Fimmtudagur, 8 maí, 2003
Syfjublogg

Ég hefði ekki átt að blogga svona fallega um veðrið, það er komin ausandi rigning. Ég hangi hérna bara fyrir framan tölvuna í einhverju algeru rugli af því að ég vil ekki fara að sofa. Góða bullið í mér. En það er bara svo mikill hávaði í nágrönnum mínum að ég veit að ég verð geðbiluð af bræði ef ég fer í rúmmið.

Annars stefnir allt í bissí helgi. Ég skráði mig nefnilega í gönguferð á sunnudaginn, reyndar á svipaðar slóðir og síðast. En áður en ég fer í gönguferðina þarf ég að gera svo vel og fara yfir fjörutíu lokapróf í ónæmisfræði og tíu heimildaritgerðir. Ætli það takist ekki alveg á einum sólarhring? Vonandi, því að annars fer ég ekki í neina göngu.

Það góða er að þegar ég verð búin með þessa yfirferð er ég búin með alla kennsluskyldu fyrir námið mitt. Á bara eftir að taka tvo valkúrsa en annars verða bara rannsóknir í gangi næstu árin. Jibbí.

Posted by erna at 01:14 FH