að við séum svona miklar eldabuskur. Ég eldaði til dæmis mat á miðvikudaginn og mætti með hann heim til einnar okkar, bara svona til að þurfa ekki að borða matinn ein, það vakti mikla lukku. Svo á sunnudögum þegar mesta eldamennskan fer fram, er náttúrulega bjallað í hinar stelpurnar og þær mæta á svæðið og úr verða fjörugar máltíðir.

Matur er svo mikil snilld. Maður getur upplifað nýja menningarheima í gegnum mat, matur færir fólk saman, eins og okkur vinkonurnar. Matur er nefnilega einhvern veginn svo mikið meira en bara eldsneyti fyrir skrokkinn, þó að auðvitað geti náttúrulega farið illa ef maður hættir alveg að hugsa um hann sem eldsneyti. Góður matur getur oft gefið mér ákveðna lífsfyllingu (upp að vissu marki náttúrulega), ef ég fæ góðan og hollan mat líður mér yfirleitt eins og nýslegnum túskildingi.

Ég verð sko að vera mikið duglegri að elda framvegis, það er bara fátt sem slær því við.

Posted by erna at 10:26 EH
Biluð plata..... þokkalega rispuð allavegana

Hversu oft hefur laugardagsblogg mitt undanfarið verið nokkurnveginn á þessa leið:
Sit hér í kósí fílíng, með kaffibolla (nýmalað kaffi, jummí) og Smiths í eyrunum, við tölvuna og er að vinna í ritgerðinni minni.

Þessi ritgerð er eiginlega algert eilífðarverkefni og ég get ekki hamið mig og fer alltaf að breinstorma og enda á því að prenta út tíu nýjar rannsóknargreinar og spá í hvernig ég geti tvinnað efnið inn í ritgerðina. Þannig að lítið gengur í beinum skrifum.

Ég er reyndar pínu pirruð, af því að ég ætlaði að vera löngu búin með alla hugmyndavinnu, en óneijjj.... Ég bara var svo spennt um síðustu helgi af því að ég fann loksins greinar um efni sem ég var búin að vera að leita að =)

En nú verður gerður skurkur í þessu í nokkra klukkutíma, svo þarf ég náttúrulega að vinna smá og svo mæti ég á svæðið aftur og skrifa fram á nótt..

Vissj mí lökk..

Posted by erna at 09:43 FH
Föstudagur, 30 maí, 2003
Dúbbí?

Ég ætti nú bara að blogga dúbbídúbbídúbbídú.. eins og hann Siggi. Hef nefnilega ekki frá neinu merkilegu að segja. Bara svona venjulegur dagur í dag, hvorki meira né minna. Hjólaði í vinnuna, vann, fór í spinning, hjólaði heim, skrifaði í ritgerðina, fór að sofa... gat ekki sofnað.. bloggaði (og borðaði harðfisk á meðan).

Posted by erna at 12:38 FH
Miðvikudagur, 28 maí, 2003
Ég eeelskaaa New York

Adelene hringdi í mig áðan og benti mér á að það eru Nick Cave and the Bad Seeds tónleikar í borginni daginn eftir "hæfnis"-prófið mitt. Ahh.. ég væri ekkert smá til í að fara á Nick Cave. Júní verður bara svona eins og upprifjun á Hróarskeldu '97 en ég sá bæði Radiohead og Nick Cave þá og mun gera aftur nú, sex árum síðar. Svo eru tónleikar með Placebo í Júní. Ég er farin á hausinn, en ég geri það með bros á vör.

Posted by erna at 11:22 EH

Jæja, bloggið komið upp aftur eftir langan dag þar sem vefþjónar Hosting Matters lágu niðri...

Þetta er í fyrsta skipti á næstum því ári sem vefþjónninn dettur niður lengur en í klukkutíma eða svo, þannig að ég ætti nú ekki að vera að kvarta.

Er að rjúka til Loru, skrifa meira seinna!

Posted by erna at 08:58 EH
Einar skrifar um Framsókn

Bendi á það sem Einar skrifar um húsnæðismálaloforð Framsóknar. Ég reyndar veit ekki sjálf hundrað prósent út á hvað það gekk. Í dag getur hins vegar ungt og efnalítið fólk fengið 90% húsnæðislán, og miðað við það sem hann Einar skrifar, voru Framsóknarmenn að lofa því að allir fengju 90% lán?

Ég segi bara: Verði fóki að góðu ef það vill lengja afborgunartímann af fasteignum sínum um tvo áratugi eða svo. Frekar myndi ég nú bara leigja....

Posted by erna at 08:16 FH
Þriðjudagur, 27 maí, 2003
Hjólaði í vinnuna í dag....

Jæja, þá er ég orðin nógu góð af ofnæminu eftir heila rigningarviku, þannig að ég dreif mig loksins af stað og hjólaði í vinnuna í morgun. Vá, það var ekkert smá fínt maður!

Vinnudagurinn var OK, ég varði of miklum tíma í að vera of stressuð yfir einu markmiðinu í rannsóknaráætluninni og kom því engu í verk varðandi hana. Pirrandi, en þetta var náttúrulega algert bull í mér og ég er komin aftur niður á jörðina eftir að hafa hugsað mig vel um.

Þegar ég var svo að hjóla heim aftur, fór ég fram úr strætó sem keyrði skrykkjótt um göturnar, stoppaði og keyrði hundrað metra til skiptis. Ég spáði ekki meira í það, en svo þegar strætóinn fór fram úr mér aftur, þá sá ég að á ljósaskiltinu á hliðinni á honum blikkaði "EMERGENCY" og aftan á honum þar sem venjulega stendur strætónúmerið blikkaði "help, call 911"! Vá, ég hefði sko hringt í næn vonn vonn hefði ég haft síma á mér, frekar skrítið!

Svo var journal club eftir vinnu, við ætlum að gera eins og síðasta sumar og hittast einu sinni í viku, drekka bjór og ræða vísindagreinar. Svona meira, úúú.. eru vísindin ekki frábær, greinar heldur en eitthvað sem tengist beint sviðinu sem við vinnum á. Samt allt líffræði náttúrulega.

Ég sagði þeim frá SARS from the stars við góðar undirtektir og hlátrasköll. Það góða við svona rugludalla eins og Whickramashinge er að okkur hinum finnst við vera svo svakalega klár þegar við gagnrýnum aðferðir hans og hugmyndafræði....

Lora kom svo með mér heim og við spjölluðum það sem eftir lifði kvölds, næs, ekkert ritgerðarkjaftæði bara tjillað og svona.

Posted by erna at 11:43 EH
iFeminism

Ég var að lesa í gegnum póstinn á femínistapóstlistanum og fann þá linkinn www.ifeminists.com.

Ég verð nú bara að segja það að mér finnst hinn svokallaði ifeminismi höfða mikið betur til mín heldur en femínisminn sem virðist vera við lýði í umræðunni á femínistapóstlistanum. Mér finnst líka stefnuskrá Femínistafélagsins vera of afturhaldssöm. Ég er til dæmis fylgjandi lögleiðingu vændis, get verið algerlega sammála Sigga Pönk í því að það sé niðurlægjandi fyrir konur að tala um að klám sé niðurlægjandi fyrir konur og svo framvegis.

Miðað við stefnuskrá Femínistafélagsins held ég að ég gangi seint í félagið og ég held að ég hafi ekki mikið gagn heldur af umræðunum á póstlistanum. Þetta er algerlega mín persónulega skoðun, ég er ekki að setja út á annars ágætan og mjög þarfan félagsskap.

Ég er búin að vera að pæla slatta í femínisma í vetur, mest síðan ég kynntist henni Binnu, og ekki minnkuðu pælingarnar við þá umræðu sem orðið hefur um Femínistafélagið. Ég sé hins vegar að ég á alls ekki heima í þeim félagsskap, er pínu svekkt yfir því, en á móti kemur náttúrulega að ég á ekki eftir að búa á Íslandi að minnsta kosti næstu sex til sjö árin, þannig að orkunni er kannski betur varið í félagi sem stendur mér landfræðilega og hugmyndafræðilega nær.

Posted by erna at 01:20 FH
Mánudagur, 26 maí, 2003
Gott veður maður!

Ég var að koma inn úr dyrunum úr smá hlaupatúr. Það var ekkert smá næs. Þetta var svona eins og að fara út að hlaupa um verslunarmannahelgina í Reykjavík -ekki hræða á stignum.

Það var líka svona ekta hlaupaveður, fjórtán stiga hiti og úði.

Hér kvarta allir og kveina yfir veðrinu eins og alltaf. Ótrúlegt. Það er sama hvar maður er í heiminum, hvernig veðrið er og allt, fólk bara getur ekki hætt að kvarta. Ef það er ekki of heitt, þá er of kalt. Annað hvort er of langt síðan það hefur rignt, eða þá að það rignir of mikið.

Ég brosi bara með sjálfri mér, því að ég veit betur. Það þýðir sko ekkert að kvarta yfir veðrinu.

Posted by erna at 06:36 EH
Gengur bara betur næst!

Oh.. ekki tókst mér að klára ritgerðina. Aðallega af því að ég var að lesa í gær og fékk svo margar nýjar hugmyndir sem ég ætla að koma inn. Frábært reyndar. Mig kitlaði alveg í magann mér finnst þetta svo spennandi!

Í dag er frídagur hjá flestum í Ameríku, Memorial Day. Ekki hjá líffræðinemum samt, ég er að fara að drífa mig í vinnuna, en ætla bara að vinna stutt, til svona fjögur eða fimm og fara svo heim að skrifa...

Posted by erna at 09:32 FH
Laugardagur, 24 maí, 2003
Alltaf sama svínið

Get of my back
Leave me alone
What do you want
Don't you have any friends...

Snilld!

Ég er sko að hlusta á Alltaf sama svínið, safndisk sem Smekkleysa var að gefa út með hinum og þessum smáskífum. Ég sit hérna í algjöru "eighties losti" og hlusta á Bootlex með lagið Trash Attack. Minnir mig sko á Eiðar 1989. Vá.. ég er bara farin að heddbanga á fullu... tíhíhí..

Mæli annars með þessum diski.

Posted by erna at 03:31 EH
Final Push

Í dag er rigningardagur. Ég var að koma úr búðinni þar sem ég keypti mér kaffi frá Jövu. Nú er vatnið að sjóða, Evora hljómar um íbúðina og ég bretti upp ermarnar.

Ég hef sett mér það markmið að klára ritgerðina mína um helgina, enda er réttsvo mánuður þangað til að ég þarf að verja hana og ekki seinna vænna en að leggja lokahönd á hugsmíðina.

Þannig að um helgina mun ég sitja hér við tölvuna og skrifa á milli þess sem að ég grúfi mig yfir vísindagreinar til þess að fá smáatriði í aðferðafræði á hreint. Á morgnana mun hljóma róleg tónlist, seinnipartinn spila ég rokk, fram á kvöld, en enda svo aftur á rólegu tónunum. Hver veit nema ég geri smá jóga inn á milli eða drífi mig út að skokka í einhverjum almenningsgarðinum.

Bissí en vonandi skemmtileg helgi framundan!

Posted by erna at 11:15 FH
Árdís og jafnræðið

Ég var að lesa grein Árdísar um jafnréttismál á Íslandi. Ég er sammála henni um margt, eins og lokaorð hennar að hún vilji ná árangri af því að hún er hún en ekki af því að hún er kona, ég held að flestar konur geti verið sammála henni um það.

Hins vegar verð ég að segja að eins og staðan er í dag er ekki ólíklegt að hún fái ekki að ná árangri af því að hún er hún, einmitt vegna þess að hún er kona. Ég er ekki að segja að ég sé fylgjandi jákvæðri mismunun, en svo að ég haldi áfram pælingu Árdísar um það að með jákvæðri mismunun sé verið að brjóta á rétti karla, spyr ég: "Hvort er betra að brjóta á rétti kvenna, eins og staðan er í dag, eða að breyta lögunum og brjóta á rétti karla?" Og þar að auki finnst mér kannski hæpin rök að það sé verið að brjóta á rétti karla, þar sem að jákvæð mismunun á sér aðeins stað ef um jafnhæfa einstaklinga er að ræða.

Reyndar er þessi pæling um "jafnhæfa einstaklinga" sem mér finnst vafasömust varðandi jákvæða mismunun og er ein ástæðanna fyrir því að ég er á móti henni, því að það er of mikið matsatriði og oft erfitt að dæma um hvenær einstaklingar eru jafnhæfir, til þess að lögin nýtist á réttlátan hátt.

Ég verð líka að segja að ég tel Árdísi vanmeta aðstæður nokkuð og mér finnst bera mikið á þessu hugarfari hjá konum á mínum aldri. Að málin séu bara í góðum farvegi og að við þurfum bara að bíða eftir því að jafnræði náist held ég að sé mikill misskilningur. Ég held að konur þurfi að standa vökulum augum um réttindi sín, til þess að missa ekki þann ávinning sem orðið hefur. Ég verð pínu hrædd þegar ég sé unga, gáfaða og metnaðargjarna konu eins og Árdísi sofna á verðinum og halda að málin séu í alvöru í svona góðum farvegi. Auðvitað búum við við mikið meira frelsi en konur hafa gert nokkurn tíman áður, en það er ekki þar með sagt að við þurfum ekki að halda áfram að berjast fyrir réttindum okkar. Ég held að það sé svolítið erfiður hjalli framundan, baráttan í framtíðinni á kannski eftir að snúast meira um að breyta þjóðfélaginu í kvenvænna samfélag heldur en að breyta lögum og reglum um jafnrétti. En það er þessi barátta sem verður að heyja, við megum ekki sofna á verðinum, dætur okkar munu ekki þakka okkur fyrir það.

Posted by erna at 12:38 FH
Föstudagur, 23 maí, 2003
Whickamashinge

Ég sé að það eru fleiri vísindamenn en ég sem eru vantrúaðir á "SARS from the stars" kenninguna. Chandra Whickamashinge mætir miklum mótbyr frá okkur jarðbundnu vísindamönnunum!

Posted by erna at 06:58 EH
Geim-SARS

Gat ekki setið á mér vegna fréttar á mbl.is um að vísindamenn í hóp Wickramasinghe við Sheffield University haldi því fram að SARS veiran hafi komið utan úr geimnum. Þetta er reyndar engin svakaleg vísindagrein, heldur er þetta meira svona lesendabréf sem hópurinn sendir inn til þess að benda á þennan möguleika. Engin gögn eru sýnd til að rökstyðja tilgátuna.

Þið getið skoðað greinina hér. Þarf reyndar innskráningu. Þið megið bara nota notendanafnið mitt: magnusdottir, og lykilorðið er: vondaveiran.

Þetta er ansi merkileg pæling. Að jörðin sé undir stöðugri örveruárás utan úr geimnum og að þessar örverur séu þróunarfræðilega skyldar því lífi sem þrífst á jörðinni. Hmmmm... merkilegt. Ég er ansi skeptísk á þetta og held því fram að annað hvort hafi vísindamennirnir mengað búnað sinn með örverum áður en þau lögðu af stað í söfnunarleiðangur, eða þá að örverur sem að finnast í heiðhvolfinu séu hreinlega bara ekkert að koma utan úr geimnum heldur neðan af jörðinni. Mikið einfaldari skýring. Og í anda vísindanna held ég mig við að útskýra fyrirbæri með einföldustu tilgátunni sem ég get hugsað mér. Þessar örverur eru ekki geimverur (eh.. eða geimveirur...) heldur jarðneskar örverur sem hafa einhvern veginn komist upp fyrir veðrahvolfið og út í heiðhvolfið.

Hvernig ættu annars að finnast veirur þarna uppi sem hafa þróast nógu nálægt lífríki jarðar að þær geti sýkt frumur spendýra á jörðinni?
Mér finnst nú frekar þróunarfræðilega hæpið að veira utan úr geimnum hafi sameindafræðilega "þekkingu" eða segjum bara getu til þess að smita mannafrumur. Samkvæmt mínum kokkabókum þarf svakalega tilraun til að það geti gerst. Nema að kenningin sé sú að sýklarnir komi frá jörðinni, fari upp í heiðhvolfið og þaðan aftur niður á jörð, lengst í burtu. -Ég átta mig ekki alveg á því.

Ég prófaði að fletta SARS upp á PubMed, og komst að því að síðan SARS greindist fyrst hafa verið skrifaðar um 130 greinar um veikina. Nokkuð magnað, en inni í þessarri tölu eru bæði fræðigreinar og svo greinar frá blöðum eins og Time.

Posted by erna at 12:49 FH
Lestur

Ég hef lítið sem ekkert að blogga um í dag, þar sem vinnan og ritgerðarsmíð eiga hug minn allan. Alls ekkert leiðinlegt það. Ég fíla (tilvonandi) verkefnið mitt alltaf betur og betur.
Þeir sem vilja geta smellt á eftirfarandi linka til þess að sjá hvaða greinar ég var að lesa í dag (ég vildi ekki linka á PDF fælana, en það er alltaf hlekkur í listanum efst í hægra horninu sem vísar á þannig fæl):

Hvernig veit húðin hvar á að vera hár og hvar ekki?
Groucho og Blimp-1 vinna saman
Hvar eru stofnfrumur húðarinnar og hvernig er örlögum þeirra stjórnað?
Áhrif keratin-10 "knockouts" á húð.

Góða skemmtun!

Posted by erna at 12:06 FH
Miðvikudagur, 21 maí, 2003
Ritgerð schmitgerð

Ahhh... nú er ég sybbin, búin að taka alla skammta af ónæmislyfjum sem mér hefur verið útdeilt og er á leiðinni í háttinn.
Ég fór snemma heim í dag og ákvað að halda áfram að vinna í ritgerðinni minni, sem ég hef ekki litið á í heilan mánuð. Ég var frekar svartsýn fyrir, kannski orðin pínu stressuð fyrir prófið og hélt að ég þyrfti að byrja upp á nýtt, hélt að það hefði verði svo lélegt sem ég hafði skrifað í apríl. En viti menn. Upp dúkkaði bara þessi fíni teksti. Ég er svona aðallega búin að vera að fara yfir það sem ég komið, snyrta og svona og pæla í uppsetningunni. Bætti samt smá við innganginn og svona. Ég enda örugglega á því að þurfa að stytta þetta töluvert, þvi að ég er ekki búin að skrifa nær allan innganginn og svo vantar inn helminginn af "experimental design" hlutanum, en samt er ég að verða búin að fylla upp í kvótann varðandi lengd..... Bleh..

Það er samt eiginlega ekki ritgerðin sem mér finnst erfiðust, heldur er málið að ég þekki svo lítið kerfið sem ég er að fara að vinna við, og enginn á labbinu mínu hefur reynslu af því, þannig að ég hef enga leið til þess að diskútera hugmyndir sem ég fæ að tilraunum og svoleiðis. Þannig að ég gæti alveg verið komin út í einhverjar pælingar sem eru ómögulegar af því að það er ekki tækni til staðar til að gera tilraunirnar og svo framvegis. Ojæja... ætti samt varla að fella mig á prófinu ef það kemur upp og ég fæ örugglega góðar ábendingar varðandi verkefnið mitt.

Úff, annars verður mánuður í prófið á föstudaginn, en einhverntíman í upphafi ritsmíðar hafði ég sett mér að klára ritgerðina þá... Í staðinn set ég mér sunnudaginn sem takmark. Ég veit ég er bjartsýn.. en hvenær hefur það skemmt fyrir manni?

Posted by erna at 11:05 EH
Þriðjudagur, 20 maí, 2003
Vinan og spinning...

Tjæja... tíðindalítill dagur í dag. Brjálað að gera á labbinu, hreinsaði þrjá próba, melti DNA, keyrði fjögur agarósagel.... bleh... já ég veit, boring, fyrir ykkur a.m.k...

Fór í spinning og komst að því, mér til mikillar skelfingar að á fimmtudaginn er síðasti spinningtími sumarsins. Ekki meira spinn fyrr en í september.
Reyndar er spinning-gellan í gymminu ekkert svakalega góð. Í dag var hún til dæmis alltaf bara að kjafta við stelpuna við hliðina á sér.. hún snýr sko eins og við þannig að við þurfum að sjá hvað hún er að gera í speglinum.... Svo spilar hún aðeins of mikið af píkupoppi.

Ég er alveg búin að sjá það út að ég þarf bara að gerast spinningkennari sjálf, ég hef svo ákveðnar hugmyndir um þetta allt. Þá gæti ég spilað smá rokk og kýlt á smá spretti og brennslu og haft gargandi stuð... Ég veit bara ekki alveg hvar maður getur farið á námskeið til þess að verða svona sörtifæd spinníng inströktor.. Kostar líka örugglega alveg formúgu. Þetta er jú Amríga.

Posted by erna at 10:29 EH
Mánudagur, 19 maí, 2003
Duct tape er til margra hluta nytsamlegt

Um helgina tók ég mig til og gerði íbúðina mína að svona "Level zero, biohazard containment area". Ég setti upp loftkælinguna og svo teipaði ég vandlega með svokölluðu "duct tape" fyrir allar rifur í kringum gluggana sem ég mögulega fann. Þetta var reyndar frekar súrrealístískt, því að það er einmitt þetta sem liðið sem er mest hrætt við bioterrorisma gerir. Nágrannarnir mínir hafa sennilega haldið að ég væri endanlega farin yfirum ef þeir hafa rekið nefið út og séð hvað ég var að bedúa þarna uppi í gluggakistu. Íbúðin lítur líka pínu skerí út með blátt og silfurlitað teip svona út um allt, kannski ekki flottasta innanhússkreytingin sem ég hef framið um dagana.

Svo keypti ég líka filter í loftkælinguna, sem á að halda frjókornum í burtu og ryksugaði hvern krók og kima íbúðarinnar. Eftir allt þetta versen var mesta svekkið að komast að því að þetta virkar ekki og þrátt fyrir mikla fyrirhöfn finnur frjóið sér leið inn í íbúðina á einhvern hátt. Það er líka frekar ógnvænlegt að horfa út um gluggann hjá mér á stóru birkitrén í bakgarðinum og risarisarisa frjóhirslurnar þeirra og að hugsa til þess að vegna þess að garðurinn er alveg umkringdur húsum, þá komist frjóið ekki í burtu og bara liggur hér yfir!

Ég þarf því bara að bíta í hið súra ofnæmisepli og bíða í nokkrar vikur, þangað til að þetta líður hjá. Er einhver til í að skrifa fyrir mig qualifying ritgerð á meðan?

Posted by erna at 06:33 EH
Geir Ágústsson dóni.

Ég lýsi því hér með yfir að Geir Ágústsson fær ekki að kommenta aftur á þessarri síðu. Fyrir sinn hroka og dónaskap. Hingað til hefur hann þó haldið sig nokkurn veginn á mottunni og mest verið með hroka en ekki neitt endalausan dónaskap. Nú hefur hann hins vegar tekið upp á því að vera með ómálefnaleg komment á mig á almannafæri og því segi ég bara, drukkni þú sjálfur í þínum eigin drullupolli Geir Ágústsson. Hér eftir verða komment þín strokuð út af þessarri heimasíðu.

Ykkur finnst ég sennilega ganga of langt, en Geir gerði það líka, takk fyrir.

Posted by erna at 08:44 FH
Laugardagur, 17 maí, 2003
Bjarni nörd hittir naglann á höfuðið!

Mér finnst Bjarni hitta svo naglann á höfuðið þegar hann talar um að kalla sjálfan sig nörd. Ég verð að taka undir með honum af heilum hug. Bjarni vakti upp þörf hjá mér fyrir að létta aðeins af sálu minni:

Ég kalla sjálfa mig oft nörd líka og er bara mjög, mjög, mjög ánægð með að vera nörd og vildi ekkert annað vera. Samt finnst mér oftast eins og fólk þurfi að hugga mig þegar ég segist vera nörd, kannski segja mér að það sé ekki alslæmt. Eða þá segja mér að það sé bara gott að vera nörd. Ef fólk þarf að taka það fram við mig að það sé bara fínt að vera nörd, þegar ég er að kalla sjálfa mig nörd, þá spyr ég bara, hvaðan kemur sú tilhneiging? Mér finnst það bara frekar móðgandi, af því að undir niðri, á bak við "huggunarorðin" liggur sú merking orðanna að það sé frekar neikvætt og óeftirsóknarvert að vera nörd. Það eru venjulega bara aðrir nördar sem finnst þeir ekki þurfa að hughreysta mig vegna nördaeiginleika minna og skilja hvað mér finnst bara kúl að vera nörd!

Ég er ekki bara feitur femínisti, ég er sko líka alger nörd, svona vísindanörd meðal annars, en ég á sennilega heima í mörgum nörda-undirflokkum. Sem betur fer!

Posted by erna at 01:18 EH
Bjór með Binnu

Skellti mér á barinn með Binnu. Það var svakalega gaman eins og venjulega þegar við hittumst og við krufðum heimsmálin og femínisma til mergjar. Ræddum um nafnahefðir, stofnfrumurannsóknir, fóstureyðingar, kynþáttafordóma og svo mætti lengi upp telja. Hressandi!! Það er nefnilega svo erfitt oft að rökræða við Kanann, það fara alltaf allir strax í vörn og halda að maður sé að ráðast á þeirra þjóðarstolt.... sama um hvað er rætt!

Binnu fannst líka svakalega gaman að heyra það að andstaða Bush-stjórnarinnar við stofnfrumurannsóknir er í eðli sínu mjög andfeminísk. Ég skrifaði um það í fyrra.. Skemmtileg pæling svona í ljósi nývakins áhuga á femínisma á Ástkæra Ylhýra.

Posted by erna at 01:59 FH
La linea

Það var víst Línan, en ekki leirkarlarnir, sem segir Uhmm dahhhhhhh... á svo eftirminnilegan hátt að það er það fyrsta sem kemur manni í hug þegar maður ætlar að tjá morgunferskleika. Már fann flotta Línulinka, mæli sérstaklega með mynböndunum tveimur, þokkaleg Línunostalgía í gangi þar!

Annars verð ég að segja að ég hef sjaldan verið jafnánægð að vera kölluð Erna feita!

Posted by erna at 01:42 FH
Föstudagur, 16 maí, 2003
Dear Raed

Vá, var að taka eftir því að Salam Pax er farinn að blogga aftur! Frábært. Það var eitthvað svo spúkí að bloggið hans uppfærðist ekki. Svona eins og hann hefði bara dáið í stríðinu.

Posted by erna at 08:51 FH
Nýr dagur

Uhhmmm.. dahh (svona eins og leirkallarnir í sjónvarpinu í gamla daga sögðu). Var að vakna og líður mikið betur. Vaknaði barasta ekkert oft í nótt með stíflað nef, bara einu sinni. Kannski að birkitréð í garðinum sé bara búið með öll frjókornin. Ég skipti líka á rúminu mínu, einhver benti mér á að það gætu verið uppsöfnuð frjókorn á koddanum mínum og þar að auki er ég farinn að sofa með hausinn til fóta.. sko eða með hausinn frá glugganum, en ég fattaði að ég svaf náttúrulega með hausinn næstum út í glugga um daginn.

Þannnig að vonandi er þetta eitthvað aðeins að lagast. Talaði við Mörð í gær, hann hringdi í mig. Oh.. það munaði sko öllu. Nú er ég tilbúin í slaginn, einn, tveir og þrír, best að drífa sig á labbið!

Posted by erna at 08:48 FH
Fimmtudagur, 15 maí, 2003
Fúúúúúlt kvööööööööld

Oh.. fúlt kvöld. Ég kom heim og þá var garðpartý hjá frattinu, og varla hægt að heyra í sjálfum sér prumpa hérna inni. Svo náttúrulega fyrst ég var komin heim byrjaði ofnæmið aftur á fullu. Ég hafði svo ætlað út með stelpunum, því þær ætluðu á barinn og ákvað að verja síðustu fimm dollurunum af vikupeningnum í bjór með þeim. En, nei, þá skiptu þær um skoðun og fóru út að borða í staðinn. Það kostar meira en dollara fimm, þannig að ég komst ekki með. Urr... þetta hefði kannski reddast ef spinningtímanum mínum hefði ekki líka verið frestað. Nú sit ég hérna bara með hor í nös og get vaddla andað. Reyndi að hringja í Mörð í heilan hálftíma, en það er svo vonlaust að ná sambandi til Íslands. Loksins þegar ég náði sambandi var hann upptekinn.

Þetta er kannski bara smá hint að ég eigi bara að fara að læra. Það er bara svo vont þegar mig svíður svona í augun.... Helvítis. Ég ætti bara að vera á Íslandi, að minnsta kosti fæ ég ekki oðnemi þar og get talað við Mörð meira en tvisvar í viku.

Posted by erna at 08:48 EH
Miðvikudagur, 14 maí, 2003
Einstæð móðir griplufruma

Stundum væri bara svo mikið þægilegara að vera heima á Íslandi. Ég er búin að vera lasin af ofnæmi undanfarna daga. Mín kenning er að það sé birkitré í bakgarðinum heima hjá mér, því að ég finn mest fyrir þessu heima. Ég hef heldur aldrei verið eins slæm af ofnæmi, augun í mér hálfsokkin og hausinn fullur af hor. Það versta er að ég fæ ekki tíma hjá lækni til að fá lyf við þessu fyrr en í næstu viku. Frekar fúlt af því að ég veit nákvæmlega hvaða lyf virkar.

Það væri líka hægt að redda þessu öðruvísi ef að símasamband milli Ameríku og Íslands væri stöðugt. Ég reyndi í síðustu viku að hringja í lækni á Íslandi út af þessu, en náði aldrei sambandi. Reyndi aftur núna í morgun og fékk heldur ekki samband. Þetta er svo fáránlegt. Eiginlega efni í heila færslu, hvernig það er bara happa glappa hvort að maður geti hringt heim eða ekki. Stundum virkar bara að hringja í farsíma, eins og greinilega í dag, stundum virka bara heimasímar.

Klukkan er orðin hálfþrjú og ég þarf að koma mér í vinnuna, þrátt fyrir kránkleika. Það að vera með frumur í rækt er eins og að eiga börn. Í augnablikinu er ég einstæð móðir griplufruma sem bíða eftir mér í hitaskáp úti í bæ. Ég vildi að þær væru feðraðar, þá þyrfti ég ekki að sinna þeim sjálf....

Posted by erna at 02:38 EH
Þriðjudagur, 13 maí, 2003
Feitur femínisti, það er ég =)

Jæja, Salvör er loksins búin að gefa betri skýringu á orðum sem hún lét falla á síðunni hennar Katrínar. Gott mál =)

Það sem mér finnst pínu grátbroslegt er hins vegar fólk sem kommentar á síðuna hjá henni með skæting og skítkast. Það er eins og það skíni í gegn hjá þessu fólki að það sé vonsvikið yfir því að hún skýrði mál sitt og að þetta hafi ekki verið meint sem hótun eftir allt. Pínu fúlt að hafa minna til að klína uppá okkur feminista, er það ekki? Pínu fúlt að geta ekki falið femínistahræðsluna á bak við það að einhverri okkar hafi orðið á að misstíga sig!

Ég verð að viðurkenna að mér brá þegar ég las ummæli Salvarar á síðu Katrínar. Mér fannst líka Salvör ekki taka af allan vafa um tilgang ummælanna þegar hún svaraði mér hér og annars staðar. Hún hefur fyrir mér hins vegar gert það núna og ég vona bara að ég sjálf hafi ekki gengið of langt í þessu máli. Sennilega var þetta allt einn stór misskilningur.

En gvuð, ég verð nú bara að segja það, svona í ljósi skítkasts og skætings sem femínistar hafa fengið á sig undanfarið. Mikið vil ég frekar vera svona dæmigerð femínistakjelling, náttúrulega örugglega feit og ljót líka og algerlega kynþokkalaus heldur en að vera ekki femínisti. Segir það ekki svolítið um andstæðinga okkar að það versta sem þau geta sagt um okkur er að við lítum örugglega ekki vel út?

Feitur femínisti, það er ég =)

Posted by erna at 10:48 EH
Búinn með þetta tíj eijj dót.

Jæja, þá er ég opinberlega búin að skila af mér öllum einkunnum og er laus við alla vælandi pre-meddara og mastersnema for gúdd. Ekki meiri kennsla hér næstu árin. Ég verð nú bara að segja það að það er ekki gaman að kenna fólki sem er að kaupa sér meistaragráðu fyrir svosem eins og sextíu þúsund dollara og enga vinnu. Oh, ég er vond kona. En kommon. Þriðjungur meistaranemanna skilaði ekki einu sinni af sér rannsóknarritgerðinni sem þau áttu að skrifa. Svona er þetta hérna í Amrígunni, þeir sem eiga pjeníng geta keypt allt, jafnvel námsgráður. Áður hélt ég að svona tíðkaðist bara á Indlandi....

Æj, ég ætti nú ekki að vera svona neikvæð. Ég er búin með þetta dæmi og er alveg einstaklega heppin að vera líffræðingur, fólk í öðrum fögum þarf að fara yfir próf á hverju misseri í að minnsta kosti fjögur ár af þeirra doktorsnámi. Í staðinn fæ ég bara að vinna meira á labbinu =) Ekki slæm skipti það. Hverjum finnst svosem ekki skemmtilegara að pína frumur en að fara yfir óskiljanleg próf. OMG... eitt kvart enn: Einn nemendanna þurfti meira að segja að koma til okkar og lesa prófið sitt upphátt af því að hann skrifaði svo illa að ég bara stautaði mig ekki fram úr skriftinni hans. Ég hélt næstum því að hann væri að skrifa híróglýfur, en þegar ég hugsaði mig betur um þá leit þetta eiginlega meira út eins og hebreska. Tengingin kom þegar hann trítlaði inn í stofuna til mín með litlu gyðingakollhúfuna á hausnum. Hvað sem þær nú heita... svona er ég nú fáfróð. Það er annar hver gaur með svona á hausnum hérna. Eiginlega pínu krúttlegt að sjá gaura í töffaraátfitti og svo með svona kollhúfu, en reyndar eru flestir kollhúfustrákanna klæddir eins og litlir pabbastrákar.... Úff, hvar endar þetta, það er ekkert samhengi í þessum skrifum hjá mér.

Eníveis, I'm elated. No more Molecular Immunology TAing!

Posted by erna at 12:10 FH
Sunnudagur, 11 maí, 2003
Bissí helgi

Vá, þetta er búið að vera þokkalega bissí helgi. Ég er búin að fara yfir 40 próf og nokkrar ritgerðir og auk þess fara í dagsgöngu með gönguklúbbi Columbia við Lake Tioretti. Ég er gersamlega búin á því en það er stress framundan í vikunni svo að ég þarf að slaka aðeins á.... Gott mál samt, fínt að vera nær búin með TA skylduna og að hafa komist aðeins út í náttúruna/rigninguna.

Posted by erna at 10:47 EH
Laugardagur, 10 maí, 2003
Guðný

Tjáh... er ekki litla systir (sko þessi minni) bara búin að vera að blogga í nokkra mánuði og segir manni fyrst frá því núna!

Gjessovel, Guðný systir bloggar, ekkert rusl á ferðinni þar!

Posted by erna at 10:32 FH
Föstudagur, 9 maí, 2003
Póstlistinn margumtalaði...

Jæja, ég setti upp netfang á vefþjóninum sem vistar síðuna mína og skráði mig svo á margumtalaðan femínistapóstlista. Ég verð nú bara að segja það að ég skil alveg Unni og og þeirra pirring. En ég ætla að gefa þessu sjéns, af því að það er líka fullt af fólki sem er að tala um spennandi hluti og er ekki að leika löggur úti í bæ... =)

Posted by erna at 07:49 EH
Internetlöggur!

Ef ákveðin manneskja ákveður að ögra og vísa á grófa mynd á heimasíðu sinni, hefur hún þá ekki lengur málfrelsi? Eru aðilar í þjóðfélaginu sem hafa betri dómgreind á það en aðrir hvað má gera og hvað ekki, hvað sé siðferðislega rétt og hvað ekki, á hvað megi linka og hvað ekki?

Kannski það besta var að Katrín var að ögra, það tókst og hún fékk þau viðbrögð sem hún vildi. Hún ýtti á takka og fékk rétta útkomu.

Fólk getur bara sleppt því að skoða heimasíður sem það veit að eru ögrandi, það er kosturinn við internetið, það er enginn píndur til að skoða neitt. En að vera að setja sig á háan hest og vera með hótanir.... hvar endar þetta? Við stefnum vonandi ekki hraðbyri í eitthvað nágrannanjósnunarsamfélag þar sem allir klaga alla. Vonandi fáum við öll að tjá okkur eins og við viljum í framtíðinni, ekki bara nokkrir útvaldir einstaklingar sem eru sjálfskipaðar siðalöggur í samfélaginu.

Posted by erna at 08:52 FH
Bjórinn klikkar ekki

Ah.. var að koma af bjórkvöldi, ógisslega gaman þar eins og venjulega að hitta Ísslendingaklíkuna og svona. Það vantar sko ekki hressleikann í þetta fólk!

Siggi klikkaði heldur ekki á neinu og mætti á svæðið með miða á Placebo þann 7. júlí. Júhú, hlakka ekkert smá til. Ég er líka að fara á tónleika með engum öðrum en meistara Dave Brubeck í lok júní. Það er ekkert smá gaman að búa í þessari borg. Hvað sem maður vill fær maður..

Á morgun verð ég yfirsetukelling í lokaprófi í ónæmisfræði. Ég er nú ekki viss um að ég verði jafnkostuleg og prófessorsekkjurnar sem sitja yfir prófum í HÍ, en ég geri mitt besta. Svo þarf ég að fara yfir öll prófin og heimildarritgerðir meistaranemanna líka. Ef ég verð svakalega dugleg og klára þetta allt á laugardaginn verða verðlaunin dagsferð með gönguklúbbi Columbia á Sunnudaginn.

Posted by erna at 01:04 FH
Fimmtudagur, 8 maí, 2003
Syfjublogg

Ég hefði ekki átt að blogga svona fallega um veðrið, það er komin ausandi rigning. Ég hangi hérna bara fyrir framan tölvuna í einhverju algeru rugli af því að ég vil ekki fara að sofa. Góða bullið í mér. En það er bara svo mikill hávaði í nágrönnum mínum að ég veit að ég verð geðbiluð af bræði ef ég fer í rúmmið.

Annars stefnir allt í bissí helgi. Ég skráði mig nefnilega í gönguferð á sunnudaginn, reyndar á svipaðar slóðir og síðast. En áður en ég fer í gönguferðina þarf ég að gera svo vel og fara yfir fjörutíu lokapróf í ónæmisfræði og tíu heimildaritgerðir. Ætli það takist ekki alveg á einum sólarhring? Vonandi, því að annars fer ég ekki í neina göngu.

Það góða er að þegar ég verð búin með þessa yfirferð er ég búin með alla kennsluskyldu fyrir námið mitt. Á bara eftir að taka tvo valkúrsa en annars verða bara rannsóknir í gangi næstu árin. Jibbí.

Posted by erna at 01:14 FH
Miðvikudagur, 7 maí, 2003
Gott veður!

Næs að hjóla heim í góða veðrinu maður! Það var hvorki meira né minna en þrjátíu stiga hiti og blíða í dag, pínu mistur, en það er bara betra til þess að hlífa fölri húð minni fyrir stökkbreytandi geislum sólarinnar. Í dag var líka fyrsti dagurinn sem mér fannst vera orðinn einhver loftraki að ráði. Á sunnudaginn í hjólaferðinni var ég einmitt að hugsa um hversu dagurinn væri eiginlega líkur íslenskum júlídegi. Hlýtt, en skýjað og nær enginn raki í loftinu, þannig að það var mjög ferskt loft úti og skyggnið mjög gott. Ég verð reyndar að taka það fram að mér fannst hlýtt en flestir aðrir á svæðinu hefðu sennilega ekki verið sammála mér!

En svona er það nú víst bara. Vinum mínum finnst ég vera eitthvað svo svaka "extreme" af því að mér er ekki kalt þegar þeim er kalt, mér finnst gaman að fara í fjallgöngu í snjókomu og mér finnst gaman að hjóla úti í rigningu. Ég meina VÁ! Ef að mér væri alltaf kalt þegar þeim er kalt og finndist ekki gaman að gera hluti úti ef það eru ekki þrjátíu stig og sól, þá er ég nú ansi hrædd um að líf mitt hefði verið aðeins litlausara undanfarin ár!

Ég sagði þeim sko bara að ég væri ekkert extrím. Mér þætti til dæmis extrím að ganga þvert yfir Grænlandsjökul eða labba á Norðurpólinn.

Ég held ég sé með annan öfgakvarða en félagar mínir hér í Amrígunni.

Posted by erna at 05:14 EH
Þriðjudagur, 6 maí, 2003
Búin áðí

Þetta er búið að vera erfiður dagur, en samt alveg ágætur. Kom ýmsum hlutum í verk og sona. Ég er farin að sofa, góða nótt.

Posted by erna at 11:00 EH
Mánudagur, 5 maí, 2003
Guð blessi reiðhjólin

Síðasta haust þegar ég labbaði framhjá St. John Divine kirkjunni við endann á götunni hjá mér var dýramessa í gangi, þar sem fólk gat komið með dýrin sín og látið blessa þau. Það var ansi kúl, því að ég fékk að klappa lamadýri og sá paradísarfugl. Ég hélt samt að það væri ekki hægt að koma mér meira á óvart fyrr en ég sá eftirfarandi tilkynningu á þessari heimasíðu:

The Fifth Annual Blessing of the Bikes
May 17 (Saturday): 2 pm
Cathedral of St. John the Divine - 112th St. and Amsterdam Ave.

Það er spurning hvort að ég mæti ekki og láti blessa hjólið mitt!

Posted by erna at 11:22 EH
Hjólaviðburðurin

Hjólaferðin í gær var alveg frábær. Ég var mætt, hress og spræk klukkan sjö niður í Battery Park. Það var svoleiðis aragrúi af fólki af öllum stærðum og gerðum. Náttúrulega fólk allstaðar að úr heiminum eins og alltaf í New York. Mest bar þó á gortandi karlmönnum svona fyrst um sinn. Það var eiginlega alveg ótrúlegt hvað það voru margir menn sem töluðu mjög háum rómi um reiðhjól og svo hvernig þetta yrði nú allt saman miðað við hvernig þetta var í fyrra.. blablabla... =) Pínu krúttlegt eiginlega, en einhvern veginn þurfti að drepa tímann því að ferðin var ekki ræst fyrr en klukkan átta.

Ég hef heldur aldrei séð annan eins fjölda af bæði flottum og svo skrítnum reiðhjólum saman komin. Það var fullt af fólki sem var á tandem hjólum og svo líka fólk á svona hjólum sem maður liggur í og svo fullt af tandemútgáfunni af svoleiðis. Fyndnust fannst mér eiginlega vera hjól sem voru greinilega heimasmíðuð þannig að það var búið að skella öðru stelli ofaná hið eiginlega stell hjólanna og pedalarnir voru þar sem sætið er venjulega og lengst uppi sat svo knapinn. Fólk hafði líka mikið safnað sér saman í lið og skreytt hjálmana sína til þess að auðkenna sig. Það var til dæmis einn hópur sem hafði límt lítil plastreiðhjól ofaná hjálmana og svo annar sem hafði skreytt þá með bleikum fjöðrum.

Það sem kom mér eiginlega mest á óvart er hvað Manhattan er alveg svakalega lítil. Það voru ekki liðnar nema um tíu mínútur korter af hjólatúrnum frá ráslínunni upp Avenue of the Americas, þegar ég fattaði að ég var komin upp á þrítugasta og fjórða stræti og svo stuttu seinna alveg upp að Central Park. Manni virðist eyjan mikið lengri venjulega af því að það tekur svo langan tíma að komast á milli í söbbvei og leigubílum. Söbbvei keyrir hægt og stoppar oft og ef maður er á bíl þarf að stoppa á nokkurra blokka fresti á rauðu. Reyndar líka ef maður er á hjóli svona þegar maður er ekki að taka þátt í sérstökum hjólaviðburði.

Það var svo ekki fyrr en að ég var komin hálfa leið í gegnum Queens að þetta fór eitthvað að ganga, það var alltaf verið að stoppa okkur til þess að hleypa umferð í gegn. Það var svakalegt stuð að hjóla alveg á fúll spítt um göturnar innan um allt hjólreiðafólkið. Þetta var líka alveg hreint bara skítlétt eiginlega af því að við þurftum að stoppa svo oft útaf umferð, ég stoppaði aldrei á svokölluðum "rest-stops" bara rétt greip vatn og hélt áfram, því að það var svo mikil þvaga af fólki þar og svo var ég heldur ekkert þreytt. Þetta vour 68 kílómetrar alls og ég var minna þreytt heldur en eftir meðal-spinningtíma! Það kom sjálfri mér eiginlega á óvart, því að ég er ekki alveg í toppformi þessa dagana, eiginlega svolítið langt frá því. En þegar ég settist upp á hjólið var bara eins og ég hefði ekki gert annað undanfarið en að hjóla. Það var algert æði!

Það var líka pínu festival í gangi á Staten Island við markið. Þar lét ég mig hafa það að bíða í einn og hálfan tíma eftir ókeypis nuddi, en það var sko vel þess virði. Ég fékk eðalnudd í tuttugu mínútur og gersamlega sveif út af hátíðarsvæðinu. Í dag er ég svo ekki einu sinni með vott að harðsperrum, ótrúlegt en satt!

Ég held að ég geri þetta alveg örugglega aftur á næsta ári, en þá ætla ég að reyna að fá einhvern til þess að koma með mér, og kannski dúlla mér meira í gegnum þetta svona til að njóta stemningarinnar betur. En ég er allavegana mjög sátt í dag og reyndar líka frekar þyrst!

Posted by erna at 06:36 EH
Sunnudagur, 4 maí, 2003
Feitar háskólastelpur...

Talandi um kvenfyrirlitningu, það er víst til nóg af henni í heiminum, en ég var að vafra stefnulaust um netið og fann þessa lesendagrein, sem að birtist í fréttablaði Purdue University í BNA. Það er náttúrulega ansi tilgangslaust að vera eitthvað að frústrerast yfir heimsku einhvers háskóladrengsins hér í landi (ég er nógu frústreruð yfir Sigma Nu, nágrönnum mínum), en mér finnst þetta bara svo sorglegt. Er ég núna orðin ritskoðunarlögga af því að ég er að hneykslast á þessu? Er líklegt að ég myndi rekast á sambærilega grein um karlmenn í einhverjum nafntoguðum háskóla þessa lands, ef ég legði hart að mér? Af hverju finnst mér þetta vera verra af því að þetta kemur frá blaði gefnu út af nemendum virtrar menntastofnunar? Eiga þeir að vera eitthvað betri en annað fólk?

Posted by erna at 11:17 EH
Laugardagur, 3 maí, 2003
Bike New York

Á morgun er ég að fara að taka þátt í þessum hjólatúr! Júhú =) Ég er ekkert smá heppin að Mörður hafi komið með fákinn góða til mín um síðustu helgi.

Það verður lagt af stað frá Battery Park, syðst á Manhattan klukkan átta í fyrramálið, hjólað sem leið liggur eftir Manhattan endilangri norður í Bronx, þar er tekin smá lykkja, og svo farið aftur inn á Manhattan, yfir til Queens, suðureftir í gegnum Brooklyn og svo er toppurinn á ferðinni og erfiðasti hlutinn víst, að fara yfir Verasano brúnna yfir til Staten Island. Verasano brúin er lengsta hengibrú í heimi og í Bike New York ferðinni er eina tækifærið að fara yfir hana öðruvísi en á bíl. Á Staten Island verður svo festival fram eftir degi, og þaðan mun ég svo taka ferjuna með öðrum þáttakendum til baka til Manhattan.

Leiðin er 42 mílur, eða 68 kílómetrar. Veðurspáin er góð, öllu mildara veður en búið er að vera undanfarið, 15°C og sól. Eins gott að bera á sig vel af sólarvörn og setja vaselín á rasskinnarnar svona til að minnka núninginn!

Posted by erna at 11:09 EH
Föstudagur, 2 maí, 2003
Surprise! Meira um femínisma... þetta fer nú bara að verða allt of mikið, kann enginn góðan brandara?

Ég ætti kannski að taka það fram að ég er ekki að fordæma stefnu Femínistafélagsins eins og hún leggur sig hérna á blogginu hjá mér. Ég er bara
að velta félaginu fyrir mér og stefnu þess, hvað mér finnst passa við mínar skoðanir og hvað ekki.

Það má eiginlega segja að ég sé að máta Femínistafélagið og svona sjá hvernig ég myndi taka mig út í því. Þetta er kannski svona mátun án þess að vera með spegil, því að ég hef ekki skráð mig á hinn margumtalaða póstlista til þess að skiptast á skoðunum þar.

Þegar ég skrifaði fyrstu færsluna vissi ég eiginlega ekki hvað ég var að fara út í af því að ég hef enga tilfinningu að ráði fyrir því hvað er í umræðunni heima á Íslandi og um hvað hún snýst. Þess vegna held ég að margir hafi tekið orð mín of alvarlega, bæði fólk sem hefur kommentað hér og fólk sem hefur meilað á mig persónulega vegna skrifa minna.

Málið er sko ekki að ég sé að gagnrýna Femínistafélagið sem félag. Ég meina, sko það er nú félaginu og tilvist þess að þakka að ég er að velta því fyrir mér yfirleitt hvernig femínisti ég er.

Pælingar mínar hófust upp úr því að mér var sagt að það hefðu komið konur í sjónvarpið fyrir hönd femínistafélagsins og þær hótað því að beita fyrirtæki viðskiptabanni ef þau birtu auglýsingar sem fælu í sér kvenfyrirlitningu. Auk þess áttu þessar konur að hafa sagt að femínistafélagið myndi vera með ráðgjöf, þar sem það færi yfir auglýsingar fyrir fyrirtæki og samþykkti þær eða ekki.

Ég náttúrulega veit ekki hvort að þetta var svona nákvæmlega, en mér fannst þetta bara svona pínu tú mödds! Og svo ofan á það las ég hinn margfræga Gyðudraum og las einhvers staðar að einhver hefði látið það út úr sér fyrir hönd femínistafélagsins að staða kvenna á Íslandi í dag væri eins og staða svartra í BNA á fyrri hluta síðustu aldar.

Ég bara gat ekki orða bundist og skrifaði fyrsta pistilinn, og var með honum svona að pæla í því hvernig félagið virkaði á utanaðkomandi aðila. Ég var ekki að fordæma félagið í heild, ég var bara svona að segja frá minni upplifun, svona hvað ég frétti hingað til Ameríku, og hvernig það virkaði á mig.

Og svo héldu pælingarnar áfram og ég fór að velta því fyrir mér hvort ég ætti heima í félaginu og svo framvegis. Ég held að orð mín hafi sennilega fengið of mikinn þunga sem bein gagnrýni á femínistafélagið út af þeirri umræðu sem (ég held) að hafi verið í gangi heima.

Ég verð líka kannski að geta þess að vera mín hér í Bandaríkjunum hefur áhrif á skoðanir mínar á ákveðinn hátt. Hér eru fjölmiðlar alveg hreint svakalega leiðinlega hlutlausir, nema það skín þjóðremba úr öllum hlutum þessa dagana því að það er víst í tísku. Það má ekkert segja af ótta við vald auglýsenda sem aftur óttast vald neytandanna, neytenda sem eru svo skinheilagir og þykjast hafa meiri móralska réttsýni en aðrir og beita fyrirtæki þvingunum og þrýstingi ef þau auglýsa í röngum miðlum.

Mér þætti mjög sárt að sjá að staðan yrði svona heima á Íslandi eftir einhver ár, að ákveðnir hópar teldu sig vera dómbærari á það en aðrir hvað sé siðferðislega leyfilegt og rétt og innan raunhæfra marka. Þess vegna er ég pínu hrædd við að femínistar séu að fara af stað með þrýsting sem þennan á fyrirtæki, hvort sem það er gert fyrir hönd félagsins eða í skjóli þeirrar umræðu sem félagið hefur hlotið undanfarið. Tilgangurinn er göfugur það vantar ekki, en helgar hann meðölin? Ég er ekki viss um það.

Ég las líka grein Múrsins að ábendingu góðs vinar og verð nú bara að segja að mér finnst hún nokkuð góð, vel skrifuð og passlega hæðin. Ég held að okkur öllum sem höfum staðið í þessarri umræðu veitti ekki af því að bakka aðeins og hlægja með sjálfum okkur að því hvað við höfum gengist upp í því að taka þessa umræðu alvarlega.

Ég vil bara að gefnu tilefni þakka Femínistafélaginu og aðstandendum þess fyrir að koma af stað þessarri hressandi umræðu um femínisma. Þótt mér líki ekki persónulega við sumar öfganna sem fram hafa komið hafa þær átt sitt í að hafa áhrif á minn hugsanagang undanfarna daga.

Posted by erna at 08:39 EH
Fimmtudagur, 1 maí, 2003
Spinning og oj.. nei, ég meina sko kakkalakkar.

Ah... ég var að koma úr spinning. Það var sko alveg stórfínt. Kannski pínu of stelpó, ég fíla strákakennara alltaf betur því að þeir eru yfirleitt með harðari tónlistarsmekk og eru ekkert að láta mann gera þessar gersamlega tilgangslausu armbeygjur á stýrinu. En spinning var það nú samt heillin...

Þegar ég kom heim dreif ég mig í því að hita kvöldmatinn upp í örraranum. Þegar ég svo stóð upp til að sækja góðgætið lá risa-kakkalakki á bakinu á gólfinu. "It's that time of year again". Ég var einmitt að hugsa áðan hvað það væri gott að geta alltaf bara farið á stuttermabol í vinnuna og svona, hvað það væri nú alltaf skrítið en samt alveg unaðslegt að rölta heim á leið að kvöldi til og það væri kaldara inni en úti og heitt og dimmt bæði í einu. Ojj.. mér var svo kippt snögglega út úr draumheiminum af þessari viðbjóðslegu rauðleitu skepnu sem lá spriklandi á bakinu fyrir framan mig. Ég henti ofaná lakkann einu stykki New York Times og fór í skó og hoppaði ofaná blaðinu. Oft. Mjög oft. Nú liggur NYT á gólfinu í eldhúsinu ofaná (vonandi) krömdum kakkalakka og þetta verður ástandið á heimilinu þangað til að ég safna í mig kjarki til að gera eitthvað í málinu. Það eina sem hvetur mig til þess að grípa til aðgerða er að þetta kvikindi, sem ku vera ansi lífseigt eigi eftir að vekja mig í nótt með því að banka í öxlina á mér og ég muni deyja úr hjartaáfalli horfandi í augun á krömdum kakkalakka.

Posted by erna at 10:28 EH