Manni hlýnar alltaf um hjartarætur þegar það bætast við fleiri Múvabúl Tæp notendur. Svo er Kristján líka búinn að setja upp trakkbakk. Í því tilefni er náttúrulega best að pinga þá báða.
Annars skil ég ekki alveg þetta með að trakkbakkið uppfærist ekki um leið og beiðni berst. Fór að velta fyrir mér hvort ég eigi líka við þennan vanda að stríða, en ég bara fatti það ekki.
Ég er líka mjög latur pingari, ég nennti ekki að fylla neitt út, trakkbakkið kemur þá bara ef það kemur...
Bloggin eru komin í sviðsljósið hér í Ameríkunni líka. Það er hver einasta fréttastofa búin að fjalla um bloggið hans Salam. Í kvöld var NBC með umfjöllun um stríðsblogg, eða warblogs eins og þau kallast upp á útlensku.
Í umfjölluninni var talað við nokkra "fræga" ameríska bloggara. Það var til dæmis talað við Instapundit gaurinn og Sgt. Stryker.
En það var ekkert minnst á blogg forsetans sjálfs.
Svo er þetta náttúrulega bara næst. Kæmi mér alla vegana ekkert á óvart.
Það er stelpa á labbinu hjá mér sem er með dagatal sem á hverjum degi er með nýja tilvitnun í G.W.B.
Ein klassísk: "What does that C on your shirt stand for, selfish?"