Mánudagur, 28 apríl, 2003
Femínistar? Kommon!

Ég fann þetta ávarp í gegnum síðuna hjá . Gvuð minn almáttugur segi ég nú bara. ÚFF. Mikið er ég fegin að vera ekki í þessu félagi ef þetta er það sem fer fram á þessum fundum!

Ég fæ fréttir frá Íslandi að forsprakkar þessa félags finnist það góð hugmynd að standa í einhverri ritskoðun, eins og þær séu hið fullkomna "autoritet" fyrir það hvað er siðlegt og hvar ekki, hvenær auglýsingar lýsa kvenfyrirlitningu og hvenær ekki, og svo les maður svona pistil eins og þennan sem ég linka á, þar sem femínistar eru gerðir að einhverjum löggum! Skrattinn málaður á vegginn, lítið gert úr karlmönnum og veruleikinn einfaldaður svo að það verður hjákátlegt. Og alltaf eru gerð fórnarlömb úr konum. Alltaf þarf að koma og bjarga þeim greygörmunum því að þær geta það ekki sjálfar.

Ég hef verið pínu forvitin gagnvart Femínistafélaginu, vildi óska að umræðan færi ekki fram á póstlista heldur á vefsíðu, svo að ég gæti auðveldlega tekið þátt eða skoðað umræðuna án þess að þurfa að nota innboxið mitt til þess, ég fæ alveg nógu mikið af tölvupósti fyrir og er alveg á mörkunum að ná að halda utan um hann. Ég reyni að fylgjast með þessum málum svona úr fjarska en það er frekar erfitt svona frá útlöndum.

Það er því líklegt að mín mynd af þessu nýja félagi sé ansi skekkt af því sem fram kemur í umræðum á netinu, því að ég missi af nær allri fjölmiðlaumfjöllun sem fer fram á Íslandi. Þessi ritskoðunarpæling með auglýsingarnar, eindregin stefna á móti klámi og vændi (sem mér finnst kannski göfug en frekar óraunhæf) og svo þessar hugsjónir sem koma fram í ávarpinu hennar Gyðu, sem fá mig til þess að verða bara fyrir alveg svakalegum vonbrigðum með hvað félagið virðist hanga í gamaldags skoðunum og steríótýperingum.

Ég get ekki alveg séð að þetta sé einhver ný tegund af feminisma eins og Salvör reyndi að halda fram á sínu bloggi á sínum tíma. Úr fjarska virkar þetta allt saman mjög klisjukennt, gamaldags og afturhaldssamt.

Mig grunar reyndar að það séu örugglega mikið af þriðju kynslóðar femínistum í félaginu, en það fari bara minna fyrir þeim en fólki með öfgakenndar skoðanir sem svertir bara mannorð félagsins. Fólki sem virkar biturt og reitt.

Ég er reyndar heldur ekki sjálf viss um að það sé endilega pláss fyrir allar konur í einni svona fylkingu. Allar hljótum við jú að vera fylgjandi kvenréttindum, en skoðanirnar og áherslurnar er greinilega eins ólíkar og litir regnbogans.

Svona úr fjarska virðist vera að Femínistafélagið sé mjög öfgasinnaður hópur. Ég vona að það sé ekki meiningin.

Posted by erna at 11:40 EH
Starsight..

Úúúú.... gleymdi alveg að segja frá því hvern við sáum í óperunni á laugardaginn. Ég var næstumþví búin að segja hæ við Tobey McGuire, af því að mér fannst hann vera svo kunnuglegur... Fattaði svo að ég þekkti hann ekkert persónulega. Hann var í röðinni við hliðina á okkur á barinn í hléinu. Mjög þægilegt að geta bara sagt á íslensku: "Mörður, er þetta ekki kóngulóarmaðurinn við hliðina á okkur" og bara enginn skilur. Stundum getur verið þægilegt að tala sjaldgæft tungumál...

Posted by erna at 10:53 EH
Kallinn farinn, hjólið komið.

Jæja, þá er Mörður farinn eftir alveg frábæra helgi. Við borðuðum og drukkum bjór og löbbuðum um í góða veðrinu alla helgina. Það var reyndar skítaveður á laugardaginn, rigning og rok, en í gær og í dag var þrjátíu stiga hiti og sól og sumar. Það var ekkert smá æðislegt að fá svona gott veður, setti alveg punktinn yfir i-ið.

Mörður kom með hjólið mitt með sér og í dag kom hann með mér og ég keypti mér nýjan hjálm og hitt og þetta fyrir hjólið. Eftir að hann fór dreifði ég huganum aðeins og pumpaði í dekkin á hjólinu með nýju pumpunni, setti á það nýjan hnakk og nýjar táklemmur. Svo fór ég út í smá hjólatúr um hverfið. Það er reyndar frekar skrýtin tilfinning að vera á gamla góða hjólinu mínu hér í New York, en það er sko ekki slæmt! Nú þarf ég bara að kaupa smurolíubrúsa og fara einhvert þar sem ég get skrúbbað kransinn og keðjuna duglega og smurt það svo og þá verður hjólið eins og nýtt!

Posted by erna at 10:50 EH