Þessa dagana er auglýsing í sjónvarpinu sem vekur hjá mér heimþrá í hvert skipti sem ég sé hana. Sennilegasta skýringin er sú að auglýsingarnar eru teknar á Íslandi. Þetta eru Hummer auglýsingar sem eru alltaf í sjónvarpinu þessa dagana.
Hummerinn brunar um Íslenska náttúru. (Ég vona að þeir hafi nú haldið sig mest á vegslóðum og ekki tætt upp náttúruna). Eftir brunerí um Skaftafell og Vatnajökul, framhjá Gullfossi og svona beisiklí eftir smá "best of Iceland rúnt" er súmmað út þangað til bara sést gervitunglamynd af landinu. Vááá.. þegar ég sá þessa auglýsingu fyrst kipptist hjartað í mér til og ég hugsaði bara "Ísland, mitt Ísland... mitt, mitt, mitt"
En allavegana, auglýsingarnar má sjá á þessarri síðu. Auglýsingar eitt, tvö og sex eru teknar upp á íslandi, en númer fimm er tekin á Fróni en súmmar frá einhverju öðru landi (svindl).
Ég held að það séu líka barasta alvöru innfæddir íslenskir karlmenn í auglýsingu númer tvö (Glacier). Að minnsta kosti er gaurinn í farþegasætinu ýkt sætur og þar að auki í íslenskri lopapeysu!
Æji, nennir ekki einhver að koma til mín og fara með lyfseðilinn út í apótek. Kannski fara í leiðinni út í búð og kaupa handa mér mjólk og eitthvað súpuglundur og sækja meðölin í apótekið í bakaleiðinni? Ég hef verið að reyna að mana mig upp í þetta í morgun, en það er ekki alveg að virka....
Það er fúlt að vera alein veik stelpa heima...