Sunnudagur, 9 mars, 2003
Helgin

Ég var að koma heim úr stuttur helgarfríi með Loru. Við vorum að passa hús og hund fyrir prófessor í deildinni. Það var svaka kósí hjá okkur á laugardaginn, við fórum í heita pottinn og gláptum á vídejó og svo seinnipartinn í gær komu Adelene og Emily og við fórum í göngutúr á Palisades stígnum.

Veðrið var frábært, yfir tíu stiga hiti og sólskin og enginn vindur. Sumum fannst samt nóg um krapann og snéru við eftir stutta stund, en við Adelene gengum áfram og tókum hundinn með okkur. Ég er viss um að hundurinn hefur haldið að hann væri dáinn og kominn til himna, þvílík paradís að fara út að labba með konum sem nenna endalaust að vera að henda snjóboltum og láta hana hlaupa á eftir þeim og vaða í gegnum krapa og skvetta og busla.

Á leiðinni sáum við dádýraspor í snjónum og svo rákumst við á dauðan fugl sem greinilega hafði barist fyrir lífi sínu því að það voru fjaðrir út um allt, en fuglinn var hauslaus og búið að rífa úr honum hjartað.

Við ætluðum að hitta Loru og Emily um átta mílum frá staðnum þar sem við tókum af stað, en þær keyrðu þangað og biðu eftir okkur. Það var hins vegar tekið að skyggja þegar við fórum af stað þannig að við ákváðum að stytta okkur aðeins leið og fórum upp á malbikaðan veg rétt hjá sem að við héldum að sniglaðist upp á Palisades klettana. En það var víst ekki rétt, og um það leyti var komin lögga að tala við Loru og var víst frekar fúll þegar hann vissi að við værum enn á stígnum rétt fyrir myrkur. Stelpurnar voru líka að drepast úr hræðslu, þær hafa ekki mikið farið í göngur, og héldu að við værum rammvilltar. Löggurnar gerðu líka mikið úr því hvað það væri hættulegt að labba í svona miklum snjó. (Jamm, það voru sennilega heilir þrír sentimetrar af jafnföllnum snjó þar sem hann var mestur.)

Eftir mikið þref í símann fram og til baka vorum við svo á endanum sóttar á stigin af frekar fúlum lögreglumanni, sem fannst aðstæður svo svakalegar að hann væri að bjarga okkur frá dauða.

Það var gott að komast í heita pottinn eftir þetta ævintýri og það verður ekki annað sagt en að ég hafi sofið vel í nótt.

Posted by erna at 01:12 EH