Það er ótrúlegt hvað hún Unnur hittir oft naglann á höfuðið! Hún kemur svo vel fyrir sig orði alltaf. Ég las líka færsluna sem hún talar um og hryllti mig og vonaði í leiðinni að sturtufélaginn sem skrifað var um læsi ekki blogg, eða þekkti umræddan bloggara ekki í sjón.
Er þetta uppeldið eða hvað? Var Ásu ekki kennt að gera ekki grín að útliti fólks á almanna færi? Hún kemur illilega upp um eigin fáfræði og fordóma með þessari færslu.
Nú verður ekki horfandi á sjónvarpið á næstunni. Fussumsvei. Mér finnst þetta svo siðlaust eitthvað, þetta með stríð í beinni. Hefur fólk ekkert betra að gera en að horfa á þetta? Ég ætla alla vegana að sýna andstöðu mína við þessa styrjöld í verki með því að horfa ekki á hana í sjónvarpinu.
Ég sem ætlaði að horfa á Law and Order, en í staðinn les ég bara vísindagreinar. Það er hvort sem er mikið uppbyggilegra. Kannski bara að stríðið hjálpi upp á qualifying prófið hjá mér? Það skyldi þó aldrei verða?