Ef einhverjir eru forvitnir um hvernig ritgerð ég þarf að skrifa fyrir qualifyerinn minn. (Já, ég veit að þið eruð öll alveg svakalega spennt!) þá er hér linkur á leiðbeiningarnar sem ég fékk fyrir ritgerðarsmíðina og sjálft prófið.
Sumsé, ég sit hér og hamra saman rannsóknaráætlun. Fyrst þarf ég að setja fram kenningu og svo nokkur svokölluð markmið, eða "specific aims" sem segja til um það hvaða vitneskju ég ætla að afla með rannsóknunum. Svona eins og bla, bla... ég ætla að komast að því hvert samhengið á milli virkni gens A og B er... bla, bla, bla, bla. Svo er að skrifa fræðilegan inngang og svo loksins þarf ég að lýsa tilraununum sem ég ætla að gera til þess að afla vitneskjunnar sem ég set mér að komast að. Það er gert ráð fyrir að það taki mig 2-3 ár að ná öllum markmiðunum með því að nota aðferðirnar sem ég set mér. Úje!
Ég spurði hvort að þetta mætti vera á Íslensku, bara svona til þess að auðvelda mér ritsmíðina. Það lagðist ekki í góðan jarðveg.
Gangan í gær var stórfín. Eftir smá bras að ná bílnum úr bílskúrnum vegna hysteríska öryggisvarða lögðum við af stað klukkan hálfníu og vorum byrjuð að ganga klukkan hálftíu.
Það rigndi á okkur, það kom slydda og haglél og efst á "fjöllunum" var snjókoma en það var eiginlega bara betra. Gerði þetta að meira ævintýri en bara svona " a walk in a park". Það var líka mjög skemmtilegt fólk í ferðinni og mikið spjallað. Ég er samt ekkert í neitt smá lélegu formi eftir að hafa bara synt og gert jóga undanfarna níu mánuði. Því þarf sko að kippa í liðinn. Klukkan fjögur var ég orðin alveg gersamlega búin á því og þá var eins og hálfst tíma ganga eftir.
Við komum svo í bæinn klukkan korter í sjö. Og á korteri tókst mér að fara í sturtu og rjúka út með Adelene. Kalkúnabörgerinn og franskarnar rétt fyrir miðnætti voru kærkomnar eftir streð dagsins og við spjölluðum um heima og geima. Talandi um að fá sem mest út úr einum degi!