Jæja, þá er ég orðin nógu góð af ofnæminu eftir heila rigningarviku, þannig að ég dreif mig loksins af stað og hjólaði í vinnuna í morgun. Vá, það var ekkert smá fínt maður!
Vinnudagurinn var OK, ég varði of miklum tíma í að vera of stressuð yfir einu markmiðinu í rannsóknaráætluninni og kom því engu í verk varðandi hana. Pirrandi, en þetta var náttúrulega algert bull í mér og ég er komin aftur niður á jörðina eftir að hafa hugsað mig vel um.
Þegar ég var svo að hjóla heim aftur, fór ég fram úr strætó sem keyrði skrykkjótt um göturnar, stoppaði og keyrði hundrað metra til skiptis. Ég spáði ekki meira í það, en svo þegar strætóinn fór fram úr mér aftur, þá sá ég að á ljósaskiltinu á hliðinni á honum blikkaði "EMERGENCY" og aftan á honum þar sem venjulega stendur strætónúmerið blikkaði "help, call 911"! Vá, ég hefði sko hringt í næn vonn vonn hefði ég haft síma á mér, frekar skrítið!
Svo var journal club eftir vinnu, við ætlum að gera eins og síðasta sumar og hittast einu sinni í viku, drekka bjór og ræða vísindagreinar. Svona meira, úúú.. eru vísindin ekki frábær, greinar heldur en eitthvað sem tengist beint sviðinu sem við vinnum á. Samt allt líffræði náttúrulega.
Ég sagði þeim frá SARS from the stars við góðar undirtektir og hlátrasköll. Það góða við svona rugludalla eins og Whickramashinge er að okkur hinum finnst við vera svo svakalega klár þegar við gagnrýnum aðferðir hans og hugmyndafræði....
Lora kom svo með mér heim og við spjölluðum það sem eftir lifði kvölds, næs, ekkert ritgerðarkjaftæði bara tjillað og svona.
Ég var að lesa í gegnum póstinn á femínistapóstlistanum og fann þá linkinn www.ifeminists.com.
Ég verð nú bara að segja það að mér finnst hinn svokallaði ifeminismi höfða mikið betur til mín heldur en femínisminn sem virðist vera við lýði í umræðunni á femínistapóstlistanum. Mér finnst líka stefnuskrá Femínistafélagsins vera of afturhaldssöm. Ég er til dæmis fylgjandi lögleiðingu vændis, get verið algerlega sammála Sigga Pönk í því að það sé niðurlægjandi fyrir konur að tala um að klám sé niðurlægjandi fyrir konur og svo framvegis.
Miðað við stefnuskrá Femínistafélagsins held ég að ég gangi seint í félagið og ég held að ég hafi ekki mikið gagn heldur af umræðunum á póstlistanum. Þetta er algerlega mín persónulega skoðun, ég er ekki að setja út á annars ágætan og mjög þarfan félagsskap.
Ég er búin að vera að pæla slatta í femínisma í vetur, mest síðan ég kynntist henni Binnu, og ekki minnkuðu pælingarnar við þá umræðu sem orðið hefur um Femínistafélagið. Ég sé hins vegar að ég á alls ekki heima í þeim félagsskap, er pínu svekkt yfir því, en á móti kemur náttúrulega að ég á ekki eftir að búa á Íslandi að minnsta kosti næstu sex til sjö árin, þannig að orkunni er kannski betur varið í félagi sem stendur mér landfræðilega og hugmyndafræðilega nær.