Miðvikudagur, 30 apríl, 2003
Kastljós, schmjastljós

Oh.. ég ætlaði að fara á ruv.is og horfa á umtalað Kastljós, en þá er RÚV bara ekki að standa sig í stykkinu og upptakan þar er vikugömul! Oh. fúlt!
Það er nú alveg nógu erfitt að gera sér grein fyrir hvað er í gangi á Íslandi þó að Ríkissjónvarpið sé ekki að klikka líka.

Ætli tíma mínum sé líka ekki betur varið í að borga reikninga og sækja um vegabréfsáritunarframlengingu í kvöld...

Posted by erna at 08:24 EH
Þriðjudagur, 29 apríl, 2003
Enn um femínisma....

Ég ætla bara að svara kommentinu frá Binnu hérna í annarri færslu.

Mér finnst ímynd femínista skipta máli. Mér finnst skipta máli að baráttufólk kvenfrelsis og jafnréttis sé trúverðugt í sínum málflutningi, því að annars er allt unnið fyrir gíg. Við verðum að skapa okkur virðingu og hún skapast seint með því að hvetja fólk til að taka lögin í eigin hendur ef það er ekki sátt við hvernig unnið er úr hlutunum í þjóðfélaginu. Við verðum að vera meðvitaðar um það hvernig rödd okkar útávið hljómar, þannig að baráttan verði hnitmiðaðri og að sem flestar konur vilji taka þátt í baráttunni.

Það sem ég hef lesið um Femínistafélagið veldur því að mig langar minna og minna að taka þátt í því sem í því félagi fer fram, vegna þess að ég er á öndverðum meiði við stefnuskrána og það sem ég hef heyrt að frá félaginu komi.

Ég tel mig vera femínista, samt er ég á móti banni við vændi, hef ekki trú á að það sé hægt að "banna" klámvæðingu og finnst alveg óþolandi þegar við konur erum alltaf að tala um hvora aðra eins og einhverja minni máttar. Sama hvaða orðum það er kallað þá finnst mér það óþolandi árátta að tala um fólk sem fórnarlömb og ætla bara að banna hlutina í stað þess að leita að lausnum á hinum raunverulega vanda.

Þess vegna held ég að ég myndi ekki eiga heima í þessu félagi. Mér finnst þetta gamaldags, mér finnst þetta vera fórnarlambsfemínismi og mér finnst vera of miklar öfgar í umræðunni til þess að mig langi til að taka þátt í þeim.

Posted by erna at 10:29 EH
Femínistapóstlistinn

Ég er sko alveg sammála Salvöru um að það hafi verið þörf á að stofna Femínistafélagið. Færslan mín hér að neðan var svona kannski aðeins til þess að benda á hvernig ímynd félagsins virkar á utanaðkomandi fólk, þetta er kannski ástæðan fyrir því að femínistar hafa neikvæða ímynd útávið, af því að það er oftast mest öfgasinnaði hópurin sem er mest áberandi!

Ég verð nú líka að segja það að þó að ég sé enginn aðdáandi Flugleiða finnst mér hálffáránlegt að vera að kæra þessar auglýsingar. Mér finnst það eitt og sér vera öfgar og finnst ekki alveg viðeigandi að taka einstök fyrirtæki fyrir í svona málum.

Varðandi póstlistann, þá hefur mér áður verið bent á það að búa til sér-netfang fyrir ímeil frá þeim. Það finnst mér bara ekki góð lausn fyrir mig. Af hverju eiga allir að vera að búa til sérnetföng til þess að halda utan um umræðu sem þessa?
Fyrir það fyrsta þá er það náttúrulega mjög dýr aðferð, ef aðstandendur listans hafa pælt í því, því að þá er eintak af hverjum einasta tölvupósti á meilsörverum út um allan bæ og allan heim..... Sjö hundruð póstar í sjöhundruð eintökum, það gerir hálfa milljón pósta!
Í öðru lagi þá er langbest að fylgjast með svona umræðu á vef, þar sem hægt er að skoða margar færslur í einu, með því að "skrolla" í gegnum síðu í stað þess að opna einn og einn tölvupóst í einu.
Til dæmis tók Salvör það fram að hún hefði fengið hundrað pósta um helgina frá þessum lista. Mér myndi finnast gaman að skoða það á heimasíðu, en vil ekki þurfa að halda utan um það sjálf á eigin-netfangi.
Salvör bendir mér á í kommentum að það hafi komið yfir sjöhundruð póstar bara í apríl og virðist vera að benda á það til rökstuðnings því að ég eigi nú að skrá mig... En ÞAÐ er einmitt ástæðan fyrir því að ég vil ekki skrá mig.

Ég bara skil ekki af hverju í ósköpunum það er ekki stofnaður vefur til að halda utan um þetta til að gera umræðuna aðgengilega!

Posted by erna at 07:46 FH
Mánudagur, 28 apríl, 2003
Femínistar? Kommon!

Ég fann þetta ávarp í gegnum síðuna hjá . Gvuð minn almáttugur segi ég nú bara. ÚFF. Mikið er ég fegin að vera ekki í þessu félagi ef þetta er það sem fer fram á þessum fundum!

Ég fæ fréttir frá Íslandi að forsprakkar þessa félags finnist það góð hugmynd að standa í einhverri ritskoðun, eins og þær séu hið fullkomna "autoritet" fyrir það hvað er siðlegt og hvar ekki, hvenær auglýsingar lýsa kvenfyrirlitningu og hvenær ekki, og svo les maður svona pistil eins og þennan sem ég linka á, þar sem femínistar eru gerðir að einhverjum löggum! Skrattinn málaður á vegginn, lítið gert úr karlmönnum og veruleikinn einfaldaður svo að það verður hjákátlegt. Og alltaf eru gerð fórnarlömb úr konum. Alltaf þarf að koma og bjarga þeim greygörmunum því að þær geta það ekki sjálfar.

Ég hef verið pínu forvitin gagnvart Femínistafélaginu, vildi óska að umræðan færi ekki fram á póstlista heldur á vefsíðu, svo að ég gæti auðveldlega tekið þátt eða skoðað umræðuna án þess að þurfa að nota innboxið mitt til þess, ég fæ alveg nógu mikið af tölvupósti fyrir og er alveg á mörkunum að ná að halda utan um hann. Ég reyni að fylgjast með þessum málum svona úr fjarska en það er frekar erfitt svona frá útlöndum.

Það er því líklegt að mín mynd af þessu nýja félagi sé ansi skekkt af því sem fram kemur í umræðum á netinu, því að ég missi af nær allri fjölmiðlaumfjöllun sem fer fram á Íslandi. Þessi ritskoðunarpæling með auglýsingarnar, eindregin stefna á móti klámi og vændi (sem mér finnst kannski göfug en frekar óraunhæf) og svo þessar hugsjónir sem koma fram í ávarpinu hennar Gyðu, sem fá mig til þess að verða bara fyrir alveg svakalegum vonbrigðum með hvað félagið virðist hanga í gamaldags skoðunum og steríótýperingum.

Ég get ekki alveg séð að þetta sé einhver ný tegund af feminisma eins og Salvör reyndi að halda fram á sínu bloggi á sínum tíma. Úr fjarska virkar þetta allt saman mjög klisjukennt, gamaldags og afturhaldssamt.

Mig grunar reyndar að það séu örugglega mikið af þriðju kynslóðar femínistum í félaginu, en það fari bara minna fyrir þeim en fólki með öfgakenndar skoðanir sem svertir bara mannorð félagsins. Fólki sem virkar biturt og reitt.

Ég er reyndar heldur ekki sjálf viss um að það sé endilega pláss fyrir allar konur í einni svona fylkingu. Allar hljótum við jú að vera fylgjandi kvenréttindum, en skoðanirnar og áherslurnar er greinilega eins ólíkar og litir regnbogans.

Svona úr fjarska virðist vera að Femínistafélagið sé mjög öfgasinnaður hópur. Ég vona að það sé ekki meiningin.

Posted by erna at 11:40 EH
Starsight..

Úúúú.... gleymdi alveg að segja frá því hvern við sáum í óperunni á laugardaginn. Ég var næstumþví búin að segja hæ við Tobey McGuire, af því að mér fannst hann vera svo kunnuglegur... Fattaði svo að ég þekkti hann ekkert persónulega. Hann var í röðinni við hliðina á okkur á barinn í hléinu. Mjög þægilegt að geta bara sagt á íslensku: "Mörður, er þetta ekki kóngulóarmaðurinn við hliðina á okkur" og bara enginn skilur. Stundum getur verið þægilegt að tala sjaldgæft tungumál...

Posted by erna at 10:53 EH
Kallinn farinn, hjólið komið.

Jæja, þá er Mörður farinn eftir alveg frábæra helgi. Við borðuðum og drukkum bjór og löbbuðum um í góða veðrinu alla helgina. Það var reyndar skítaveður á laugardaginn, rigning og rok, en í gær og í dag var þrjátíu stiga hiti og sól og sumar. Það var ekkert smá æðislegt að fá svona gott veður, setti alveg punktinn yfir i-ið.

Mörður kom með hjólið mitt með sér og í dag kom hann með mér og ég keypti mér nýjan hjálm og hitt og þetta fyrir hjólið. Eftir að hann fór dreifði ég huganum aðeins og pumpaði í dekkin á hjólinu með nýju pumpunni, setti á það nýjan hnakk og nýjar táklemmur. Svo fór ég út í smá hjólatúr um hverfið. Það er reyndar frekar skrýtin tilfinning að vera á gamla góða hjólinu mínu hér í New York, en það er sko ekki slæmt! Nú þarf ég bara að kaupa smurolíubrúsa og fara einhvert þar sem ég get skrúbbað kransinn og keðjuna duglega og smurt það svo og þá verður hjólið eins og nýtt!

Posted by erna at 10:50 EH
Föstudagur, 25 apríl, 2003
=)

Hann er á leiðinni, alltaf á leiðinni.... Tjúllijúll.
Ég var að koma heim eftir erfiðan dag. Fór í klippingu í morgun til að vera nú sæt þegar hann Möddi minn kæmi. Nú er ég hins vegar að fara að sjæna mig til eftir langan vinnudag til þess að verða nú ekki bóndanum fyrir vonbrigðum....

Posted by erna at 07:23 EH
Fögnuður

Ahhh.. var að koma heim. Við fórum saman stelpurnar út að fagna því að Adelene tók hæfnisprófið sitt í dag. (Hvað kallar maður qualifier annað en hæfnispróf?). Við fengum okkur G&T heima hjá henni og fórum svo út að borða á tyrkneska staðinn Turquaz. Þar var svaka fín stemmning, magadansmær og spákona að spá í kristalkúlu og svaka góðu matur, gott vín og skemmtilegur félagsskapur.
Ég og Adelene fórum svo á barinn saman eftir það og spjölluðum um lífið og tilveruna yfir köldum bjór.

Á morgun verður svo stuð, því þá kemur Mörður, góða nótt!

Posted by erna at 02:12 FH
Miðvikudagur, 23 apríl, 2003
Einkunnasníkjur

Það er eitt sem mér finnst alveg einstaklega hallærislegt. Það er þegar fólk fer og reynir að hækka einkunnir sem það fær á prófi, eftir að það er búið að fara yfir prófið og gefa út einkunnir. Sama hversu fók var með mikinn hausverk eða hvort að það misskildi spurningar finnst mér það bara kjánalegt. Fyrir það fyrsta eru einkunnir náttúrulega bara einkunnir. Alveg þangað til ég byrjaði í doktorsnámi lagði ég hart að mér til þess að fá sem hæstar einkunnir, en mér hefði aldrei dottið í hug að fara að væla í kennaranum til þess að hækka einkunnina mína.... Það er bara engan veginn réttlætanlegt gagnvart afgangnum af þeim sem tóku prófið á sama tíma.

Urrr.... Ég er búin að vera að fara yfir próf hjá krökkunum sem eru hjá mér í ónæmisfræðinni. Í dag skilaði ég þeim prófunum til baka og einum þeirra datt í hug eftir tímann að fara að nauða í mér af því að ég gaf honum bara helminginn af stigunum fyrir spurningu sem hann svaraði bara helmingnum af. Hann misskildi sko spurninguna! Hann vildi meina að misskilningurinn hefði ekki verið honum að kenna heldur okkur sem sömdum prófið og var eitthvað að benda mér á að afgangurinn af prófinu hafi verið í góðu lagi hjá honum og bla, bla, bla.... Þetta er reyndar líka alveg óþolandi nemandi, hann er svo frekur og vill fá svo mikla sérmeðferð eitthvað. Ég sagði honum bara að ég gæti ekki gefið honum stig fyrir eitthvað sem hann hafi ekki skrifað á prófið og þó að ég hafi svosem séð á prófinu að hann hefði efnið á hreinu, þá bara gæti ég ekki gefið honum auka stig, bara af því að hann svaraði afgangnum af prófinu rétt! Djísöss, hann hélt áfrm.. væl, væl, væl, hártoganir, hártoganir, hártoganir... Á endanum sagði ég bara við hann: "Look, I am not going to discuss this with you any further, the only thing I can do is taking this to Professor Beg and asking him what he thinks". Urrr. Og prófessorinn sagði mér að gefa honum eitt auka stig (2%) til þess að þagga niður í honum. Ég er sko alls ekki sammála, það á ekki að gefa einkunnasníkjurum ástæðu til þess að haga sér eins og þeir gera.

Það fáránlegasta af öllu er að þessi gaur ákvað að fara í meistaranám í líftækni til þess að hann gæti stofnað fyrirtæki byggt á ónæmisfræði eftir að hann útskrifaðist. Áður en hann tók þessa ákvörðun hafði hann aldrei lært ónæmisfræði. Svo kemur hann vælandi til mín og vill einhverja sérkennslu af því að hann er ekki búinn að fá nógu háar einkunnir yfir önnina og hann er náttúrulega í svo miklum vandræðum af því að hann ætlar að stofna þetta fyrirtæki. Hann vara alveg bara: Ég þarf að lesa kaflann tvisvar til þrisvar sinnum áður en ég skil efnið fullkomlega. Ég náttúrulega má ekki vera að því að taka fólk í sérkennslu og ég má ekki taka fólk sérstaklega út úr bekknum og kenna því, því að ég sem sumar spurningarnar sjálf og fer yfir prófin! Ég sagði honum bara að fyrst að hann væri svo heppinn að skilja efnið svona vel eftir þrjár lesningar, þá væri það greinilega leiðin fyrir hann. Urr! Ég þoli ekki fólk sem finnst alltaf að það eigi að þurfa að hafa minna fyrir hlutunum en aðrir! Ég held að það hafi ekki verið gott múv hjá þessum gaur að irritera mig svona rétt fyrir lokapróf. Það er nokkuð ljóst að þó að ég muni fara yfir prófið hans á sanngjarnan hátt, mun ég sko ekki gefa honum sjéns með nokkurn skapaðan hlut!

Posted by erna at 11:02 EH
Þriðjudagur, 22 apríl, 2003
Ég hlakka svo til...

.... föstudagsins. Loksins fæ ég að sjá hann aftur. Hann verður reyndar bara í tæpa þrjá daga, en það er betra en ekkert. Í tilefni af því ætla ég að taka mér frí á mánudaginn. Ég veit reyndar að yfirmaður minn verður ekkert svakalega ánægð með að ég ætli að taka mér frídag, hún er alveg svakalega nísk á að gefa fólki frí. En, wottever... ekki get ég látið hana stjórna lífi mínu er það?

Bara þrír dagar og þá.....

Posted by erna at 11:31 EH
Hej

Uhmmm.. skriðin á fætur... Alveg síðan við skiptum yfir í sumartímann hef ég átt erfitt með að vakna fyrr en klukkan átta. Alveg dæmigert, ég sem var farin að fara alltaf á fætur klukkan sjö. (Kvart og kvein!).

Í gær fór ég í fyrsta skipti í slopp við labbvinnu síðan ég vann í ÍE fyrir um tveimur árum síðan. Ég var nefnilega að vinna með geislavirkni í fyrsta skiptið. Þá er víst betra að fara í slopp, svona ef það skyldi skvettast á mann geislavirk efni, sem er reyndar ekki mjög líklegt að gerist ef maður hefur við réttu vinnubrögðin.....

Í dag verður meiri geislavirkni og læti... Júhú og vonandi get ég haldið áfram með ritgerðina mína, sem er reyndar orðin níu blaðsíður =) Ætli hún endi ekki á að verða of löng og ég þurfi að stytta hana. En það er líka í góðu lagi.

Posted by erna at 08:48 FH
Sunnudagur, 20 apríl, 2003
Málsháttasvelti

Oh.. vill ekki einhver gefa mér málsháttinn sinn svona í sárabætur, vegna þess að ég fékk ekki páskaegg??? Ég er alveg viss um að það er fullt af fólki sem fékk marga málshætti og getur látið einn af hendi rakna..

Posted by erna at 06:25 EH
Línuskautar í vinnuna og hann er að koma til mín!

Nú er ég klædd og komin á ról =) Og er á leiðinn í vinnuna á línuskautum í góða veðrinu. Það verður spennandi að sjá hvort ég komist alla leið á skautunum eða hvort að ég þurfi að gefast upp og taka strætó á miðri leið. Veðrið er bara svo gott að ég get ekki hugsað mér að missa alveg af því þó að ég þurfi að vinna.

Góðu fréttir dagsins í dag eru að ég ætla ekki að vinna næstu helgi af því að Mörður er að koma í heimsókn! Jeij...!

Posted by erna at 10:23 FH
Laugardagur, 19 apríl, 2003
Kúl auglýsing

Pínu skondin auglýsing. Já, ég á að vera að læra, en ég hangi bara á netinu... Ekki nógu gott.

Posted by erna at 07:08 EH
En hvað er Vodafone?

Hérna, sko ég er ekki að djóka, ég veit ekki hvað þetta Vodafone er....

Posted by erna at 03:07 EH
Hvað er vodafone?

Sko, ég er bara fávís útlendingur greinilega, algerlega út kontakt við mína fósturjörð.... En ég er bara ekki alveg að fatta þetta vodafone sem allir eru að blogga um. Gawww... ekki alveg að meika þetta..

Annars var þetta skrýtinn dagur. Byrjaði á að mæta í ónæmisfræðitíma þar sem að við vorum að fara yfir vísindagrein. Krakkaafstyrmin, meira að segja mastersnemarnir höfðu ekki lesið greinina, þannig að ég snéri duglega upp á handlegginn á þeim öllum og lét þau útskýra allar myndirnar í greininni fyrir mér. Þau höfðu náttúrulega ekki hugmynd um nokkurn skapaðan hlut, þannig að ég þurfti að útskýra svaka mikið sjálf. Fyndið samt. Það tók mig einn og hálfan tíma í gær að vera með þessa grein nógu mikið á hreinu til að útskýra fyrir liðinu. Fyrir tveimur til þremur árum síðan hefði það sko tekið mig mikið, mikið, mikið, mikið lengri tíma. Oh.. ég elska vísindin.

Ég var ekki komin á Efra bæ (Uptown sko....) fyrr en eftir hádegi, og þá upphófst skilríkjaslagur við öryggisverði skólans. Hingað til hef ég ekki getað fengið "uptown" skilríki af því að ég er "downtown" stúdent. Ég þarf hins vegar að fá skilríki til þess að komast inn í músaherbergin okkar. Öryggisgæslan er búin að vera með alveg geðbilað vesen yfir þessu máli og hafa notið þess að sýna vald sitt og sagt nei við mig í hvert skipti sem að ég hef komið með bréf frá nýjum einstaklingi til þess að rökstyðja hvers vegna ég þarf að fá þetta skilríki. Að lokum ákvað yfirmaður dýradeildarinnar að fylla út eyðublað þar sem hún vottaði að ég væri starfsmaður deildarinnar hennar og ég ætti því að fá starfsmannaskírteini. Starfsfólk skrifstofunnar sem gerir starfsmannaskírteinin fattaði samt að ég væri nemi og öryggisliðið brást harkalega við.

En ég gafst sko ekki upp.

Ég útskýrði fyrir þeim að doktorsverkefnið mitt byggði á músarannsóknum og að ég yrði að hafa aðgang að músaherbergjunum, annars þyrfti ég að skipta um doktorsverkefni (Sem er allveruleg hagræðing á sannleikanum). Þegar þau spurðu mig hvort að ég ynni þarna á hverjum degi, lýsti ég því yfir að ég kæmi inn á hverjum degi vikunnar og ynni í að minnsta kosti tíu tíma og myndi gera það næstu fjögur árin. (Líka allveruleg hagræðing á sannleikanum). Svo sagði ég þeim að ef ég fengi ekki skilríki yrði ég bara að fá lánuð skilríki hjá vinum mínum til þess að komast inn í músaherbergin. Ég er viss um að það veldur hverjum öryggisverði martröðum í margar vikur við að heyra slíka yfirlýsingu. Eftir að hafa tekið þessa dramadrottningarsyrpu þarna inni á skrifstofunni hjá þeim sáu þær fram á það að þær myndu ekki losna við mig nema að gefa mér skilríki og ákváðu þá LOKSINS að fara skynsamlega að málunum.

Yfiröryggisvörðurinn spurði mig þá við hvaða skóla ég væri að læra. Ég sagði henni að ég væri í Graduate School of Arts and Sciences. Þá horfði hún á konuna sem vinnur við að búa til skilríkin og sagði við hana "Oh.. just make her a GSAS ID". Halló!! Halló!!! Þegar hún loksins fór að hugsa fann konan lausn á málinu eftir tveggja sekúndna umhugsunarfrest!!! En þá þurftu þau að sjá Columbia skilríkið mitt. "Are you registered for the term? You haven't gotten a spring sticker!" Krapp!!! Sko þeir sem borga fyrir skólagjöldin sín hér fá límmiða á skilríkin sín í hvert skipti sem þau borga. Ég þarf ekki að borga skólagjöldin, líffræðideildin sér um það, þannig að ég nenni sjaldan að fara sér ferð til að fá límmiða sem segir að ég sé skráð á viðkomandi önn. Yfiröryggisvarðarkellingin ákvað þá að vera svaka næs við mig og hringdi í skráningarskrifstofuna til þess að athuga hvort að ég skuldaði nokkur skólagjöld og hvort að ég væri skráð á misserið. Jú, jú.. hún kom til baka:"You have a balance, but basically they said you are OK". Urrr... ég skulda sko en 200 dollara fyrir sjúkratrygginguna mína sem ég er búin að trassa að borga vegna blankheita. Þessi upphæð fölnar náttúrulega við hliðina á 35.000 dollurum sem að ég myndi skulda í skólagjöld, en samt datt beyglunni í hug að djóka svakalega um að hún myndi ekki gefa mér aðgang að músahergbergjunum fyrr en að ég borgaði skuldina mína! Henni tókst að segja í heil fimm skipti "You have a balance... blabalaalal" Ef að það hefði ekki byggst á hjálp þessarar manneskju að ég fengi þetta blessaða skilríki, þá hefði ég sko labbað út, mér fannst þetta svo dónó. Það kemur henni sko ekki við hvort að ég skulda fimmtán þúsund kall í sjúkratryggingu eða ekki. Ég held að það séu alveg svakalega pervertískar týpur sem ákveða að verða öryggisverðir, allavega hér í BNA. Hún bara varð að sýna mér vald sitt á einhvern hátt fyrst að hún varð að láta í minni pokann og láta mig fá þetta blessaða skilríki sem mig vantaði.

En allavegana, ég labbaði út með skilríki hangandi um hálsinn, sæl og glöð. Á mánudaginn ætla ég að fara og fá aðgang að líkamsræktarstöðinni, en til þess þarf ég að hafa umrætt skilríki. Já, þar er komin ástæðan. Ætti ekki að koma þeim sem þekkja mig neitt á óvart. Eina ástæðan fyrir því að ég gekk svo hart fram í skilríkjamálum var að ég sé fram á að komast í spinningtíma ef að ég á svona skilríki. =) Wish me luck. Á mánudaginn kemur í ljós hvort að líkamsræktarstöðvarfólkið mun líka reyna að gera mér lífið leitt...

Posted by erna at 12:54 FH
Fimmtudagur, 17 apríl, 2003
Mig langar í páskaegg

Ég fattaði bara núna í vikunni að það væru að koma páskar. Hér er ekkert frí um páskana frekar en fyrri daginn, og það stefnir þar að auki í vinnu alla helgina. En svona er það nú bara, sem betur fer er vinnan skemmtileg, það vantar ekki!

Þetta er annars búin að vera mjög fín vika. Ég er búin að komast aðeins áfram með ritgerðarsmíðina, búin að hugsa heilmikið um verkefnið mitt og þar að auki framkvæmdi ég beinmergseinangrun alveg upp á eigin spýtur og er nú bara að leyfa "dendritic" frumunum að þroskast í ró og næði. Þarf bara að gefa þeim að borða annað slagið, en reyndar er ég líka aðeins að pína þær með því að gefa þeim smá eitur og tékka hvað þær þola mikið.

Ég verð nú að segja að þó ég hafi ekki fengið páskaegg síðan ég var 12 ára greip mig í dag allt í einu svakaleg löngun í páskaegg. Það kemur til af ýmsu. Vissan þátt að því máli áttu lýsingar á nokkrum bloggum um að viðeigandi bloggarar staddir í útlöndum áttu ýmisst von á páskaeggi í pósti eða í farteski foreldra sem voru á leiðinni í heimsókn. (1) (2) (3)
Þar að auki var konan sem ég er að vinna með er gyðingur og hún fylgir passover-siðunum mjög strangt þessa vikuna, svona mest til þess að minnast menningararfleifðar sinnar. Ég væri sko alveg til í að minnast minnar menningararfleifðar á sunnudaginn með því að borða páskaegg númer fjögur frá Nóa Siríus.

Posted by erna at 11:11 EH
Miðvikudagur, 16 apríl, 2003
Placebo og Strokes

Enn og aftur sit ég hér við ritsmíði. Tímamótaverk í samningu rannsóknaráætlunar, ehemm.. eða þannig!

Ég er búin að koma við á hverjum degi síðan á sunnudaginn í plötubúðinni hér á horninu til þess að kaupa nýja Placebo diskinn, Sleeping With Ghosts. Hún Soffía lýsti honum af svo mikilli hrifningu að ég bara stóðst ekki mátið. En þeir kjánarnir á Kims eru búnir að segja mér á hverjum degi að diskurinn sé væntanlegur "á morgun". Ég tók mig þá bara til og hlóð diskinum niður af Kazaa (já, sko, ég reyndi fyrst að kaupa hann....) og hlustaði á hann. Ég er bara nokkuð sátt, eitt eða tvö lög sem ég er ekki alveg að fíla, en kannski kemur það með frekari hlustun. Mér finnst reyndar The Bitter End vera svo geðveikt Strokes rippoff að ég bara varð að setja Strokes í geislaspilarann beint á eftir Placebo.

Ég verð nú að segja það að The Strokes og Placebo virka bara ansi örvandi á sköpunargáfuna og vélritunartempóið!

Posted by erna at 09:36 EH
Næs veður maður!

Það er geeeeeeðððvvvveeiiiikt veður hérna núna. 30 stiga hiti og sól og sumar. Það er klikkað. Það sitja allir úti og borða og sleikja sólina. Ég fæ reyndar ekki að njóta veðursins að ráði í dag af því að verð að vinna, en sem betur fer eru miðvikudagar vesenisdagar, þannig að ég er búin að vera mikið á ferðinni og fæ sól á mig í nokkrar mínútur hér og þar.. Ljúft.
Uh.. en á morgun er spáð rigningu og sjö stigum. Það ætti að vera bannað.

Posted by erna at 01:07 EH
Þriðjudagur, 15 apríl, 2003
Tímabundið vor.

Það fór að hlýna á sunnudaginn, og í dag var loksins virkilega hlýtt úti, 25°C og sæla. Þetta á nú samt ekk að standa lengi yfir, því að á fimmtudaginn verður víst bara fimm til tíu stiga hiti.

Ég notaði tækifærið og fór út að skokka í blíðunni. Ég ætti kannski að segja út að hlúnkast í blíðunni. Ég er orðin alger aumingi með hor og slef eftir æfingarleysi vetrarins. Jóga og sund eru góð iðja, en greinilega ekki nógu góð til að halda manni í formi.

Það var samt alveg frábært að viðra sig aðeins niður í Riverside Park. Horfa á línuskautabyrjendurna æfa sig horfa á alla hundaflóruna, en New York er þekkt fyrir "hundamenninguna". Og svo var náttúrulega allskonar fólk á sveimi, hlaupandi, gangandi og hjólandi. Trén eru að fara að blómstra, það verður gaman að fylgjast með blómunum næstu vikurnar.

Æji, þetta er svo gott fyrir sálina að fá svona gott veður. Það er ekki hægt annað en að vera í góðu skapi.

Posted by erna at 09:22 EH
Ritsmíðin er komin á skrið...

Krapp, þessi ritgerðarvinna gengur svo hægt hjá mér. Ég ætlaði að sitja yfir ritsmíðinni í allt kvöld en kom mér svo ekki að verki fyrr en um tíuleytið. Og þá fór þetta að ganga eins og smurt.
Ég er búin að vera að vinna að mestu í hugmyndavinnu og lesa slatta undanfarið, en núna ákvað ég að koma mér að því að koma mynd á ritgerðina sjálfa, ekki bara skrifa niður hugmyndir að tilraunum.
Það gekk nú framar öllum vonum, ég er komin með næstum því tvær blaðsíður eftir kvöldið og er einhvern veginn orðin gíruð upp fyrir að halda áfram að skrifa næstu daga. Með þessu áframhaldi ætti ég að klára ritgerðina á næstu vikum, vonandi mánuði fyrir skilafrest, þannig að mér veitist sá lúxus að lesa mér til um efnið og viða að mér fróðleik síðustu vikurnar. Það er lykilatriði til þess að snúa á lymskulegar spurningar nefndarfólksins.
Úff, en nú þarf ég að fara að sofa af því að á morgun byrja ég fyrir alvöru að vinna á labbinu, Southernblot fyrir hádegi og beinmergsúrdráttur eftir hádegi. Úff og púff. Nú byrjar gamanið, en það verður hættulegt....

Posted by erna at 12:04 FH
Mánudagur, 14 apríl, 2003
Ég fíla Emmerrrrrrrrrgrrr...

Mér finnst kúl að MRingar haldi áfram latínuhefðinni í skólanum.

Posted by erna at 11:17 EH
Sunnudagur, 13 apríl, 2003
Rómantískur kvöldverður fyrir einn

Mér finnst alveg svakalega gaman að elda. Því miður hef ég allt of lítinn tíma til þess. Reyndar hef ég gert meira af því undanfarna mánuði en áður, af því að nú hef ég þá hvatningu að ef ég elda muni ég eiga afganga sem duga mér í nesti í tvo daga eftir eldun. Ég einhvern veginn nenni ekki að verja einum til tveimur klukkutímum í að elda ef að ég sé fram á að maturinn klárist strax og ég fái ekki að njóta hans daginn eftir líka. Þetta hljómar náttúrulega eins og hin mesta leti, en þegar maður er aldrei kominn heim fyrr en milli átta og níu á kvöldin er oft lítil orka á eftir.

Í kvöld er ég að elda indverskan linsubaunarétt með allskonar gúmmelaði, sjö mismunandi kryddtegundum, sætum kartöflum, blómkáli og papriku og tamarind. Namm, ég ætla svo að borða hrísgrjón með.

Ég held að ég verði bara að díla við Mörð þegar hann kemur aftur að hann eldi þrjú kvöld vikunnar og ég eldi önnur þrjú. Ég er reyndar handviss um að hann þverneitar, honum finnst alveg eins gott að borða bara popp og kornflex. Kannski ég ætti bara að fara að borða popp og kronflex í kvöldmat. Ég hef heyrt að það sé ágætis megrunarkúr.

Posted by erna at 09:18 EH
Nítjánstigahiti...

... þýðir bara eitt. I'm going rollerblading.
Júhú, ég ætla að skella mér út í Riverside Park og æfa mig aðeins á línuskautunum mínum þar. Ég vona að það sé ekki rok þar.

Posted by erna at 03:57 EH
Laugardagur, 12 apríl, 2003
Loksins, loksins

Loksins kom vorið fyrir alvöru. Það var gott veður hér í smá tíma í mars, en undanfarnar tvær vikur er bara búið að vera leiðindarveður. Í dag, loksins, fór hitinn yfir tuttugu gráður, það sást ekki ský á lofti og fólk flykktist út á götur. Það er svo gott að labba út og finna hlýja goluna blása um sig.

Ég fór frekar seint út og þá var götufestival á Broadway, þar sem hálfur heimurinn var til sölu og fólk rölti um borðandi kebab og krepes... Oh.. ég saknaði svo Marðar af því að við förum venjulega og fáum okkur banana og súkkulaðikrep þegar það er festival í gangi.

Ég var í vinnunni allan seinnipartin og fram á kvöld. Það var enginn smá munur að horfa út um gluggannyfir eyjuna og loksins sjá Empire State bygginguna, en hún er búin að vera hulin í þoku undanfarnar vikur. Það glampaði á skýjakljúfana í sólskininu og skyggnið var með besta móti.
Svona þegar maður er í vinnunni í góðu veðri er ekkert betra en að hafa útsýni yfir alla Manhattann, svona í sárabætur!

Posted by erna at 11:42 EH
Föstudagur, 11 apríl, 2003
Bjór er góður...

Bara stutt bjórkvöld í kvöld. Ég var komin heim um klukkan hálfeitt, með lestinni und alles. Það var samt bara ágætis stemmning, alltaf gott að hitta Íslendingana, ha! Barþjónninn klikkar aldrei. Einu sinni stóð ég við barinn og var að dilla mér í takt við tónlistina, og leit svo við og þá stóð hann þarna og beið eftir að ég pantaði. Hversu góð þjónusta er það þegar barþjónninn bíður eftir pöntun í staðinn fyrir að maður hangi örvæntingarfullur við barborðið í þeirri von um að ná athygli þjónsins. "One Pilsner, thanks!". Kanarnir kalla Pilsner Urquell bara pilsner. Kannski er of erfitt að segja Úrkvel.

Mér finnst alltaf pirrandi að fara um lestarstöðina á Times Square þessa dagana og fleiri stöðvar niðri í bæ eins og Union square. Það er allt morandi í hermönnum með riffla og vélbyssur. Mér finnst það óþarfi. Hvern er verið að vernda, ég bara spyr?

Æji, ég nenni ekki að hneykslast á þessu, en það fer bara alltaf um mig. En núna er best að fara að sofa svo að það verði nú runnið af manni í fyrramálið, þannig að ég höndli alla ljósritunina sem þá þarf að fara fram.

Posted by erna at 01:16 FH
Miðvikudagur, 9 apríl, 2003
Einn af þessum dögum sem fara bara í endalausan þeyting.....

Úff, það er nú búið að vera meiri þeytingurinn á manni í dag, fram og til baka, út og suður, uptown, downtown, uptown, downtown, í þessari röð. Ég var svo morkin og súr þegar ég vaknaði í morgun að það var engu lagi líkt. Mér fannst ég bara vera nýsofnuð þegar Lora hringdi til að vekja mig, þessi elska. Svo þegar ég var í þann mund að rjúka út, bönkuðu uppá hjá mér tveir píparar og sögðust þurfa að kíkja á baðherbergið hjá mér vegna leka. -Klukkan átta að morgni. Ég átti ekki orð (hehe.. ég átti sko orð... og það nokkur vel valin) og þeir fengu að kenna á morgunfúlleikanum í mér þegar ég sagði þeim að þeir væru dónar að hamast á bjöllunni hjá fólki klukkan átta að morgni. Ég ætlaði að dissa þá, af því að ég var á prívatinu, en þeir bara hættu ekki að hringja. Og ég náttúrulega missti af rútunni upp á 168. stræti. Þannig að það var söbbvei uppeftir og svo niðreftir aftur klukkutíma síðar þegar gagnaklúbburinn var búinn. Ég sat ónæmisfyrirlestur hjá Amer Beg og var svo með skrifstofutíma þar sem ég hjálpaði örvingluðum mastersnema með heimalærdóm. Uppeftir fór ég aftur og beint upp í dýradeildina þar sem ég lærði að umgangast erfðabreyttar mýs eftir kúnstarinnar reglum. Rétt í því sem að það var verið að útskýra fyrir mér hvað ég ætti að gera ef að ein músanna minna yrði veik sá ég veika mús. Hún var búin að klóra augað á sér til blóðs. Grey mýslan. Þær eru svo sætar þessar elskur. Músin sem ég sá í söbbvei á leiðinni heim var líka sæt, en örugglega ekki erfðabreytt. Ég dreif mig í gymið eftir vinnu, hljóp fjórar mílur (ojojoj, mín bara amrísk, farin að huxa í mílum....) og gerði magaæfingar fyrir kellingar (æji, svona kellingaæfing sem að sjúkraþjálfarinn minn sagði mér að gera á sínum tíma. Voða gott fyrir bakið á mér en ég lít svaka kelló út þegar ég geri hana). Svona til þess að viðhalda nú örugglega raunþyngd minni fór ég svo heim að borða íslenskt nammi (takk Möddi minn). Hvað er betra en lurkar eftir svona snatterísdag? Ég spjallaði við Mörð og eldaði mér svo pastarétt með ólífum og túnfiski. Núna sit ég bara og blogga boring-blogg, nett upptalning af öllu því skemmtilega sem ég gerði í dag. Eða svona næstum því. Er til eitthvað andlausara?

Posted by erna at 11:14 EH
Þriðjudagur, 8 apríl, 2003
Tuggigummi innehåller sötningsmedel

Nammi, namm. þessi þriðjudagur var í boði Íslendings. Nánar tiltekið í boði Marðar sonar Finnboga sonar Finnboga sonar Finnboga. Hann sendi mér harðfisk og sælgæti sem ég og fékk í gær. Ég er með harðfisk á milli tannanna og finnst það bara ansi gott mál.

Kanarnir voru mjög hógværir í harðfisksátinu, það var helst að Miss Maddie léti þar til sín taka, en ég var svo nísk að ég týmdi ekki miklu af þurrkaðri og barðri ýsu ofaní hana.

Mikið eru Íslendingar skrítnir. Við borðum mat sem flestum öðrum býður við. Harðfiskur, blóðmör og lifrarpylsa. Og lakkrís. Ég held að lakkrísát sé mjög skandinavískt fyrirbrigði, en hér fussar fólk og sveijar við honum. Til dæmis er ekki hægt að fá fjólublátt Extra tyggjó með lakkrísbragði hér í Ameríku, frammleitt af sjálfri Wrigley's fabrikkunni! Það er held ég sérstaklega framleitt fyrir skandinavískan markað.

Mikið er gott að vera Íslendingur og finna harðfisk í pakkanum sínum.

Posted by erna at 11:47 EH
Mánudagur, 7 apríl, 2003
Árstíðarugl og tímaskekkja

Haldið þið ekki bara að það hafi verið kafaldsbylur hér í New York í dag. Kannski myndi ég ekki taka svo sterkt til orða ef ég væri heima á Fróni, en það snjóaði duglega í fimm tíma í dag að minnsta kosti og það náði alveg að festa snjó og allt. Mér finnst það vera kafaldsbylur ef það er sjöundi apríl og maður er staddur á sama breiddarbaug og Madrid...

Annars er dagurinn búinn að vera pínu skrítinn. Fyrsti vinnudagurinn eftir að tímanum er breytt er alltaf undarlegur. Til að bæta gráu ofaná svart gleymdi ég úrinu mínu í gymminu í gær, þannig að ég var gersamlega utangátta og án tímaskyns í dag. En þetta lagast fljótt og það góða er að það var bjart til klukkan hálf átta í dag.

Á vorin og haustin ruglast ég mjög oft á hvaða árstíð er. Þetta hefur þó aðeins komið fyrir mig á kvöldin. Ég er kannski niðursokkin í hugsanir, eins og í gær, og stend mig allt í einu að því að halda að það sé haust. Þetta kom oft fyrir mig í haust líka, ég þurfti að hugsa mig um áður en ég mundi hvaða árstíð væri. Ég held að í gær hafi ég uppgötvað hverju þetta sætir. Málið er að ef það er vor heima á íslandi, þá fer það ekki á milli mála, af því að það er frekar kalt, en mjög bjart allan sólarhringinn. Á haustinn er svo farið að kólna aftur, en þá er dimmt á kvöldin, þannig að þó að það sé sama hitastig og á dæmigerðu vorkvöldi, þá er birtan önnur. Hér er hins vegar ekki mikill birtumunur á hausti og vori, og það ruglar mig í rýminu.

Posted by erna at 08:21 EH
Sunnudagur, 6 apríl, 2003
Fúll dagur

Þetta er ömurlegur dagur. Ég er orðin svo leið á að vera ein hérna. Vakna ein, sitja ein við tölvuna eða skrifborðið allan daginn. Borða ein, horfa ein á sjónvarpið... koma heim og enginn er heima, fara ein að sofa.

Ég tók út teljarann á spássíunni, það er náttúrulega ekkert víst að Mörður komi í haust þannig að ég vil ekki vera að storka örlögunum.

Posted by erna at 02:15 EH
Laugardagur, 5 apríl, 2003
Ritgerðarsmíð á laugardegi

Enn og aftur er kominn laugardagur og það þýðir vinna í ritgerðarsmíð á þessum bæ. Ég hef ekki skrifað mikið, en hugmyndirnar eru búnar að bulla og sjóða í hausnum á mér alla vikuna.

Þannig að aftur er stemmningin kósí, með kaffibolla fyrir framan tölvuna. Það skemmir heldur ekki fyrir að elskan mín hann Mörður situr fyrir framan tölvu þessa stundina heima á Íslandi og við erum að hlusta á sömu útvarpsstöðina, hann í gegnum netið og ég bara í útvarpinu upp á gamla mátan. Manni finnst eins og hann sé pínu nær ef við erum að hlusta á sömu tónlist.

Posted by erna at 01:26 EH
Fimmtudagur, 3 apríl, 2003
Sigur!

Í gærkvöldi þegar ég var heima hjá mér að slappa af byrjaði hljómsveitin í kjallaranum einu sinni enn að spila. Ég tók nett pirringskast því að það er varla hægt að heyra í sjálfum sér hugsa þegar bandið er við æfingar. Í frústrasjón minni sendi ég yfirmanni grískra mála (Head of Greek affairs eða eitthvað svoleðis), harðort bréf þar sem ég sagði henni að vandamálið hyrfi ekki með því að hún hunsaði tölvupóstinn frá mér. Auk þess sagði ég henni að ég myndi ekki hika við að leita til hæfari aðila innan Columbia ef hún gerði ekkert í málinu.

Í morgun fékk ég svo ímeil frá henni þar sem hún baðst afsökunar og sagði mér að hún hefði séð til þess að hljómsveitin myndi ekki spila aftur í húsinu, og í reynd var hljómsveitinni bannað að æfa með öllu!

Hún sendi mér líka afrit af bréfi sem hún sendi formanni bræðralagsins:

"at this point, not only must the band completely cease any and all practice, but Sigma Nu will now be facing disciplinary action as a whole. Pending a hearing with the IGC Judicial Board, Sigma Nu is prohibited from hosting and/or participating in any events from now forward... including participation in Greek Week and all sanctioned IGC events. "

Ég er ekkert smá ánægð. Josh stakk upp á að ég myndi setja upp skilti í gluggann hjá mér sem væri eitthvað á þessa leið: "That's right mother****ers." Eða: "Having fun at Greek Week?"

Posted by erna at 10:16 EH
Miðvikudagur, 2 apríl, 2003
Ofurkonan

Jessöríbabb! Ég var að koma úr gymminu og ég gersamlega rústaðessu! Ég hljóp 10% lengra á sama tíma og áður (5.5K, þori ekki að segja hvað ég er farin að hlaupa hægt) og lyfti svo og lyfti. Mikið léttara en ég hef lyft í mjög mörg ár, en þyngdi samt frá því síðast og sveif í gegnum allar æfingarnar (ehemm.. eða svona næstumþví.....).

Ég er ofurkonan!

Það fúlasta sem gerðist í dag er að það lítur ekki út fyrir að ég komist í spinning í öpptán gymminu =(

Posted by erna at 09:50 EH
Þriðjudagur, 1 apríl, 2003
Engin amrísk aprílgöbb

Heldur engin aprílgöbb í Ameríku þetta árið, en Könum finnst gaman að heyra að íslenskir fjölmiðlar láti fólk hlaupa fyrsta apríl. Þeim finnst svaka fyndið að sjá fyrir sér íslendinga brunandi niður í fjöru að sanka að sér smygli sem á að hafa rekið á land, eða þá rjúkandi út á flugvöll til þess að sjá Viktoríu Principal og Larry Hagman á sínum tíma.

Hvað er flugvélabensín mörg oktan?

Posted by erna at 11:44 EH
Skriffinnska =)

Ég sá fram á mikla skriffinnsku í morgun þegar ég mætti í vinnuna. Ég var komin þangað fyrir klukkan níu, svona til þess að skipuleggja mig og undirbúa mig andlega fyrir daginn. Ég byrjaði á því að fara á fyrirlestur um meðhöndlun tilraunadýra. Ég hafði búist við því að það væri alveg svakalega langur og leiðinlegur fyrirlestur, en allt kom fyrir ekki, dýralæknirinn lauk hlutunum af á skotstundu. Nú veit ég til dæmis að ég má ekki drepa mýs með þurrís og að dýralæknirinn er nýkomin úr barnsburðarleyfi og ætlar sér ekki að eignast fleiri börn.

Ég hafði því smá auka tíma, þannig að ég fór í líkamsræktarstöðina sem þjónar "uptown" kampusnum til þess að tékka á hvort að ég fengi aðgang að henni. Eins og mig grunaði þurfti ég að eiga "uptown" skilríki til þess, en ég er svo mikil "downtown" dama að ég á ekki svoleiðis. Þegar ég kom aftur á labbið upphófust því miklar ímeilskriftir til hinna og þessa einstaklinga í deildinni minni til þess að leita ráða með það hver gæti reddað mér svona skilríkjum. Hver einasta manneskja sem ég meilaði á sagði mér að tala við einhvern annan. Að lokum var mér sagt að tala við starfsfólk skrifstofu deildarinnar sem prófessorinn minn tilheyrir. Það vill svo skemmtilega til að deildarskrifstofan er við hliðina á labbinu mínu, þannig að ég kannast við skrifstofufólkið og þau vildu allt fyrir mig gera!

Ég bara trúði þessu ekki. Hvenær enda skriffinnskumál yfirleitt á því að fólk reynir að vera næs og geri allt sem það getur fyrir mann? Í dag, greinilega. Á morgun kemur sumsé í ljós hvort að þau geti reddað mér svona skilríki og ef ég fæ það, þá standa bara 70 dollarar á milli mín og SPINNING-tíma!!! Júhú!

Eftir þetta fór ég sem leið lá niður á g eislavirknisöryggiskrifsofuna með krossapróf sem ég hafði fyllt út til þess að fá bráðabirgðar filmu sem maður hengir á sig til þess að nema hvort maður hafi orðið fyrir geislavirkni. Til þess að verða endanlega skráð með leyfi til þess að vinna með geislavirkni þarf maður að fara á fyrirlestur um vinnuöryggi við meðhöndlun geislavirkra efna. En konan á geislaskrifstofunni mundi eftir mér úr símanum frá því um daginn og vissi að ég var nú þegar búin að fara á svona námskeið niðrifrá á hinum kampusnum, þannig að hún brosti bara fallega til mín og sagði að ég mætti bara sleppa fyrirlestrinum!

Til þess að toppa daginn fékk ég leyfi til þess að fá sérfræðing sem er ekki tengdur deildinni minni til þess að vera í doktorsnefndinni minni. En það má venjulega ekki.

Ég vona að þetta sé ekki allt sama eitt stórt aprílgabb!

Posted by erna at 08:01 EH