Laugardagur, 3 maí, 2003
Bike New York

Á morgun er ég að fara að taka þátt í þessum hjólatúr! Júhú =) Ég er ekkert smá heppin að Mörður hafi komið með fákinn góða til mín um síðustu helgi.

Það verður lagt af stað frá Battery Park, syðst á Manhattan klukkan átta í fyrramálið, hjólað sem leið liggur eftir Manhattan endilangri norður í Bronx, þar er tekin smá lykkja, og svo farið aftur inn á Manhattan, yfir til Queens, suðureftir í gegnum Brooklyn og svo er toppurinn á ferðinni og erfiðasti hlutinn víst, að fara yfir Verasano brúnna yfir til Staten Island. Verasano brúin er lengsta hengibrú í heimi og í Bike New York ferðinni er eina tækifærið að fara yfir hana öðruvísi en á bíl. Á Staten Island verður svo festival fram eftir degi, og þaðan mun ég svo taka ferjuna með öðrum þáttakendum til baka til Manhattan.

Leiðin er 42 mílur, eða 68 kílómetrar. Veðurspáin er góð, öllu mildara veður en búið er að vera undanfarið, 15°C og sól. Eins gott að bera á sig vel af sólarvörn og setja vaselín á rasskinnarnar svona til að minnka núninginn!

Posted by erna at 11:09 EH