Jæja, ég setti upp netfang á vefþjóninum sem vistar síðuna mína og skráði mig svo á margumtalaðan femínistapóstlista. Ég verð nú bara að segja það að ég skil alveg Unni og Má og þeirra pirring. En ég ætla að gefa þessu sjéns, af því að það er líka fullt af fólki sem er að tala um spennandi hluti og er ekki að leika löggur úti í bæ... =)
Ef ákveðin manneskja ákveður að ögra og vísa á grófa mynd á heimasíðu sinni, hefur hún þá ekki lengur málfrelsi? Eru aðilar í þjóðfélaginu sem hafa betri dómgreind á það en aðrir hvað má gera og hvað ekki, hvað sé siðferðislega rétt og hvað ekki, á hvað megi linka og hvað ekki?
Kannski það besta var að Katrín var að ögra, það tókst og hún fékk þau viðbrögð sem hún vildi. Hún ýtti á takka og fékk rétta útkomu.
Fólk getur bara sleppt því að skoða heimasíður sem það veit að eru ögrandi, það er kosturinn við internetið, það er enginn píndur til að skoða neitt. En að vera að setja sig á háan hest og vera með hótanir.... hvar endar þetta? Við stefnum vonandi ekki hraðbyri í eitthvað nágrannanjósnunarsamfélag þar sem allir klaga alla. Vonandi fáum við öll að tjá okkur eins og við viljum í framtíðinni, ekki bara nokkrir útvaldir einstaklingar sem eru sjálfskipaðar siðalöggur í samfélaginu.
Ah.. var að koma af bjórkvöldi, ógisslega gaman þar eins og venjulega að hitta Ísslendingaklíkuna og svona. Það vantar sko ekki hressleikann í þetta fólk!
Siggi klikkaði heldur ekki á neinu og mætti á svæðið með miða á Placebo þann 7. júlí. Júhú, hlakka ekkert smá til. Ég er líka að fara á tónleika með engum öðrum en meistara Dave Brubeck í lok júní. Það er ekkert smá gaman að búa í þessari borg. Hvað sem maður vill fær maður..
Á morgun verð ég yfirsetukelling í lokaprófi í ónæmisfræði. Ég er nú ekki viss um að ég verði jafnkostuleg og prófessorsekkjurnar sem sitja yfir prófum í HÍ, en ég geri mitt besta. Svo þarf ég að fara yfir öll prófin og heimildarritgerðir meistaranemanna líka. Ef ég verð svakalega dugleg og klára þetta allt á laugardaginn verða verðlaunin dagsferð með gönguklúbbi Columbia á Sunnudaginn.