Ég er búin að vera að hugsa svolítið undanfarið um kosningafyrirkomulagið hér í Bandaríkjunum.
Fyrir mánuði síðan hefði ég verið algerlega sammála Jóhannesi þegar hann segir:
Það var eiginlega virkjanamálið sem fékk mig til þess að hugsa aðeins krítískara um málið, því að ég var að velta því fyrir mér hvort að flokkar fylgjandi virkjun væru virkilega í stjórn núna ef Íslandi væri ekki skipt niður í kjördæmi eins og það er núna.
Það vill nefnilega svo til að stjórnmálaflokkur þarf ekki endilega að fá meirihluta atkvæða á landsvísu til þess að ná meirihluta á þingi, heldur þarf hann aðeins að ná meirihluta í "réttum" kjördæmum. Allavegana er það þannig sem ég skil kosningakerfið okkar.
Ég bara spyr. Hvernig er það öðruvísi en kosningafyrikomulag í Bandaríkjunum? Ég held að við höfum ekki efni á að vera að gagnrýna Bandaríkjamenn á meðan við búum við jafnúrelt kerfi sjálf. Kerfi "sem byggir ekki á heildarfjölda atkvæða heldur skiptingu þeirra."
Ég er í aðeins betra skapi núna en í gær, þegar ég skrifaði geðvonskufærsluna um stríðsáróðurinn. Sem betur fer er vinahópurinn búinn að taka sig saman um að það er bannað að tala um stríðið, þannig að við erum búnar að hafa það svaka gott í kvöld yfir góðum mat og spjalla saman um heima og geima.
Annars er ekki mikið annað að frétta en að ég er pínu svekkt yfir að vera ekki hjá Merði um helgina af því að hann verður þrítugur á sunnudaginn. Ég vildi að hann væri hérna hjá mér!
En allavegana, þá stefnir í rólega helgi, eina ferðina enn. Ég þarf algerlega á því að halda eftir veikindi og slappleika undanfarinna vikna. Og í næstu viku byrja ég að vinna á fullu!!!