Talandi um kvenfyrirlitningu, það er víst til nóg af henni í heiminum, en ég var að vafra stefnulaust um netið og fann þessa lesendagrein, sem að birtist í fréttablaði Purdue University í BNA. Það er náttúrulega ansi tilgangslaust að vera eitthvað að frústrerast yfir heimsku einhvers háskóladrengsins hér í landi (ég er nógu frústreruð yfir Sigma Nu, nágrönnum mínum), en mér finnst þetta bara svo sorglegt. Er ég núna orðin ritskoðunarlögga af því að ég er að hneykslast á þessu? Er líklegt að ég myndi rekast á sambærilega grein um karlmenn í einhverjum nafntoguðum háskóla þessa lands, ef ég legði hart að mér? Af hverju finnst mér þetta vera verra af því að þetta kemur frá blaði gefnu út af nemendum virtrar menntastofnunar? Eiga þeir að vera eitthvað betri en annað fólk?