Úje. Hvað er betra en að vakna klukkan sjö á sunnudagsmorgni og smyrja sér nesti, búa til "trailmix" (jummí, úr rúsínum, súkkulaði, granóla, þurrkuðum ananas og banönum), fara í flísið og drífa sig út?
Ég er að fara í göngu í dag með gönguklúbbi Columbia. Við ætlum að rölta um stígana í Harriman State Park, kannski fara upp á Bear Mountain og svona. Það fáránlegasta er samt að það er búið að vera 15 til 20°C hiti hér í tvær vikur, en í dag er spáð rigningu og roki, 8°C og kólnandi og svo á kannski að snjóa! Stuð!!!!!