Þriðjudagur, 18 mars, 2003
Brjáááááálað að gera

Það stefnir allt í að það verði brjálað að gera hjá mér fram á haustið. Í augnablikinu er ég að lesa á fullu og kynna mér fræðin tengd nýja verkefninu mínu, en á morgun held ég að ég byrji á labbvinnu, að minnsta kosti bara að búa til buffera og svona (ó, ég ætti kannski að nota orðið stuðpúðalausnir í staðinn fyrir buffera hehehehe....).

Og þá verður ekki aftur snúið. Ég þarf sko að gera svo vel að fara að pródúsera gögn til þess að sýna á labbfundi í sumar og svo held ég fyrirlestur í júlí í svokölluðum Dataclub, þar sem fólk frá ónæmisfræðirannsóknarstofum á háskólasvæðinu skiptist á að kynna gögnin sín. Frau Doktor Professor Calame kann sko að setja á mann pressu. Þeim sem ekki vinna við líffræðirannsóknir kann kannski að finnast þetta óþarfa stress, að vera að hafa áhyggjur af því að ná ekki að afla gagna á fjórum mánuðum. En fjórir mánuðir er stuttur tími í rannsóknum, ýmislegt getur og mun koma uppá, sérstaklega þegar unnið er með mýs. Það er ástæða fyrir því að það tekur flesta að minnsta kosti sex ár að ljúka doktorsprófi hér...

Og svo verður sennilega qualifying prófið mitt í byrjun í júní í síðasta lagi. Mér finnst þetta reyndar bara fínt. Nú hef ég sko enga afsökun. Best að bretta bara upp ermarnar og... einn, tveir og byrja!!!!

Posted by erna at 07:19 EH