Laugardagur, 29 mars, 2003
Innblástur

Í dag er dagurinn. Dagurinn sem ég byrja að skrifa ritgerðina fyrir "qualifying" prófið mitt. Ég sit hér með kaffibolla og tómt word-skjal í tölvunni. Hlusta á La Boheme og læt fara vel um mig. Hugurinn geisar um heima sameindalíffræðinnar og ónæmisfræðinnar og ég er með fiðring í maganum. Nýja verkefnið mitt er svo spennó. Þess vegna held ég að það verði svakalega gaman að skrifa ritgerðina. Það er óskrifað blað fyrir framan mig, ókannað svið, óþekktar lendur virkni lífheimsins og þess smásæja vélvirkis sem hann byggir á.

Posted by erna at 02:30 EH