Ef að ég vissi ekki betur myndi ég halda að það væri verið að taka upp nýja Stjörnustríðsmynd yfir borginni. Djöfuls hávaði... Er komið stríð eða hvað? Mikið er maður annars í raun varnarlaus.
Ah.. ég vaknaði í morgun og hausverkurinn var farinn! Júhú!!!!
Ég náði samt ekki að verða samferða Loru með fyrstu morgunrútunni, ég sofnaði nefnilega svo seint í gær vegna partýláta vina minna hér við hliðina á.
Þegar ég kom á labbið voru allir mættir, klukkan níu að morgni. Það er eitt af því sem mér líkar vel við á nýja labbinu, fólk mætir snemma í vinnuna. En fer reyndar ekkert fyrr heim en á gamla staðnum....
Ég tók eftir því að stelpurnar á labbinu voru svaka pæjulega klæddar. Ég hugsaði mig um, af því að ég mundi ekki eftir því að þær hefðu verið svona miklar skutlur í fyrra þegar ég vann á labbinu. Um ellefu leitið skýrðist málið, því að inn gekk engin önnur en Joan Allen. Hún er um þessar mundir að rannsaka fyrir hlutverk sitt í mynd um vísindakonu, sem er lífefnafræðingur og vinnur í New York. Það fyndnasta var að hún var mikið afslappaðri til fara en labbfélagar mínir! Hún mætti víst líka fyrir viku síðan og spjallaði heillengi við Kathryn og spurði hana út í vinnuna hennar, en í dag sýndi Kristy henni það sem hún var að gera á labbinu. Drap mús, veiddi úr henni miltað og kreisti út úr því hvítkornin og hóf að hreinsa út B-frumurnar. Ég held að Joan hafi algerlega fengið það sem hún var að leita að... Það verður gaman að sjá myndina þegar hún kemur út!!!
Annars er bara allt í gúddí, ég skráði mig á tilraunadýranámskeið í dag og las og las og las svaka góða yfilitsgrein um þróun morfólógíu útþekju og er svo að fara að lesa greinar í kvöld um genið sem ég er að fara að gera tilraunir með... Tjúllað!
Á morgun ætla ég að kaupa filmu og byrja á nýju ljósmyndaprójecti. Ég hef það að markmiði að ná ljósmynd af hverjum og einum bræðralagsdrengjanna þar sem þeir standa fullir og míga fram af svölunum hjá sér. Ég er viss um að þeir verða ekki ánægðir ef ég sendi þeim afrit af myndunum í tölvupósti. En svona er það, ef maður er ógeðslegur á almannafæri er ekkert mál að ná af manni myndum er það?
Eru það örlög mín að eiga alltaf vonlausa nágranna? Fyrst Palli dópisti og svo þetta lið.