Ég fattaði bara núna í vikunni að það væru að koma páskar. Hér er ekkert frí um páskana frekar en fyrri daginn, og það stefnir þar að auki í vinnu alla helgina. En svona er það nú bara, sem betur fer er vinnan skemmtileg, það vantar ekki!
Þetta er annars búin að vera mjög fín vika. Ég er búin að komast aðeins áfram með ritgerðarsmíðina, búin að hugsa heilmikið um verkefnið mitt og þar að auki framkvæmdi ég beinmergseinangrun alveg upp á eigin spýtur og er nú bara að leyfa "dendritic" frumunum að þroskast í ró og næði. Þarf bara að gefa þeim að borða annað slagið, en reyndar er ég líka aðeins að pína þær með því að gefa þeim smá eitur og tékka hvað þær þola mikið.
Ég verð nú að segja að þó ég hafi ekki fengið páskaegg síðan ég var 12 ára greip mig í dag allt í einu svakaleg löngun í páskaegg. Það kemur til af ýmsu. Vissan þátt að því máli áttu lýsingar á nokkrum bloggum um að viðeigandi bloggarar staddir í útlöndum áttu ýmisst von á páskaeggi í pósti eða í farteski foreldra sem voru á leiðinni í heimsókn. (1) (2) (3)
Þar að auki var konan sem ég er að vinna með er gyðingur og hún fylgir passover-siðunum mjög strangt þessa vikuna, svona mest til þess að minnast menningararfleifðar sinnar. Ég væri sko alveg til í að minnast minnar menningararfleifðar á sunnudaginn með því að borða páskaegg númer fjögur frá Nóa Siríus.