Ég ætla bara að svara kommentinu frá Binnu hérna í annarri færslu.
Mér finnst ímynd femínista skipta máli. Mér finnst skipta máli að baráttufólk kvenfrelsis og jafnréttis sé trúverðugt í sínum málflutningi, því að annars er allt unnið fyrir gíg. Við verðum að skapa okkur virðingu og hún skapast seint með því að hvetja fólk til að taka lögin í eigin hendur ef það er ekki sátt við hvernig unnið er úr hlutunum í þjóðfélaginu. Við verðum að vera meðvitaðar um það hvernig rödd okkar útávið hljómar, þannig að baráttan verði hnitmiðaðri og að sem flestar konur vilji taka þátt í baráttunni.
Það sem ég hef lesið um Femínistafélagið veldur því að mig langar minna og minna að taka þátt í því sem í því félagi fer fram, vegna þess að ég er á öndverðum meiði við stefnuskrána og það sem ég hef heyrt að frá félaginu komi.
Ég tel mig vera femínista, samt er ég á móti banni við vændi, hef ekki trú á að það sé hægt að "banna" klámvæðingu og finnst alveg óþolandi þegar við konur erum alltaf að tala um hvora aðra eins og einhverja minni máttar. Sama hvaða orðum það er kallað þá finnst mér það óþolandi árátta að tala um fólk sem fórnarlömb og ætla bara að banna hlutina í stað þess að leita að lausnum á hinum raunverulega vanda.
Þess vegna held ég að ég myndi ekki eiga heima í þessu félagi. Mér finnst þetta gamaldags, mér finnst þetta vera fórnarlambsfemínismi og mér finnst vera of miklar öfgar í umræðunni til þess að mig langi til að taka þátt í þeim.
Ég er sko alveg sammála Salvöru um að það hafi verið þörf á að stofna Femínistafélagið. Færslan mín hér að neðan var svona kannski aðeins til þess að benda á hvernig ímynd félagsins virkar á utanaðkomandi fólk, þetta er kannski ástæðan fyrir því að femínistar hafa neikvæða ímynd útávið, af því að það er oftast mest öfgasinnaði hópurin sem er mest áberandi!
Ég verð nú líka að segja það að þó að ég sé enginn aðdáandi Flugleiða finnst mér hálffáránlegt að vera að kæra þessar auglýsingar. Mér finnst það eitt og sér vera öfgar og finnst ekki alveg viðeigandi að taka einstök fyrirtæki fyrir í svona málum.
Varðandi póstlistann, þá hefur mér áður verið bent á það að búa til sér-netfang fyrir ímeil frá þeim. Það finnst mér bara ekki góð lausn fyrir mig. Af hverju eiga allir að vera að búa til sérnetföng til þess að halda utan um umræðu sem þessa?
Fyrir það fyrsta þá er það náttúrulega mjög dýr aðferð, ef aðstandendur listans hafa pælt í því, því að þá er eintak af hverjum einasta tölvupósti á meilsörverum út um allan bæ og allan heim..... Sjö hundruð póstar í sjöhundruð eintökum, það gerir hálfa milljón pósta!
Í öðru lagi þá er langbest að fylgjast með svona umræðu á vef, þar sem hægt er að skoða margar færslur í einu, með því að "skrolla" í gegnum síðu í stað þess að opna einn og einn tölvupóst í einu.
Til dæmis tók Salvör það fram að hún hefði fengið hundrað pósta um helgina frá þessum lista. Mér myndi finnast gaman að skoða það á heimasíðu, en vil ekki þurfa að halda utan um það sjálf á eigin-netfangi.
Salvör bendir mér á í kommentum að það hafi komið yfir sjöhundruð póstar bara í apríl og virðist vera að benda á það til rökstuðnings því að ég eigi nú að skrá mig... En ÞAÐ er einmitt ástæðan fyrir því að ég vil ekki skrá mig.
Ég bara skil ekki af hverju í ósköpunum það er ekki stofnaður vefur til að halda utan um þetta til að gera umræðuna aðgengilega!