Ég get nú ekki annað en bætt inn hlekk á heimasíðuna hennar Soffíu, dóttur Jónu og Stebba. Ég hefði sko verið búin að því fyrir löngu ef að ég hefði ekki verið búin að týna slóðinni... Oh, hún er svo mikið krútt hún Soffía.
Ég hef ekki séð Soffíu, hvað þá foreldra hennar síðan þar síðasta sumar, það eru að verða komin tvö ár síðan! Tíminn flýgur.
Mér finnst ekkert smáborgaralegra en þegar Íslendingar eru að væla yfir launum hinna og þessa forstjóra stórfyrirtækja á Íslandi. Mér finnst þetta bera merki hinnar dæmigerðu öfundar sem alltaf virðist vera handan við hornið á Íslandi. Mér finnst fyrirtæki sko ekkert þurfa að réttlæta það þegar þau borga forstjórum sínum há laun. Ef þau vilja halda í góðan mann, þá þurfa þau að borga honum há laun.
Persónulega finnst mér milljón eða tvær á mánuði ekkert svakalegur peningur fyrir forstjóra stórfyrirtækis.
Mér finnst samt enn fáránlegra þegar forsætisráðherra fer að tjá sig um hlaun hinna eða þessa Íslendinga. En það kemur mér kannski heldur ekkert á óvart að hann geri það, hann kann sér engin mörk karlinn sá.
Svo hafa líka verið uppi raddir um að forsætisráðherra sjálfur sé með allt of há laun. Ég er líka ósammála því. Mér finnst svo óþolandi þessi væll í fólki að það sé eitthvað ósanngjarnt að menn í ríkisstjórn fái há laun. Vill fólk í alvöru að þingmenn og ráðherrar séu á verkamannalaunum? Vill fólk í alvöru gera forsprakka þjóðarinnar viðkvæma fyrir mútuþægni?
Mér finnst persónulega að það ætti að hækka laun ráðherra og þingmanna töluvert, þau eiga skilið að fá borgað fyrir það að bera ábyrgð á hag okkar og velferð.